Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.11.2020, Blaðsíða 34
34 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020 Kórónuveirusmit hefur greinst hjá þýska handboltaliðinu Gummers- bach sem leikur í næstefstu deild. Félagið sagði frá þessu á heima- síðu sinni í gær en þar kemur einn- ig fram að um leikmanna sé að ræða og hafi hann greinst jákvæð- ur en sé einkennalaus. Næstu tveimur leikjum Gummersbach var frestað vegna þessa en liðið átti til að mynda að spila í gær. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach og Elliði Snær Við- arsson leikur með liðinu. Smit hjá liði Gummersbach Morgunblaðið/Árni Sæberg Gummersbach Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Óskar Ólafsson skoraði fimm mörk þegar lið hans Drammen gerði 30:30 jafntefli gegn Nærbö í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla í gær. Óskar er 26 ára gamall varnar- maður en hefur á tímabilinu fengið stærra hlutverk í sóknarleiknum hjá Drammen. Hann var í síðasta mánuði valinn í íslenska landsliðið í fyrsta skipti fyrir leik gegn Litháen í undan- keppni EM og var nýverið valinn í 35 manna æfingahóp fyrir HM í Egyptalandi í næsta mánuði. Ljósmynd/Drammen Noregur Óskar Ólafsson hefur látið að sér kveða í vetur. Óskar skoraði fimm mörk MARADONA Kristján Jónsson kris@mbl.is Argentínski knattspyrnusnillingurinn Diego Armando Maradona sálaðist á heimili sínu í Buenos Aires í gær sex- tugur að aldri. Raunar nýorðinn sex- tugur. Ófáir fjölmiðlarnir fluttu fréttir af stórafmælinu hinn 30. október. Ekki löngu síðar var sagt frá því að Maradona hefði farið í aðgerð vegna blóðtappa við heila sem þótti vel heppnuð. Hann hafði því verið útskrif- aður af sjúkrahúsi þegar hjartaáfall dró hann til dauða samkvæmt argent- ínskum fjölmiðlum. Maradona var í guðatölu í Arg- entínu og lýsti forseti landsins, Al- berto Fernandez, yfir þriggja daga þjóðarsorg í gær. Táknræn aðgerð en vafalaust verða tilfinningaheitir samlandar Maradona öllu lengur að syrgja hetjuna. Ef til vill er því of oft hent fram af fólki í minni stétt að íþróttakempur séu í guðatölu. Þetta eru jú bara íþróttir. En í tilfelli Maradona er það nú bara býsna ná- kvæmt því Kirkju Maradona, The Iglesia Maradoniana, var komið á fót á 38 ára afmælisdegi Maradona. Kirkjan sjálf er í Rosario en form- legir meðlimir í söfnuðinum eru víða í Argentínu. Eru þeir fleiri en íbúar Reykjavíkur en því hefur verið hald- ið fram að allt að 200 þúsund manns séu í söfnuðinum. Langvinsælastur Maradona var langvinsælasti íþróttamaðurinn í Argentínu. Ólst upp í fátækt í einu úthverfa Buenos Aires en menn voru ekki lengi að koma auga á að þarna væri á ferð- inni einhvers konar undrabarn í knattspyrnu. Á barnsaldri fékk hann tækifæri til að vera boltast- rákur á leikjum Boca Juniors en skemmti um leið áhorfendum í leik- hléi með knatttækni sinni. Síðar sló hann í gegn sem leikmaður liðsins. Afrekum Maradona verða ekki gerð tæmandi skil í grein sem þess- ari. Hvort sem það er framganga hans innan vallar eða utan. Ofboðs- legar vinsældir hans í heimalandinu má rekja til þess árangurs sem landsliðið náði með Maradona sem fyrirliða. Þar skipta tímasetning- arnar einnig máli. Andrúmsloftið í Argentínu var ögn sérstakt þegar kom að heimsmeistarakeppninni í Mexíkó árið 1986. Argentínumenn höfðu verið í mótvindi í alþjóða- samfélaginu, til dæmis vegna Falk- landseyjastríðsins. Knatt- spyrnuliðið var stolt þjóðarinnar og Maradona hafði í huga flestra ýtt Michel Platini af stallinum sem besti knattspyrnumaður heims. Á HM 1986 gerði hann það í það