Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 44

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 44
44Iðjuþjálfinn 1/2020 GREIN Arndís Jóna Guðmundsdóttir, iðjuþjálfi á LSH Landakoti The MMSE (Mini-Mental State Evaluation) eða Mat á vitrænni getu er 30 atriða próf sem er notað víða í öldrunarþjónustu. Á legudeildum Landspítala og annars staðar í heilbrigðis- og velferðarþjónustu hafa iðjuþjálfar séð um að leggja prófið fyrir. Nokkrar útgáfur af spurningalistanum og leiðbeiningum hafa verið gerðar á íslensku gegnum tíðina og því hefur ekki verið um samræmda fyrirlögn að ræða. Hópur iðjuþjálfa á Landspítala unnu að því að samræma fyrirlögn og fyrirgjöf á matstækinu haustið 2016, en hópinn skipuðu fulltrúar frá þeim starfsstöðum spítalans sem mest nota MMSE í sínu starfi. Markmið verkefnisins var að samræma og auka áreiðanleika fyrirlagnar og stigagjafar, til að draga úr og fækka vafaatriðum. Strax við upphaf verkefnisins varð ljóst að bæði var munur á fyrirlögn og fyrirgjöf milli starfseininga en einnig milli matsmanna innan hverrar einingar spítalans. Fljótlega komu fleiri að þessari vinnu og iðjuþjálfar af dagþjálfun Eirar, hjúkrunarheimilum Eirar, Skjóls og Hamra bættust í hópinn. Nefndin leitaði heimilda um matstækið en einnig voru leiðbeiningarnar unnar upp úr banda rískum leiðbeiningabæklingi matstækisins, MMSE Mini-Mental State Examination. Clinical guide. Stuðst var við aðrar heimildir, m.a. til að staðfæra svör við spurningum um áttun á stað og tíma en fyrst og fremst var lögð áhersla á fylgja bandarísku leið beiningunum. Í júlí 2018 voru gefnar út leiðbeiningar og endurbætt eyðublað. Útgáfan var kynnt á starfsstöðum nefndarmeðlima, iðjuþjálfasíðum á Facebook og á Minnismóttöku Landspítala. Eftir notkun í nokkurn tíma bárust athugasemdir við leiðbeiningarnar. Þær voru teknar til skoðunar auk þess sem hjúkrunarfræðingur og sálfræðingar á Minnismóttöku Landspítala komu til álitsgjafar, en að því loknu var ekki tekið við fleiri athugasemdum. Lokaútgáfa leiðbeininganna kom út í lok árs 2019, ellefu blaðsíðna skjal sem inniheldur leiðbeiningar, matsblað og hjálpargögn þar sem leitast var við að uppfylla ofangreint markmið; að samræma fyrirlögn og stigagjöf við notkun matstækisins MMSE í íslenskri heilbrigðisþjónustu. Iðjuþjálfadeild Land- spítala, Eirar, Skjóls, Hamra og Minnismóttaka Landspítala hafa tekið leiðbeiningarnar til notkunar. Leiðbeiningarnar hafa verið samþykktar sem klínískar leiðbeiningar hjá Embætti Landlæknis og hægt er að nálgast þær á heimasíðunni landlaeknir.is – útgefið efni og skrifa „mmse“ í leitarvélina. Nefndina sátu Anna Ingileif Erlendsdóttir Arndís Jóna Guðmundsdóttir Elísabet Unnsteinsdóttir Eva Hagalín Jónsdóttir Fjóla Baldursdóttir Lilja Ingvarsson KYNNING Á NÝJUM LEIÐBEININGUM MMSE Arndís Jóna MMSE próf til að meta vitræna getu Nafn: _______________________________ Kennitala: ____________________________ Dagsetning: __________________________ Matsmaður: __________________________ Þýtt og staðfært úr MMSE Mini-Mental State Examination Clinical Guide Iðjuþjálfar á Landspítala, Eir og Skjóli 2019 Hæsta skorun Fjöldi stiga ÁTTUN 1. Hvaða dagur er í dag? Ár 1 __ árstíð 1 __ mánuður 1 __ vikudagur 1 __ mánaðardagur 1 __ 2. Hvar erum við? land 1 __ landshorn/hluti 1 __ bæjar/sveitarfélag 1 __ spítali/stofnun/gata 1 __ deild/hæð 1 __ NÆMI 3. „Hlustaðu nú vel. Ég ætla að nefna þrjú orð. Þú átt að endurtaka þau eftir mér. Ertu tilbúin/n?“ Buxur, epli, glas Eða ef endurmat: Tré, bók, hestur „Endurtaktu nú orðin eftir mér“. Eitt stig fæst fyrir hvert rétt svar í fyrstu tilraun. Nefnið hlutina aftur uns viðkomandi hefur lært alla 3 hlutina. Teljið fjölda skipta sem þarf og skráið hér ___ „Leggðu nú þessi orð á minnið, ég mun spyrja þig um þau aftur á eftir“. 3 __ ATHYGLI OG REIKNIGETA 4. (a) „Nú bið ég þig að draga 7 frá 100 og segja mér útkomuna. Haltu síðan áfram að draga 7 frá hverri útkomu þar til ég segi þér að stoppa. Hvað er 100 mínus 7?“ (93, 86, 79, 72, 65) Eitt stig fyrir hvert rétt svar. (b) „Stafaðu orðið kvöld. Stafaðu það síðan aftur á bak“. Gefið er stig fyrir stafi á réttum stað. 5 __ Hæsta skorun Fjöldi stiga MINNI 5. Spyrjið eftir orðunum þremur. Eitt stig fyrir hvert rétt svar. 3 __ MÁL 6. Látið viðkomandi nefna penna og úr. 2 __ 7. „Endurtaktu eftirfarandi: „Hvað sem tautar nú og raular“. 1 __ 8. „Fylgdu þessari fyrirskipun: Taktu blaðið í hægri hönd, brjóttu það í tvennt og láttu það detta á gólfið“. Einnig má biðja viðkomandi að setja blaðið á borð. Eitt stig fæst fyrir hvert þrep. 3 __ 9. Sýnið viðkomandi setninguna Lokaðu augunum og segið: „Lestu textann og gerðu það sem stendur“. 1 __ Spurningum 10 og 11 skal svarað á baksíðu. Brjótið blaðið í tvennt, verkefni 10 skal svara á annan helming en verkefni 11 á hinn. Hafið aðeins eitt verkefni sjáanlegt í einu. 10. „Skrifaðu setningu“ Eitt stig fyrir setningu sem inniheldur bæði sagnorð og nafnorð 1 __ 11. „Líktu eftir fyrirmynd“ 1 __ Samtals ____ stig af 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.