Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 26.11.2020, Qupperneq 40
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is Mánudaga - Sunnudaga 12-18 svartur föstudagur til og með 1. desember af öllum vörum Gildir á meðan birgðir endast rúmföt öll 30% Sparadu- jólavörur allar 40% Sparadu- miklu meira ... og svo mottur allar 20% Sparadu- Handklæði öll 30% Sparadu- harvey allt 50% Sparadu- www.ilva.is 20-50% Sparadu- Ljósabasar Nýlistasafnsins 2020 verður opnaður á ljosabasar.nylo.is í dag kl. 17 og stendur til 20. desem- ber. Þar býðst að kaupa samtímalist eftir yfir 40 mynd- listarmenn, sem eru félagar safnsins. Þeirra á meðal eru Anna Jóa, Haraldur Jónsson, Hlynur Hallsson og Rakel McMahon. Einnig verður hægt að skoða verkin í geymslu- og örsýningarrými Nýlistasafnsins í Marshall- húsinu á hefðbundnum afgreiðslutíma safnsins. Verkin eru jafn fjölbreytt og þau eru mörg en þau tengjast öll ljósinu í orðsins víðasta skilningi. Ljósabasar Nýló er fjáröflunarviðburður til stuðnings Nýlistasafninu, sem er listamannarekið safn og sýningarrými. Ljósabasar Nýlistasafnsins 2020 FIMMTUDAGUR 26. NÓVEMBER 331. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Argentínski knattspyrnusnillingurinn Diego Armando Maradona er látinn sextugur að aldri og ríkir nú þjóðar- sorg í Argentínu. Banamein Maradona var hjartaáfall samkvæmt fréttum argentínskra fjölmiðla í gær. Ekki er langt síðan fluttar voru fréttir af heilsufari Maradona en hann hafði þá gengist undir aðgerð vegna blóðtappa við heila og þótti aðgerðin heppnast vel eftir því sem næst verður komist. Maradona var langvinsælasti íþróttamaðurinn í Argentínu og ásamt Pele var hann annar af frægustu knattspyrnumönnum heims. »35 Þjóðarsorg í Argentínu vegna frá- falls knattspyrnusnillingsins ÍÞRÓTTIR MENNING „Það er spáð alveg hundleiðinlegu veðri í kvöld auk þess sem fréttir gærdagsins sýna að það er enginn óhultur fyrir þessari veiru svo við höldum áfram að gleðja fólk sem er heima fyrir með bingói í beinni,“ segir Sigurður Þorri Gunnarsson, útvarpsmaður á K100. Hann stýrir bingói á mbl.is í kvöld eins og honum einum er lagið, en bingóið hefur slegið í gegn undanfarið. Hægt er að taka þátt gegnum mbl.is/bingo í kvöld klukkan 19. Allir landsmenn eru hvattir til að taka þátt enda er til mikils að vinna að þessu sinni. „Vinningarnir verða ekki af verri endanum í kvöld, meðal annars Sam- sung-spjaldtölva, 100.000 kr. gjafa- bréf frá Heimsferðum, fatnaður frá Cintamani og gjafapakki frá Nutri- lenk, svo að liðirnir verði í lagi.“ Fjölbreytt dagskrá Sigurður verður þó ekki einn við bingóhjólið frekar en fyrri daginn. Hann er vanur að fá til sín góða gesti og það verður engin breyting þar á. Spurður að því hvaða gestir muni knýja dyra að þessu sinni stóð ekki á svörunum hjá Sigurði: „Við fáum til okkar góðan gest sem vakið hefur athygli fyrir hæfileika sína á lista- sviðinu undanfarið,“ segir hann. „Hann heitir Kristinn Arnar en kallar sig Krassasig og mun flytja fyrir okkur tvö lög. Ég hvet því fólk til þess að fara á mbl.is/bingo og ná sér í spjald fyrir kvöldið og vera með í gleðinni í kvöld.“ Morgunblaðið/Eggert Spenna í loftinu Siggi verður ekki einn við bingóhjólið í kvöld heldur fær hann til sín góðan gest venju samkvæmt. Veglegir bingóvinningar í kvöld hjá Sigga Gunnars  Spjaldtölvur, ferðavinningar, gjafabréf og margt fleira Morgunblaðið/Árni Sæberg Bingó Siggi mun stýra bingóinu af stakri snilld eins og hann er vanur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.