Morgunblaðið - 26.11.2020, Síða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
71%
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
HÖRKUSPENNANDI MYND
BYGGÐI Á SANNRI SÖGU.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Þegar ég hóf að sækjastjórnmálafundi fyrir um65 árum ræddu menngjarnan ávinninginn af því
að fámenn þjóð á norðurhjara ver-
aldar fékk sjálf stjórn eigin mála,
stofnaði lýðveldi og skapaði sér líf-
vænlega stöðu á alþjóðavettvangi og
efnahagslega.
Ekkert af þessu
laut náttúrulegu
lögmáli og ekki
heldur hitt að síð-
ari heimsstyrj-
öldin gerði eyj-
arnar í
Norður-
Atlantshafi að
hluta af „miðj-
unni“ með Norður-Atlantshafs-
bandalaginu, NATO.
Hefðu framboðsræður mínar
fjallað um þetta á fundum á tíunda
áratug 20. aldarinnar hefðu þær
þótt tímaskekkja. Svo sjálfsagt var
þetta þá talið. Umræðurnar snerust
um einstakt gildi þess að samið yrði
um nýja aðild að „miðjunni“ með
Evrópska efnahagssvæðinu, EES.
Lína er dregin gegn valdi „miðj-
unnar“ hér. Við afsölum okkur ekki
stjórn fiskveiða til hennar. Baráttan
fyrir 200 mílna efnahagslögsögu í
norðri yrði að engu. Sumir telja
sjálft fullveldið í hættu verði raf-
strengur tengdur héðan til „miðj-
unnar“.
Bókin Í fjarska norðursins –
Ísland og Grænland viðhorfssaga í
þúsund ár eftir dr. Sumarliða R. Ís-
leifsson, lektor við sagnfræði- og
heimspekideild Háskóla Íslands,
snýst um viðhorf annarra þjóða
manna til Íslands, ímynd þeirra hef-
ur svo áhrif á viðhorf okkar sjálfra.
Hve oft heyrist ekki að þetta eða
hitt atvikið á heimavelli spilli orð-
spori þjóðarinnar út á við?
Sumarliði segir:
„Hugtakið ímynd verður mikið
notað í þessu verki. Hér er það ekki
notað um myndir eða myndlíkingar
heldur sem mynd eða hugmynd sem
við teljum einkennandi fyrir tiltek-
inn hóp, fjölskyldu, þjóð eða ein-
hvern annan hóp. Þess háttar ímynd
hefur áhrif á og stjórnar afstöðu
okkar og hegðun gagnvart viðkom-
andi hópi eða fyrirbæri og leiðir til
neikvæðra eða jákvæðra ályktana og
ímynda. Hér er því um að ræða að-
greiningu í „okkur“ og „hina“. (15)
Og enn segir:
„Þjóðarímyndir byggja að hluta til
á aðstæðum sem erfitt er að breyta.
Mikilvæg hugtakapör í þessu sam-
hengi eru smæð-stærð, völd-
valdaleysi, norður-suður, austur-
vestur, svartur-hvítur, miðja-jaðar,
eyja-meginland, svo nokkur pör séu
nefnd. Þannig er talað um ákveðið
regluverk í tengslum við ímyndar-
sköpunina. Ímyndir eiga sér oft
djúpar sögulegar rætur og geta ver-
ið hrærigrautur af sögulegum við-
burðum, sögusögnum og misskiln-
ingi.“ (17)
Hafi lesandinn þetta leiðarstef í
huga auðveldar það honum að átta
sig á efnistökum Sumarliða þegar
hann leiðir erlenda menn fram í því
skyni að bregða ljósi á norðlægu eyj-
arnar Ísland og Grænland. Þær eru
gjörólíkar með vísan til jarðfræði,
landnytja, búsetu og menningar.
Stjórnarhættir og tengsl við „miðj-
una“ eru ólík, Ísland hjálenda en
Grænland nýlenda. Báðar voru þær
hins vegar taldar á mörkum hins
byggilega heims eða jafnvel handan
hans.
Bók Sumarliða skýrir vel hve
merkilegt það er að fyrst nú í ár fær
Reykjavík lykilhlutverk í sjóflutn-
ingum Grænlendinga. Þar skipir
framtak Eimskips máli. Þá er hitt
ekki síður merkilegt í ljósi sögunnar
að nú sér Lambhagi Grænlend-
ingum fyrir fersku grænmeti frá Ís-
landi.
Efnið sem Sumarliði færir okkur á
skýran og aðgengilegan hátt í bók
sinni skapar samtímanum dýpt. Hún
minnir einnig á gildi varðstöðu um
ímynd Íslands. Framandleg þjóðin
var bjargarlaus í þessu efni um aldir,
eins konar illa lyktandi sýningar-
gripur í óhrjálegum híbýlum við dyr
eldfjalla ef ekki sjálfs vítis.
