Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 41

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 41
Iðjuþjálfinn 1/202041 Implementing Authentic Occupational Therapy Services”. Hún hóf námskeiðið með því að spyrja spurninga sem finna má í bókinni Powerful Practice: A model for Authentic Occupational Therapy. Spurningarnar voru til þess gerðar að fá okkur þátttakendurna til að skoða okkar fagímynd, hlutverk og skilning annarra á okkar fagi. Spurningar á borð við: Átt þú erfitt með að gera (á þínum vinnustað) það sem þér finnst að iðjuþjálfar eigi að gera? Vilja aðrir í teyminu þínu að þú gerir það sem þeir vilja, frekar en það sem þú vilt? Þegar Anne fór í gegnum þessar spurningar og las þær upphátt var ég farin að standa mig að því að rétta nánast alltaf upp hönd og kinka kolli. Ég hef ótal dæmi sem ég gæti talið upp um það sem mér finnst vera þekkingarleysi annarra á faginu. Fagaðili stoppaði mig eitt sinn og segir við mig: „Heyrðu Gullveig, einstaklingnum á stofu 24 leiðist getur þú ekki fundið eitthvað fyrir hana að gera, púsla eða eitthvað?“ Ég varð alveg orðlaus. Hingað til hafði ég lítið sem ekkert mátt koma að málum þessa einstaklings en úr því viðkomandi „leiddist“ í legunni þá mátti ég fá það hlutverk að finna fyrir viðkomandi eitthvað til að drepa tímann. Vá hvað mér fannst ég ekki metin að verðleikum. Hvaða starfsmaður í húsinu sem er hefði getað gengið inn á deildina og boðið viðkomandi afþreyingu. Ekki misskilja mig, jú auðvitað er okkar hlutverk að aðstoða fólk við að finna afþreyingu/viðfangsefni sem hefur þýðingu og gildi fyrir einstaklinginn. Hefði ég í upphafi mátt koma að málum viðkomandi með mati og íhlutun þá hefði viðkomandi líklega haft eitthvað fyrir stafni. Hver veit, mögulega hefði viðkomandi geta verið útskrifaður á þessum tímapunkti. Ég hef oftar en einu sinni svarað þessari spurningu frekar fýlulega, jafnvel móðgandi: „veistu nei ég er ekki „leiðindaþjálfi“ og nú í seinni tíð fylgir með „en hvað gæti viðkomandi hugsað sér að gera?“ Einnig mætti mögulega líta á þessar aðstæður sem tækifæri til fræðslu. Anne Fisher minnti okkur á að hafa iðjuna í forgrunni. Að vera iðjumiðuð (e. Occupation centerd) bæði í grunnin ( Occupation based) og með iðjusýn að leiðarljósi (occupation focused) og horfa gagnrýnið á þau matstæki og íhlutunarleiðir sem við notum. Einnig minnti hún á að Top – down/“true top-down“ rökleiðsla sé forsenda skjólstæðingsmiðaðs starfs. Við ættum að byrja að safna upplýsingum um styrkleika og aðstæður einstaklings og tilgreina iðjuvanda. Því næst gera framkvæmdagreiningu (leggja fyrir mat, skilgreina og túlka niðurstöður) og einungis ef þörf er á, að meta þá líkamsstarfsemi. Að detta ekki í „Bottum -Up“ eða „top - to Bottom -Up“ gryfjuna að „þjálfa þessa ákveðnu hendi“ og horfa einungis „á hendina“ sem „vandamál“ án þess að vinna með iðjuvanda eða setja iðjumiðuð markmið. Er raunhæft að vinna með hendina á þessum tímapunkti eða ættum við að skoða hvernig einstaklingurinn getur sinnt þeirri iðju sem hann þarf og/eða vill geta stundað