Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 14
14
GREIN
Iðjuþjálfinn 1/2020
Sigurbjörg Hannesdóttir,
fræðslustjóri Alzheimersamtakanna
Ég heiti Sigurbjörg Hannesdóttir, er iðjuþjálfi og hóf störf sem
fræðslustjóri Alzheimersamtakanna í lok júní 2019. Verkefnið
„Styðjandi samfélag“ var eitt af fyrstu verkefnum mínu í starfi hjá
samtökunum. Ég er verkefnastjóri fyrir hönd Alzheimersamtakanna
í fræðsluverkefninu Heilavinur af öllu hjarta – Styðjandi samfélag
fyrir fólk með heilabilun og mig langar að kynna það nánar í þessari
grein.
FRÆÐSLUVERKEFNIÐ HEILAVINUR AF ÖLLU HJARTA –
STYÐJANDI SAMFÉLAG FYRIR FÓLK MEÐ HEILABILUN
Viljayfirlýsing um frekara samstarf við Öldrunarheimili Akureyrar
(ÖA) var undirrituð 2018 og undanfarin ár hafa ÖA og
Alzheimersamtökin unnið saman að ýmsum verkefnum á sviði
almennrar fræðslu, ráðgjafar og stuðnings við fólk með heilabilun
og aðstandendur þeirra. Viljayfirlýsingin staðfesti áframhaldandi
samstarf um uppbyggingu náms og námskeiða fyrir almenning og
fagfólk, að bjóða til samverustunda, Alzheimerkaffis og fræðslu- og
hópastarfs líkt og hefur verið haldið í húsakynnum ÖA.
Undirbúningur til að gera Akureyrarbæ að fyrsta „Styðjandi
samfélagi fyrir fólk með heilabilun“ hófst 2018 og fræðslustarfsemin
var innleidd 2019–2020. Styðjandi samfélag gerir fólki með
heilabilun kleift að lifa í samfélagi sem skilur stöðu þess og mætir
því af virðingu. Markmiðið með fræðsluverkefninu er meðal annars
að draga úr fordómum varðandi heilabilunarsjúkdóma. Að tala
opið um sjúkdóminn auðveldar fjölskyldumeðlimum og vinum að
bjóða fram aðstoð sína og gerir einstaklingnum auðveldara að
þiggja ráðleggingar og aðstoð sem nærumhverfið býður upp á. Það
er ekki endilega hægt að sjá á fólki að það þjáist af
heilabilunarsjúkdómi og með fræðsluverkefninu er ætlunin að
auka þekkingu fólks um heilabilunarsjúkdóma. Engin
læknismeðferð er til við heilabilunarsjúkdómum og orsökin er ekki
þekkt. Hins vegar er margt vitað um áhrif heilabilunarsjúkdóma á
daglegt líf þeirra sem hlut eiga að máli. Þessi vitneskja er gulls ígildi
þegar skipuleggja á líf með heilabilun og hjálpar nærumhverfinu að
mæta einstaklingnum af skilningi. Ekki er vitað hversu margir á
Íslandi lifa með heilabilun í daglegu lífi en talið er að það sé um
fjögur til fimm þúsund manns og þar af um það bil 250 manns undir
65 ára aldri. Ef fjölda aðstandenda er bætt við má margfalda þessar
tölur og því er tala þeirra sem daglega kljást við heilabilun mörgum
sinnum fleiri.
Meginreglur styðjandi samfélags eru að fólk með heilabilun sé hluti
af samfélaginu, taki þátt og þekki réttindi sín. Umhverfið og
félagslegar aðstæður þurfa að gera ráð fyrir og meðtaka þarfir fólks
með heilabilun til að styðja við að fólk geti átt innihaldsríkt líf í
samfélaginu. Félög og fyrirtæki í samfélaginu þurfa að taka mið af
og svara þörfum fólks með heilabilun. Félagslegar breytingar
krefjast samstarfs á öllum sviðum, hjá stjórnvöldum, félaga-
samtökum og fleirum. Allt þetta styrkir fólk með heilabilun til að
taka þátt félagslega og vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Þetta
eykur einnig aðgang að umönnun, þjónustu og skilningi í
samfélaginu. Á heimsvísu er gert ráð fyrir verulegri fjölgun fólks
með heilabilun ef helstu spár ganga eftir. Samkvæmt WHO eru nú
þegar um 48 milljón manns í heiminum með heilabilunarsjúkdóm
og ár hvert bætast við um 8 milljónir tilfella. Á Íslandi er gert ráð
fyrir verulegri fjölgun í elstu aldurshópunum og með hækkandi
aldri aukast líkurnar á að þróa með sér heilabilunarsjúkdóm, þó
heilabilun sé ekki eðlilegur fylgifiskur öldrunar.
Innleiðing fræðsluverkefnis
Fræðsluverkefnið er annars vegar landsátakið „Ég er heilavinur af
öllu hjarta“ þar sem almenningur fær aukna fræðslu og er virkjaður.
Hins vegar er samstarf við sveitarfélög um að gera þau að „Styðjandi
samfélagi fyrir fólk með heilabilun“ þar sem meðal annars stofnanir
og fyrirtæki innan sveitarfélagsins fá fræðslu um heilabilunar-
Sigurbjörg
Diagram courtesy of Alzheimer’s Australia, af heimasíðunni https://www.alz.co.uk/dementia-
friendly-communities/principles (þýtt af Halldóri Sigurði Guðmundssyni 2019).
HEILAVINUR
AF ÖLLU HJARTA