Á 16. öld var svo komið að mennt-
aðir Íslendingar „sem störfuðu við
helstu stofnanir í landinu, skóla og
biskupsstóla, settu fyrir sig þær
hugmyndir sem algengar voru um
Ísland erlendis, hugmyndir, sem
gerðu lítið úr landi og þjóð og sýndu
það á annan hátt í neikvæðu og ann-
arlegu ljósi að þeirra mati. Þeir vildu
svara fyrir sig.“ (108)
Árið 1625 kom út á ensku varnar-
ritið Crymogæa (ísl. Ísafold) eftir
Arngrím Jónsson lærða þar sem lýst
var samfélagi á Íslandi „sem svipaði
til annarra samfélaga sem Íslend-
ingar höfðu mest samskipti við í
Vestur-Evrópu“. (109) Erlendir höf-
undar studdust við rit Arngríms
lærða og ímynd Íslands breyttist.
Þar er nefndur til sögunnar kunnur
franskur fræðimaður, Isaac de la
Peyrère, sem sendi frá sér bók um
Ísland árið 1663. Hann endursagði
texta Arngríms að stórum hluta,
meðal annars um íslenska menn-
ingararfinn sem erlendir menn
þekktu ekki. Var verk Frakkans gef-
ið út í þremur frönskum útgáfum en
auk þess á ensku og dönsku.
Sumarliði rekur sögu hugmynda
um Ísland og Grænland allt fram til
okkar daga. Hann lýsir vel hvernig
meginhugmyndin um löndin og þjóð-
irnar mótast af menningarlegum og
hugmyndafræðilegum straumum
hvers tímaskeiðs fyrir sig. Upplýs-
ingaöldin beinir athygli frá
skrímslum og forynjum að því sem
þykir í raun virði að rannsaka í nátt-
úru og mannlífi. Rómantíkin vekur
tilfinningar fyrir fegurð landsins og
menningarlegum afrekum fortíðar –
ættjarðarástinni.
Erum við stödd á nýjum kross-
götum nú á tímum? Hringborð norð-
ursins dregur þúsundir manna ár
hvert í Hörpu til að ræða málefni
norðurslóða. Grænland vekur áhuga
fjárfesta vegna vinnslu á sjaldgæf-
um jarðefnum eða olíu. Fréttir ber-
ast um dýrmæt jarðefni í og á hafs-
botni í norðri. Rannsóknir á
auðlindum eru meiri en nokkru
sinni. Reglulegar siglingar í Norður-
Íshafi eru taldar á næsta leiti. Því er
jafnvel spáð að Ísland verði Singa-
púr norðursins.
Keppni stórvelda magnast á
svæðinu. Smáþjóðir vilja að lág-
spenna ríki á norðurslóðum. Koma
þær sér saman um hvernig best
verði stuðlað að því?
Fyrir hvern þann sem vill dýpka
skilning sinn á viðhorfinu til Íslands
og Grænlands og þar með norðrinu í
aldanna rás er bók Sumarliða R. Ís-
leifssonar kjörið lesefni.
Í fjarska norðursins er glæsileg
bók í öllu tilliti. Brotið er stórt, allar
skrár eru vandaðar og alúð lögð við
umbrot og frágang. Á þriðja hundr-
að myndir eru í bókinni en Margrét
Tryggvadóttir er myndaritstjóri.
Sumarliði R. Ísleifsson er vand-
aður og varfærinn fræðimaður.
Stundum gerir hann of mikinn fyrir-
vara við efnistök sín eða notkun
heimilda. Þær eru ríkulegar og oft
vitnað beint í þær í sérstökum
köflum.
Íslendingum þótti fyrr á öldum
nóg um áhuga útlendinga á Heklu.
Þeir og landið hefðu einnig annað að
bjóða. Við vorum hins vegar minnt
rækilega á aðdráttarafl eldfjalla árið
2010 eftir gosið í Eyjafjallajökli.
Bylting varð í komu ferðamanna.
Norðlæga eyjan hefur mikið að-
dráttarafl þótt fólkið sé ekki eins
framandlegt og áður.
Við endurreisn að loknum heims-
faraldri á að laða hópa ferðamanna
að nýju til landsins. Efni þessarar
bókar á erindi til þeirra sem þar
koma að verki. Vegleg umgjörð text-
ans má ekki skapa þá ímynd að hann
sé skráður til hátíðarbrigða. Kynn-
ing á Íslandi samtíðarinnar á rætur í
því sem þarna er sagt.
Ímynd Íslands og Grænlands
Morgunblaðið/Ómar
Á Grænlandi „Fyrir hvern þann sem vill dýpka skilning sinn á viðhorfinu til
Íslands og Grænlands og þar með norðrinu í aldanna rás er bók Sumarliða
R. Ísleifssonar kjörið lesefni,“ skrifar rýnir um bókina Í fjarska norðursins.
Sagnfræði
Í fjarska norðursins bbbbm
Eftir Sumarliða R. Ísleifsson.
Útgefandi Sögufélag, Reykjavík 2020.
381 bls. innb., ríkulega myndskreytt.
BJÖRN
BJARNASON
BÆKUR
Morgunblaðið/Kristinn
Höfundurinn Sumarliði R. Ísleifs-
son, sagnfræðingur og lektor.