burt séð frá ástandi handarinnar eða væntingum annarra sem að skjólstæðingnum koma. Ég hef verið spurð að því af tveimur aðilum annarra fagstétta hvers vegna ég geti ekki bara hitt „einstaklinginn“ og tekið „hann“ beint í „þjálfun“. Þar sem í tilvísuninni kæmi fram hverskonar „þjálfun“ viðkomandi þyrfti. Eins og við vitum þá er lífið ekki fullkomið og beiðnirnar aldrei svo ítarlegar að fram komi iðjuvandi viðkomandi auk markmiða og íhlutunaráætlunar. Þótt jú stundum fáum við fyrir fram upplýsingar um að barn sé með fínhreyfivanda en það eitt getur alveg verið nokkuð víðtækt. Ef ég myndi leggja af stað í vinnu með einstakling án þess að hafa lagt mitt faglega mat á aðstæður, án þess að hafa nokkuð í höndunum með það hvaðan við erum að koma, hvernig vitum við þá hvert á að taka stefnuna og hvenær markmiðum er náð? ÞAÐ ER MIKILVÆGT Í ÞESSU SAMHENGI AÐ ÞJÓNUSTAN SÉ MARKVISS Mér finnst einnig mikilvægt í þessu samhengi að fólk festist ekki í þjálfun hjá okkur af því að „samfélgið“ telur viðkomandi eiga rétt á „þjónustu“ iðjuþjálfa. Mikilvægt að hafa þjónustuferli til að fylgja. Þegar markmiðum hefur verið náð, lengra er ekki komist í þjálfun og ekkert er eftir nema útskrift, erum við þá að vinna að vilja og væntingum skjólstæðingsins eða annarra í samfélaginu? Erum við að vinna að „viðhaldsmeðferð“ á grundvelli iðjuvanda eða líkamsstarfsemi? Á þessum tímapunkti er mikilvægt að geta klárað að skrifa kaflann og loka bókinni. Nú veit ég ekki hvort aðrir iðjuþjálfar kannist við það sem ég fjalla um hér að ofan. Tilgangur þessa pistils er einungis að draga fram vangaveltur mínar um mikilvægi þess að við nálgumst verkefni okkar út frá hugmyndafræði iðjuþjálfa, höfum gagnrýna hugsun að leiðarljósi og séum dugleg að tala um og kynna fagið okkar út á við. Ramminn sem við vinnum eftir er stundum óskýr og mér finnst mikilvægt að geta teygt mig út fyrir hann og hafa rými til sköpunar. Það er mín skoðun að sama hvað ég fæst við og hvernig ég vinn mína vinnu þá vinn ég alltaf út frá því að vera iðjuþjálfi eins og ég menntaði mig til og er stolt af. Þó hugmyndir annarra um fagið séu á ýmsa vegu þá er mikilvægt að ég viti og haldi í hvaðan ég kem og hvert ég stefni. Að hugmyndir annarra sem ekki þekkja til mín eða fagsins og meta mig ekki að verðleikum móti mig ekki um of. Mig langar í lokin að fagna tillögunni um endurhæfingarstefnu sem kom frá heilbrigðisráðuneytinu. Þar sem fram kom að auka þyrfti Þverfaglega teymisvinnu í endurhæfingu. Við útskrift bjóst ég við því að þverfagleg teymisvinna væri komin lengra innan heilbrigðisstofnanna sérstaklega á landsbyggðinni. Ég tel að með bættri þverfaglegri vinnu aukist þekking á faginu, en þá er jafnframt mikilvægt fyrir okkur að halda í okkar sterka fagsjálf og geta sýnt öðrum hvað í okkur býr. HEIMILDIR: Kristjana Fenger og Guðrún Pálmadóttir. (2011). Iðja og heilsa. Í Guðrún Pálmadóttir og Snæfríður Þóra Egilson (Ritstjórar), Iðja, heilsa, velferð: Iðjuþjálfun í íslensku samfélagi (bls. 21-36). Háskólinn á Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.