Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 5

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 5
Iðjuþjálfinn 1/20205 iðjuþjálfa sem starfa á vettvangi. Gaman er að geta þess að niðurstöður kannana opinberu háskólanna sýna að nemendur í iðjuþjálfunarfræði eru afar ánægðir með námið, þeim finnst þeir hafa öðlast meira sjálfstraust og telja að námið efli gagnrýna hugsun. Nemendurnir upplifa sig jafnframt meðvitaðri um eigin ábyrgð í samfélaginu og mikilvægi þess að fólk búi við jöfn tækifæri. Regluleg samvinna er á milli námsbrautarinnar og félagsins. Starfandi iðjuþjálfar eiga kost á að sækja símenntun við Háskólann á Akureyri og eru þeir eindregið hvattir til að nýta sér þann möguleika. ERLENT SAMSTARF Norrænn formannafundur var haldinn í byrjun september og var hann rafrænn á ZOOM. Formaður og varaformaður IÞÍ tóku þátt eins og venja er. Félögin miðluðu fréttum sín á milli og satt best að segja litaðist umræðan nokkuð af heimsfaraldrinum. Næsti formannafundur er ráðgerður í Danmörku í september 2021. Rætt var um skýrsluna sem kom út í vor um virði iðjuþjálfunar og hvatt til þess að félögin hefðu hana sýnilega á vefsíðum sínum. Í þessu blaði má einmitt finna stutta samantekt úr skýrslunni en hún er aðgengileg í heild sinni á heimasíðu IÞÍ. Ársfundur SJOT (Scandinavian Journal of Occupational Therapy) var haldinn í tengslum við formannafundinn. Í október var árlegur fundur Evrópuráði iðjuþjálfafélaga (COTEC), rafrænn að sjálfsögðu. Líkt og á norræna vettvanginum snerist umræðan töluvert um ástandið sem heimsfaraldurinn hefur skapað enda hraður vöxtur í tíðni smita í álfunni. Kosið var í stjórn COTEC þar sem tveir nýir fulltrúar mættu til leiks. VIÐBURÐIR Það er ljóst að heimsfaraldurinn setur okkur skorður og ýmsum viðburðum hefur verið frestað eins og Evrópuráðstefnu sem vera átti í Prag í lok september og fulltrúaþingi WFOT (World Federation of Occupational Therapists) sem vera átti fyrr á árinu. Við létum þó ekki deigan síga hjá félaginu og skelltum í hádegisfyrirlestur fyrr í haust þar sem iðjuþjálfar hjá Hugarafli kynntu starfsemina og hvernig þau höfðu aðlagað sig að breyttum tímum. Erindinu var streymt í beinni á fésbókinni og er aðgengilegt þar. Fræðslu- og kynningarnefnd hélt svo rafrænt málþing í tilefni af alþjóðlegum degi iðjuþjálfunar sem er 27 október ár hvert. Þemað í ár var „Reimagine doing“ eða „Að endurhugsa hversdaginn“ á íslensku. Það er alltaf mikilvægt að nýta tilefnið til að vekja athygli á faginu okkar og halda daginn hátíðlegan á vinnustöðum. Ég hvet iðjuþjálfa til að nota það markaðsefni sem félagið hefur látið útbúa um iðjuþjálfun og er að finna á fésbókarsíðu IÞÍ. Tilvalið er að deila myndböndunum hægri vinstri á samfélagsmiðlum. Við bendum einnig á heimasíðu félagsins www.ii.is. Ég vil að lokum nýta tækifærið hér og færa öllum félagsmönnum mínar bestu þakkir fyrir að sinna störfum sínum af kostgæfni og fagmennsku þrátt fyrir þær krefjandi aðstæður sem nú eru í samfélaginu. Það sannast enn og aftur að iðjuþjálfar eru sérfræðingar í að leita lausna og finna nýjar leiðir á hverjum degi. Við þurfum öll að endurhugsa hversdaginn, fara varlega, hlúa að okkur sjálfum og náunganum og muna að samstaðan er besta sóttvörnin. Góð kveðja, Þóra Leósdóttir 3.4. Iðjuþjálfi virðir hæfni, skyldur og ábyrgð annarra iðjuþjálfa. Komi upp faglegur ágreiningur skal iðjuþjálfi beita gagnrýni af sanngirni og reyna að miðla málum svo niðurstaða fáist með hagsmuni skjólstæðinga að leiðarljósi. Að vera fagmaður er hlutverk sem krefst margs af okkur. Siðareglur eru settar fram til að minna á ábyrgðina sem í því felst. Siðaregla 3.4 beinir sjónum að mikilvægu atriði, en það er virðing. Virðing kemur ekki af sjálfu sér, það þarf að tileinka sér hana, bæði í faglegu samstarfi og öðrum mannlegum samskiptum. Virðing er nátengd auðmýkt. Til að geta borið virðingu fyrir öðrum þarf að sýna viðhorfum þeirra og skoðunum skilning og auðmýkt. Virðing, auðmýkt og traust, allt spilar þetta saman þannig að við getum virt hæfni, skyldur og ábyrgð annarra iðjuþjálfa. Það sama á við ef um faglegan ágreining er að ræða. Það er mannlegt að finnast eigin skoðanir réttari en annarra en faghlutverkið krefst þess að við horfum á málin frá öðru sjónarhorni. Viðmiðið er alltaf skjólstæðingurinn, hans þarfir og hagsmunir. Með virðingu að leiðarljósi er okkur falið að vinna í þágu skjólstæðinga okkar í góðri samvinnu við samstarfsfólk. Guðrún Áslaug Einarsdóttir, formaður siðanefnar UMFJÖLLUN UM SIÐAREGLUR IÐJUÞJÁLFA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.