minnsta endanlega og var yf- irburðamaður í keppninni. Leiddi Argentínu til sigurs og skoraði eftirminnileg mörk gegn Englandi og Belgíu í 8-liða og undanúrslitum. Höndin og tilsvarið Leikurinn gegn Englandi er kap- ítuli út af fyrir sig og sigurinn í þeim leik afar sætur gegn andstæð- ingnum úr Falklandseyjastríðinu. Argentína hafði einnig orðið heims- meistari 1978 en líklega hafði sig- urinn 1986 meiri þýðingu vegna þess sem gengið hafði á. Maradona var sannkallaður galdramaður á vellinum og síðara markið gegn Englandi er með þeim glæsilegri í knattspyrnusögunni. Um það er ekki deilt. Tilsvar Maradona eftir að hafa skorað fyrra markið gegn Englandi með hendi er með frægari ummæl- um í íþróttasögunni. Hönd Guðs, svaraði kappinn án þess að blikna. Hönd himnaföðurins var stundum á flækingi á knattspyrnuvöllum á þessum tíma. Vegna sögunnar vakti mikla athygli þegar Maradona bjargaði á marklínu með hendi gegn Sovétríkjunum á HM árið 1990. Þá fór Argentína aftur í úrslit með Maradona í fararbroddi en þá höfðu Þjóðverjarnir betur. Boltinn small meira að segja í hendinni á Mara- dona þegar hann lagði upp mark í úrslitaleik gegn Ásgeiri Sigurvins- syni og samherjum í Stuttgart í Evrópukeppni félagsliða árið 1989. Napolí sigraði samtals 5:4 eftir tvo úrslitaleiki. Er eilífur að sögn Messi Víðar en í Argentínu á fólk um sárt að binda vegna frétta gærdagsins. Ekki síst í borginni Napólí á Ítalíu og þar var farið í ýmsar aðgerðir í gær eins og að gefa frí í skólum. Mara- dona var aðalmaðurinn þegar Napolí varð ítalskur meistari 1987 og 1990. Þar spila tímasetningar einnig inn í. Íbúar í borginni voru fremur litlir í sér á þeim tíma sem Maradona flutt- ist þangað. Litið var niður á borgina og íbúa hennar á Ítalíu. Knatt- spyrnuliðið hafði aldrei orðið meist- ari. Eftir framgöngu Maradona varð hann álíka vinsæll í borginni og heima í Argentínu. Samlandi hans, Lionel Messi, minntist Maradona í færslu á In- stagram í gær. „Mikill sorgardagur fyrir alla Argentínumenn sem og fót- boltaheiminn. Hann er farinn en þó ekki því Maradona er eilífur,“ skrif- aði Messi meðal annars en sá mikli kappi kemur ekki til með að ná sömu vinsældum í Argentínu, nema mögu- lega ef honum tekst að verða heims- meistari. Þjóðarsorgin verður lengri en þrír dagar AFP Á toppnum Diego Maradona sveiflar sigurlaununum á HM 1986 á Azteca- leikvanginum í Mexíkóborg eftir sigur á V-Þjóðverjum í úrslitaleik.  Galdramaðurinn Diego Armando Maradona lést í gær úr hjartaáfalli  Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Atletico Madríd – Lokomotiv Moskva.... 0:0 Bayern München – Salzburg................... 3:1 Staðan: Bayern München 12, Atletico Madrid 5, Lokomotiv Moskva 3, Salzburg 1 B-RIÐILL: Mönchengladbach – Shakhtar Donetsk. 4:0 Inter – Real Madríd ................................. 0:2 Staðan: Mönchengladbach 8, Real Madríd 7, Shak- htar Donetsk 4, Inter 2 C-RIÐILL: Olympiacos – Manchester City ............... 0:1  Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópi Olympiacos. Marseille – Porto...................................... 0:2 Staðan: Manchester City 12, Porto 9, Olympiacos 3, Marseille 0 D-RIÐILL: Ajax – Midtjylland.................................... 3:1 Liverpool – Atalanta ................................ 0:2 Staðan: Liverpool 9, Ajax 7, Atalanta 7, Midtjylland 0 England B-deild: Millwall – Reading................................... 1:1  Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem varamaður hjá Millwall á 64. mínútu. Middlesbrough – Derby........................... 