Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 15

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 15
Iðjuþjálfinn 1/202015 sjúkdóma og geta mætt fólki með heilabilun af meiri skilningi. Það eykur síðan þátttöku fólks í samfélaginu. Ég er heilavinur af öllu hjarta Alzheimersamtökin hófu landsátak í febrúar 2020 og opnuðu vefinn www.heilavinur.is þar sem almenningur er hvattur til að taka þátt í að gera Ísland að styðjandi samfélagi fyrir fólk með heilabilun. Eliza Reid forsetafrú og verndari Alzheimersamtakanna varð fyrsti heilavinurinn á Íslandi. Með því að gerast heilavinur færðu aðgang að upplýsingum og fróðleik um heilabilun. Allir geta orðið heilavinir og það eina sem þarf að gera er að gefa til kynna að maður vilji auka þekkingu sína um heilabilun og vera tilbúinn til að sýna samhug og vinsemd. Því fleiri sem gerast heilavinir þeim mun meiri líkur eru á að einstaklingur með heilabilunarsjúkdóm upplifi sig velkominn í sínu samfélagi og finni fyrir öryggi. Heilavinaverkefnið snýst um að koma auga á einstaklinginn bak við verkefnið. Að þú takir virkan þátt í samfélaginu og bregðist við aðstæðum sem kunna að koma upp þar sem einstaklingur er í vanda og virðist ekki ráða við aðstæður, að þú réttir fram hjálparhönd og sýnir frumkvæði. Heilavinur ber lítið hjarta í barminum sem tákn um að hann sé tilbúinn að leggja sitt af mörkum í átt að styðjandi samfélagi fyrir fólk með heilabilun. Heilavinur getur sýnt samhug og vinsemd á margan hátt, til dæmis með að sýna þolinmæði og komið einstaklingi til hjálpar sem lendir í erfiðleikum í matvörubúð í að finna vörur, í biðröð á kassa eða þegar greiða á fyrir vörurnar. Sömuleiðis getur það birst í að koma viðkomandi til hjálpar ef einstaklingur ratar ekki heim og hefur villst af leið. Hugsa má það að vera heilavinur á svipaðan hátt og skyndihjálparnámskeið, maður kemur fólki í neyð til aðstoðar. Akureyrarbær – fyrsta styðjandi samfélagið á Íslandi Eitt af fyrstu skrefum innan verkefnisins var að útbúa fræðsluefni til að þjálfa leiðbeinendur víðs vegar um landið. Þeir munu að lokinni þjálfun dreifa út þekkingu um heilabilun í sinni heimabyggð. Fyrstu leiðbeinendanámskeiðin á Íslandi fóru fram í byrjun september 2020 á Akureyri og voru þau heilsdagsnámskeið þar sem leiðbeinendur fengu fræðslu um heilabilun og hvernig þeir gætu lagt sitt af mörkum til að breiða út þekkinguna. Námskeiðin voru auglýst á heimasíðu Alzheimersamtakanna og voru þau fyrstu af vonandi mörgum leiðbeinendanámskeiðum um land allt. Hlutverk leiðbeinenda er að hjálpa öðrum að öðlast meiri skilning um heilabilun og hvetja fólk í samfélaginu til að sýna samhug og vinsemd. Leiðbeinendur halda kynningarfundi þar sem þeir fræða um heilabilunarsjúkdóma og hvernig hægt er að hafa jákvæð áhrif á lífið í samfélaginu fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra. Engar sérstakar faglegar forsendur þarf til að gerast leiðbeinandi en það er ákveðinn kostur að hafa þekkingu á heilabilun. Mikilvægast er vilji og áhugi til að halda kynningarfundi og miðla til samfélagsins, til dæmis ættingja og vina, stofnana og vinnustaða og í nærumhverfinu. Kynningarfundir sem leiðbeinendur halda eru um 45–60 mínútur og leiðbeinandi fær kynningarefni og leiðbeinandahandbók frá Alzheimersamtökunum. Ef stofnun óskar eftir að fá kynningarfund um heilabilun og helmingur starfsmanna mætir á fræðslufundinn þá fær fyrirtækið viðurkenningarskjal og getur kallað sig „Við erum heilavinir“. Mælt er með að hengja skjalið á áberandi stað í fyrirtækinu þar sem allir geta séð að hér er fyrirtæki sem er styðjandi fyrir fólk með heilabilun. Leiðbeinendur hvetja einnig alla innan fyrirtækisins að gerast heilavinir og skrá sig á www.heilavinur.is. Samstarf Alzheimersamtakanna og ÖA lýkur í lok ársins 2020 varðandi þetta fræðsluverkefni og þá taka leiðbeinendur við. Leiðbeinendurnir halda tengslum við samtökin og geta leitað eftir efni og upplýsingum ef þess er þörf. Fræðsluefni sem var útbúið í samstarfi við ÖA nýtist á öllu landinu og Alzheimersamtökin hafa hug á að hefja samstarf við fleiri samfélög og gera allt Ísland að styðjandi samfélagi fyrir fólk með heilabilun. Markmiðið er: Vinur fyrir hvern einstakling með heilabilun Huga þarf að þörfum fólks með heilabilun. Hinn veiki þarfnast huggunar, til dæmis umhyggju, nærveru, linunar sársauka, angistar og sorgar. Hann þarf að upplifa öryggi og ró í samskiptum við aðra. Hann þarfnast annarrar manneskju, hvort sem það er maki eða umönnunaraðili sem sér um að halda heildaryfirsýn því hann sjálfur ræður ekki við það.Tengslamyndun er mikilvæg til að finna fyrir öryggi. Einnig er þar sálfélagsleg þörf að finna að tilheyra hóp og vera hluti af einhverju stærra og meira. Hinn veiki hefur þörf fyrir að taka þátt í virkni sem hefur tilgang fyrir hann og þar sem hann getur nýtt eigin úrræði og krafta sem byggjast á hans eigin lífssögu. Að hafa óbrotna sjálfsímynd, að vita hver maður er og geta deilt því með öðrum er mikilvægur hluti af okkur sem manneskjum. Leggjum okkar af mörkum, breiðum út þekkingu um heilabilun og hjálpumst að við að brjóta niður þá fordóma sem fylgja greiningu. Tökum virkan þátt í að hjálpa fólki með heilabilun og aðstandendum þeirra til að eiga innihaldsríkt líf þar sem samfélagið mætir þeim af virðingu, skilur vanda þeirra og aðstoðar eftir fremsta megni, því með stuðningi er hægt að lifa innihaldsríku lífi þrátt fyrir sjúkdóm. Með ykkar hjálp tekst okkur að finna heilavini víðs vegar um landið og vinna markvisst að því að mæta þörfum fólks með heilabilun og aðstandenda þeirra. Markið er sett á að safna 5000 heilavinum – vini fyrir hvern einstakling með heilabilun. Farðu á www.heilavinur.is og skráðu þig, þetta kostar ekki neitt og eykur þátttöku þína í samfélaginu og vitneskju um heilabilunarsjúkdóma. Vertu með, þitt framlag skiptir máli! Ef þú vilt fræðast meira um heilabilun þá eru Alzheimersamtökin með öfluga heimasíðu www.alzheimer.is og erum einnig á Face- book og Instagram: Alzheimersamtokin. Heilavinaverkefnið er á www.heilavinur.is og Facebook og Insta- gram: Heilavinur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.