Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 51

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 51
Iðjuþjálfinn 1/202051 Meðalævilengd landsmanna fer ört hækkandi og á komandi áratugum mun hlutfall eldri íbúa hækka jafnt og þétt. Með vaxandi þekkingu og framförum hefur notkun á velferðartækni aukist í velferðarþjónustu með það að markmiði að efla öryggi og lífsgæði þjónustuþega. Slík þróun hefur alla burði til að hafa jákvæð og eflandi áhrif á heilsufar og möguleika fólks til þátttöku í samfélaginu og veitir einstaklingum tækifæri til að búa lengur á eigin heimili. Samhliða hækkun lífaldurs má búast við aukinni þörf á þjónustu í tengslum við aldurstengda sjúkdóma sem og minnissjúkdóma og því mikilvægt að vekja athygli á þjónustu við einstaklinga sem greinast með byrjunareinkenni heilabilunar. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar, er að fá innsýn í það ferli sem tekur við með áherslu á þörf fyrir velferðartækni, meðal annars um það hverjir sækja um þjónustuna, hverjir eru helstu tengiliðir og hverjir veita eftirfylgni. Leitast verður við að svara eftirfarandi spurningum: 1. Hvernig gengur þjónustuferlið fyrir sig þegar grunur vaknar um heilabilun, með áherslu á þörf fyrir velferðartækni? 2. Hver eru hlutverk mis- munandi fagstétta, þar á meðal iðjuþjálfa í þjónustu sem snýr að velferðartækni? Stuðst verður við eigindlegt rannsóknarsnið og vinnulag grundaðrar kenningar. Gagnaöflun fer fram með viðtölum þar sem notast verður við hálfopnar spurningar. Tekin verða viðtöl við deildarstjóra heimahjúkrunar og forstöðumann félagslegrar heimaþjónustu í níu bæjar- og sveitafélögum á landsvísu. Niðurstöður verða nýttar til að lýsa reynslu starfsmanna af þjónustuferli með áherslu á þarfagreiningu fyrir velferðartækni fyrir einstaklinga með byrjunareinkenni heilabilunar. Haft er að marki að nýta megi þá þekkingu sem hlýst með rannsókninni til eflingar velferðarþjónustu með velferðartækni á komandi árum. Lykilhugtök: velferðartækni, byrjunareinkenni heilabilunar, öldrunarþjónusta, iðjuþjálfun, heimaþjónusta Samantekt þessi er lokaverkefni til BS gráðu í iðjuþjálfunarfræðum frá Háskólanum á Akureyri. Markmið þess er að kanna hver áhrif notendastýrðrar persónulegrar aðstoðar (NPA) er á iðju þjónustu- notenda og þátttöku þeirra í samfélaginu. NPA er byggt á hugmynda- fræðinni um sjálfstætt líf en hún felur í sér að allir hafi rétt til að stjórna eigin lífi óháð skerðingum. NPA var lögfest á Íslandi 1. október 2018 en þjónustuformið gerir notendum kleift að stýra þjónustunni þar sem notandinn ræður hvaða aðstoð er veitt, hver veitir hana og hvar og hvenær hún fer fram. Markmið laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir er að veita sem bestu þjónustu og kostur er á og virða sjálfræði og sjálfstæði fatlaðs fólks. Vinnulag Arskey og O’Malley (2005) fyrir kögunaryfirlit (e.scoping review) var notað við framkvæmd samantektar á 17 rannsóknargreinum. Niðurstöður úr rannsóknargreinunum gáfu vísbendingu um að NPA hafi töluverð áhrif á tækifæri þjónustunotenda á þátttöku og iðju. Samantektin leiddi í ljós að NPA stuðlaði að aukinni við þátttöku eigin umsjá, í tómstundaiðju, sem og yki tækifæri fatlaðs fólks til atvinnu- og námsþátttöku, þó ákveðnir hnökrar virðast vera í tengslum við útfærslu og framkvæmd þjónustu.  Niðurstöður bentu einnig til að NPA hafi jákvæð áhrif á fjölskyldulíf notanda og veiti notendum meira sjálfræði, aukin lífsgæði og aukna sjálfsvirðingu.  Lykilhugtök: notendastýrð persónuleg aðstoð, NPA, iðja, þátttaka, mannréttindi Höfundur: Margrét Elva Sigurðardóttir, Leiðbeinandi: dr. Björg Þórðardóttir Höfundar: Díana Kristín Sigmarsdóttir, Hildur Hjartardóttir og Sylvía Halldórsdóttir, Leiðbeinandi: Sigrún Kristín Jónasdóttir Sylvía Díana Kristín Margrét Elva Hildur ÞEGAR GRUNUR VAKNAR UM HEILABILUN: ÞJÓNUSTUFERLI OG GREINING Á ÞÖRF FYRIR VELFERÐARTÆKNI ÁHRIF NOTENDASTÝRÐRAR PERSÓNULEGRAR AÐSTOÐAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.