Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 48

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 48
48Iðjuþjálfinn 1/2020 ÁGRIP ÚTSKRIFTARNEMA 2019 Höfundar: Margrét J. Sigurðardóttir, Hildur Sverrisdóttir og Bára Lind Hafsteinsdóttir Leiðbeinandi: Kristjana Fenger Höfundar: Kolbrún Halla Guðjónsdóttir, Bylgja Þrastardóttir og Eva Snæbjarnardóttir, Leiðbeinandi: Sonja Stelly Gústafsdóttir Fjöldi ungs fólks sem ekki er í vinnu, námi né starfsþjálfun hefur vaxið mikið seinustu ár. Staða þessa hóps, sem kallast NEET (Not in Employment, Education or Training) er áhyggjuefni um gjörvalla Evrópu en áhrif og afleiðingar NEET stöðunnar eru miklar, bæði fyrir unga fólkið sjálft og samfélagið í heild. Staða hópsins hefur lítið verið rannsökuð hérlendis en þær rannsóknir sem til eru hafa helst beinst að brottfalli, skólagengi og félagslegri stöðu. Engin íslensk rannsókn hefur skoðað hvernig iðjusaga hópsins hefur þróast í gegnum tíðina. Þessi rannsókn leitast við að gera úrbætur þar á og er tilgangur hennar að fá mynd af því hvað einkennir iðjusögu ungs fólks sem hvorki er í námi né vinnu. Eftirfarandi rannsóknarspurning leiðir rannsóknina: Hvað einkennir iðjusögu ungs fólks sem hvorki er í námi né vinnu? Til að svara rannsóknar- spurningunni verður notast við blandað rannsóknarsnið. Gagna verður aflað með hálfbundnum viðtölum við 30 skjól- stæðinga Vinnumálastofnunar sem valdir eru tilgangsbundið, ungt fólk á aldrinum 16-29 ára sem hvorki eru í námi né vinnu. Stuðst verður við viðtalsramma matstækisins Iðjusaga (OPHI-II) Viðtölin verða hljóðrituð og afrituð orðrétt. Gögnin verða fyrst metin á kvarða matstækisins Iðjusögu, slegin inn í SPSS og greind með lýsandi tölfræði. Síðan verða þau þemagreind. Að því loknu verða tekin aftur viðtöl við 4-5 þátttakendur til að ná aukinni dýpt og þemagreiningin endurskoðuð. Í lokin verða niðurstöður beggja að- ferða skoðaðar, bornar saman og samþættar. Lykilhugtök: Ungt fólk, NEET, iðjusaga, brotthvarf, starfshlutverk, nemahlutverk Rannsóknaráætlun þessi er hluti af stærri rannsókn sem ber heitið Heilsufar og vellíðan eldra fólks á Norðurlandi. Hefur búseta eldra fólks ≥ 65 ára, í þéttbýli eða dreifbýli, áhrif á heilsufar og vellíðan? Eldri íbúum fer hratt fjölgandi, því er mikilvægt að huga m.a. að heilsueflingu. Umhverfisþættir hafa áhrif á hlutdeild í heilsueflingu t.a.m. búsetuskilyrði, aðgengi að úrræðum, félagslegur stuðningur og veðurfar. Því þarf að skapa umhverfi sem auðveldar þeim að viðhalda færni, heilsu og vellíðan. Tilgangur fyrirhugaðrar rann- sóknar er að afla upplýsinga frá íbúum 65 ára og eldri á Norðurlandi um hvaða þættir í umhverfinu hafa áhrif á hlutdeild þeirra í heilsueflingu. Einnig hvaða umhverfisþætti íbúar telja þurfa að vera til staðar til að efla þátttöku þeirra í heilsueflingu. Því verður leitað svara við eftirfarandi rannsóknarspurningum: Hvernig upplifa íbúar 65 ára og eldri á Norðurlandi áhrif umhverfisþátta á hlutdeild þeirra í heilsueflingu? Hvað þarf að vera til staðar til að íbúar 65 ára og eldri á Norðurlandi upplifi hlutdeild sína í heilsueflingu sterkari? Rannsóknin verður eigindleg þar sem gögnum verður aflað með opnum viðtölum við að lágmarki 20 manns. Notast verður við tilgangsbundið úrtak úr stærri rannsókn til þess að fá sem fjölbreyttastan hóp þátttakenda með ólíka reynslu. Forsendur fyrir þátttöku eru að vera 65 ára eða eldri, búa heima á Akureyri, Þingeyjarsýslu og Skagafirði. Þátttakendur verða valdir eftir kyni, aldri, búsetu, tekjum, samgöngumáta, félagslegri stöðu og hjálpartækjanotkun. Greining gagna mun fara fram með eigindlegri innihaldsgreiningu. Hagnýtt gildi rannsóknarinnar er að komast að því hvernig hægt er að skapa aðstæður og umhverfi sem gerir eldri einstaklingum á Norðurlandi kleift að viðhalda eða efla hlutdeild sína í heilsueflingu á þeirra forsendum. Upplýsingarnar sem koma frá íbúunum verður einnig hægt að nota til stefnumótunar á þjónustu við eldri einstaklinga. Lykilhugtök: Áhrif umhverfis, heilsuefling, hlutdeild, eldri íbúar, upplifun. Kolbrún Halla, Bylgja og Eva Hildur Bára LindMargrét IÐJUSAGA UNGS FÓLKS SEM HVORKI ER Í NÁMI EÐA VINNU ÁHRIF UMHVERFIS Á HLUT- DEILD Í HEILSUEFLINGU. UPPLIFUN ELDRI ÍBÚA Á NORÐURLANDI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.