Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 16

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 16
16Iðjuþjálfinn 1/2020 Hulda Þórey Gísladóttir, iðjuþjálfi og verkefnastjóri við Heilbrigðis- vísindasvið Háskólans á Akureyri Ásta Snorradóttir, lektor í starfsendurhæfingu við Félagsvísindasvið Háskóla Íslands Kristjana Fenger, lektor í iðjuþjálfunarfræði við Heilbrigðisvísindasvið Háskólans á Akureyri RITRÝND FRÆÐIGREIN ATVINNUÞÁTTTAKA FÓLKS MEÐ SKERTA STARFSGETU: SJÓNARHORN STJÓRNENDA Á VINNUMARKAÐI KristjanaHulda Þórey Ásta ÚTDRÁTTUR Bakgrunnur: Ávinningur fólks af þátttöku á vinnumarkaði er margþættur en vinnan skapar ákveðna félagslega stöðu og veitir tækifæri til að afla lífsviðurværis. Vaxandi fjöldi fólks er útilokaður frá vinnumarkaði vegna skertrar starfsgetu. Stjórnendur á vinnumarkaði eru lykilaðilar þegar kemur að möguleikum fólks með skerta starfsgetu til atvinnuþátttöku en skortur er á rannsóknum þar sem sjónarhorn þeirra er skoðað. Tilgangur: Tilgangur rannsóknarinnar var að varpa ljósi á þætti sem hafa áhrif á afstöðu stjórnenda á vinnustöðum til þess að hafa fólk með skerta starfsgetu í vinnu. Í rannsókninni er leitast við að greina bæði hvata og hindranir sem stjórnendur standa frammi fyrir við ráðningu fólks með skerta starfsgetu og við að hafa slíkt starfsfólk í vinnu. Aðferð: Rannsóknin var eigindleg og gögnum safnað með viðtölum við 14 stjórnendur ólíkra vinnustaða. Stuðst var við vinnulag grundaðrar kenningar við öflun og greiningu gagna. Niðurstöður: Aðstæður í fyrirtækjum og tengsl við kerfi og stofnanir höfðu ýmist hvetjandi eða letjandi áhrif á afstöðu stjórnenda til að hafa fólk með skerta starfsgetu í vinnu. Hvetjandi var þegar ávinningur starfsmanns og vinnuveitanda fór saman, vinnuveitandi vildi sýna samfélagslega ábyrgð, hann hafði fastan tengilið í kerfinu og fékk laun starfsmanns endurgreidd frá ríkinu. Það reyndist áskorun að velja verkefni, aðlaga störf eða starfsumhverfi að getu starfsmanns, veita stuðning við hæfi og átta sig á skipulagi kerfisins og hlutverkum mismunandi stofnana. Helstu hindranir voru krafa um arðsemi og lágan rekstrarkostnað, aukið álag á samstarfsfólk og sértækar reglur. Ályktun: Opinber þjónusta ýtir undir aðgengi að störfum fyrir fólk með skerta starfsgetu. Samvinna á milli fagfólks þjónustukerfisins og atvinnurekenda er mikilvæg sem og opinber stuðningur en töluvert vantar upp á að hún sé í skipulögðum farvegi og upplýsingaflæði og nauðsynlegur stuðningur fyrir hendi. Brýnt er að mótuð verði stefna í málaflokknum þar sem meðal annars er áhersla á þessa samvinnu og ábyrgð bæði atvinnurekenda og fagfólks. Lykilorð: Atvinnuþátttaka, skert starfsgeta, sjónarmið stjórnenda, eigindleg viðtalsrannsókn, starfsendurhæfing. ABSTRACT Background: The potential benefit of a person’s participation in the labour market is multi-faceted as employment shapes people´s social status and offers them the opportunity to earn their living. A growing number of people are excluded from the labour market due to reduced work capacity. Not having opportunities to participate in the labour market has been related to poorer health and lower social status for individuals, as well as increased costs for the society. Managers are key persons in providing opportunities for this group to participate in the labour market. However, in Iceland, there is a lack of research on managers’ perspective concerning this issue. Purpose: The purpose of this study is to shed light on factors that influence managers’ perspective towards employing individuals with reduced work capacity. The study seeks to identify both the incentives and obstacles that managers face when hiring and keeping employees with reduced work capacity. Methods: In this qualitative research, data was collected through interviews with fourteen managers from different workplaces. The grounded theory approach was applied when collecting and
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.