3:0 Bristol City – Watford ............................. 0:0 Coventry – Cardiff .................................. 1:0 Swansea – Sheffield Wednesday ............ 1:1 Staðan Norwich 13 8 3 2 17:10 27 Bournemouth 13 7 5 1 21:11 26 Bristol City 13 7 3 3 16:11 24 Swansea 13 6 5 2 15:8 23 Watford 13 6 5 2 15:10 23 Reading 13 7 2 4 20:17 23 Middlesbrough 13 5 6 2 12:6 21 Stoke 13 6 3 4 21:18 21 Brentford 13 5 5 3 18:12 20 Millwall 13 4 7 2 12:10 19 Luton 13 5 4 4 11:13 19 Blackburn 13 5 3 5 25:15 18 QPR 13 4 5 4 15:18 17 Barnsley 13 4 4 5 14:14 16 Preston 13 5 1 7 16:17 16 Huddersfield 13 4 3 6 15:17 15 Birmingham 13 3 6 4 10:12 15 Cardiff 13 3 5 5 13:13 14 Sheffield Wed. 13 3 4 6 7:12 13 Rotherham 13 3 3 7 12:16 12 Nottingham F. 13 3 3 7 9:16 12 Coventry 13 3 3 7 13:23 12 Wycombe 13 2 3 8 6:19 9 Derby 13 1 3 9 5:20 6 Ítalía Bikarkeppni: Bologna – Spezia............................. 2:4 (frl.)  Andri Fannar Baldursson sat allan tím- ann á varamannabekk Bologna. Vináttulandsleikur kvenna Danmörk – Noregur ............................25:27  Þórir Hergeirsson þjálfar lið Noregs. Meistaradeild karla A-RIÐILL: Kielce – Vardar Skopje........................ 36:29  Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki í leikmannahóp Kielce og Haukur Þrastar- son er meiddur. B-RIÐILL: Veszprém – Aalborg ............................ 30:32  Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal- borg. Danmörk Lemvig – Kolding ................................ 25:34  Ágúst Elí Björgvinsson varði fjögur skot í marki Kolding. Fredericia – Tvis Holstebro............... 33:35  Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 2 mörk fyrir Tvis Holstebro. Frakkland St. Raphaël – Aix ................................. 26:29  Kristján Örn Kristjánsson leikur með Aix. B-deild: Nice – Besancon................................... 30:23  Grétar Ari Guðjónsson varði 10 skot í marki Nice. Noregur Drammen – Nærbö.............................. 30:30  Óskar Ólafsson skoraði 5 mörk fyrir Drammen.   Gerard Pique, varnarmaður knatt- spyrnuliðs Barcelona, verður frá næstu mánuðina vegna meiðsla á hné skv. frétt Mundo Deportivo. Pique meiddist í leik Barcelona og Atlético Madrid í spænsku 1. deildinni um þar síðustu helgi. Pique frá fram í apríl? Í gærkvöldi lauk 4. umferð Meist- aradeildar Evrópu í knattspyrnu karla. Liverpool laut í lægra haldi, 0:2, gegn Atalanta á Anfield í D-riðli. Í hinum leik riðilsins vann Ajax 3:1 sigur á Midtjylland. Mikael Ne- ville Anderson kom inn á í lið Midt- jylland á 69. mínútu leiksins. Úrslit kvöldsins þýða að Midtjylland er úr leik án stiga en riðillinn er að öðru leyti opinn upp á gátt. City áfram Manchester City tryggði sér sæti í 16 liða úrslitum með 1:0 útisigri á Olympiacos í C-riðlinum. Í hinum leik riðilsins vann Porto góðan 2:0 sigur á útivelli gegn Marseille og er í afar góðri stöðu. Inter á botninum Í B-riðlinum er allt í járnum eft- ir frábæran 2:0 útisigur Real Ma- drid gegn Inter. Í hinum leik rið- ilsins vann Borussia Mönchengladbach frábæran 4:0 sigur á Shakhtar Donetsk og er í efsta sæti riðilsins. Bayern vann riðilinn Bayern München er búið að tryggja sér sigur í A-riðlinum og þar með sæti í 16 liða úrslitum eft- ir 3:1 sigur gegn Salzburg. Atlético Madrid gerði þá 0:0 jafntefli gegn Lokomotiv Moskvu. Öll þrjú liðin eiga enn möguleika á að fylgja Bayern í 16 liða úrslitin. Liverpool hljóp á sig AFP Á Anfield Gian Piero Gasperini, þjálfari Atalanta, fagnar sigrinum gegn Englandsmeisturunum með sínum mönnum í Liverpool í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.