Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 38

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 38
38 GREIN Iðjuþjálfinn 1/2020 Guðrún Heiða Kristjánsdóttir Fertug útskrifaðist ég sem iðjuþjálfi og þurfti að tileinka mér nýja hugsun og horfa á lífið frá öðru sjónarhorni þar sem ég hafði unnið á sjúkrastofnunum árum saman þar sem læknisfræðilega sjónarmiðið var alls ráðandi. Fyrstu fimm árin mín sem iðjuþjálfi starfaði ég sem deildarstjóri í dagþjónustu fyrir aldraða hjá Akureyrarbæ. Það reyndust mér reynslurík ár og ég lærði mikið m.a. um stöðu eldra fólks. Meðalaldurinn var hár og því glímdi fólk við alls kyns iðjuvanda sem fylgir hækkandi aldri. Erfiðast og hvað mest slítandi fannst mér að senda fólk heim sem ekki var fært um að sjá um sig sjálft en biðlistar inn á dvalar- og hjúkrunarrými voru langir. Ég hóf nám á meistarastigi í heilbrigðisvísindum með áherslu á öldrun og heilbrigði við Háskólann á Akureyri árið 2014. Meðfram því vann ég í þjónustukjörnum og sambýlum fyrir fólk með fötlun hjá Akureyrarbæ. Megin áhersla í starfi mínu er að styðja við einstaklinga, að þeir lifi eins sjálfstæðu og innihaldsríku lífi sem þeim er unnt og haldi virðingu sinni óskertri. Himinn og haf skilur á milli stöðu aldraðra og réttindum fatlaðra og úr því þarf að bæta. Í byrjun árs 2018, þá fimmtug, lenti ég í örmögnun sem ég er enn í dag að takast á við. Reynslan við það að „lenda hinum megin við borðið“ varð mér dýrkeypt en í senn dýrmæt. Í rúm 2 ár gat ég ekki unnið, stóð hreinlega ekki undir sjálfri mér og þurfti á þjónustu Virk að halda í endurhæfingarferlinu. Í dag er ég í 40% starfi sem iðjuþjálfi á sama stað og áður og ætla að ljúka rannsókninni minni sem fjallar um heilsulæsi eldra fólks á Íslandi. Mér er mjög umhugað um stöðu aldraðra. Mín réttlætiskennd segir að barátta þeirra sé rétt að hefjast þannig að þeir geti lifað sjálfstæðu og innihaldsríku lífi og haldið virðingu sinni ævina á enda. Helga Ólafsdóttir Ég hef starfað í Hlutverkasetri frá útskriftinni 2008. Tók smá beygju í 2 ½ ár þar sem ég vann sem sérkennari á leikskólanum Aðalþingi, sem var afar gefandi og skemmtilegt. Hlutverkasetur kallaði samt í mig og ég finn mig vel á þeim stað. Þar fæ ég að nýta mína styrkleika og sjá fólk blómstra á eigin forsendum í mismunandi iðju. Fjölbreytileikinn og andinn á staðnum höfðar svo til iðjuhjartans og ég á margt eftir sem ég vil prófa mig áfram með. Ég er mjög ánægð að hafa valið að læra iðjuþjálfun, ég passa við það eins og flís við rass. Meðfram starfinu mín hef ég kennt Zumba fyrir börn og fullorðna á þurru landi sem í sjó. Það er gott að hrista skrokkinn reglulega sem ég elska. Ég er enn með sama gæjanum sem ég kynntist þegar ég var fyrir norðan og ástin blómstar sem aldrei fyrr. Helga Þyri Bragadóttir Þegar litið er yfir starfsferil minn frá útskrift, einkennist hann af mikilli fjölbreytni sem gagnast mér mjög vel í núverandi starfi. Ég byrjaði iðjuþjálfaferilinn sem iðjuþjálfi á Sjúkrahúsinu á Akureyri, fyrst á geðdeild og svo á endurhæfingardeildinni á Kristnesi. Ég starfaði síðan lengi vel hjá Akureyrarbæ við „Ráðgjöfin heim“, en sú þjónusta veitir einstaklingum ráðgjöf sem þurfa stuðning í daglegu lífi og er þjónustan veitt úti í samfélaginu og/eða á heimilum fólks. Síðan tók ég annan hring á SAk en bætti þá við bráðadeildunum. Ég var nokkur ár í kjaranefnd Iðjuþjálfafélagsins sem var skemmtilegt, stundum ögrandi en mjög þroskandi. Ég náði mér í réttindi frá Vinnueftirliti Ríkisins og tók að mér vinnustaðaúttektir og sá um fræðslu og öryggismöt í fyrirtækjum. Einhversstaðar á leiðinni tók ég nám í verkefnastjórnun og síðar markþjálfun og nýti ég hvorutveggja mikið í starfi mínu í dag en ég er ráðgjafi og verkefnastjóri hjá starfsendurhæfingarsjóði Virk á Akureyri. Hjördís Anna Benediktsdóttir Ég fór í afleysingar á Grensási sumarið fyrir lokaárið í HA og þá var ekki aftur snúið. Endurhæfingin heillaði og ég hef unnið á Grensási allar götur síðan við útskrifuðumst 2008. Starfið á Grensási er ótrúlega fjölbreytt og mikil teymisvinna sem hæfir mér hvoru tveggja mjög vel. Ég sérhæfði mig í kvillum og áföllum tengdum miðtaugakerfinu og hef mest unnið með skjólstæðingum sem hlotið hafa heilaáfall eða heilaskaða en hef annars unnið með mörgum öðrum sjúklingahópum þ.e. einstaklingum sem orðið hafa fyrir mænuskaða, fjöláverka, farið í liðskipti, misst útlimi og svo mætti lengi áfram telja. Ég hef setið námskeið og bætt við mig ýmsum mikilvægum matstækjum s.s. A-ONE og AMPS ásamt því að sanka að mér fróðleik m.a á ráðstefnum eins og Norrænu setstöðuráðstefnuna (The Nordic Seating Symposium), ráðstefna um ákominn heilaskaða (á vegum Hugarfars), Norræn ráðstefna um starfsendurhæfingu haldin af Virk (Nordic conference on work rehabilitation). Ég var með í að koma á fót samstarfi milli Virk, Grensáss og Reykjalundar og Vinnumálastofnunar sem er mjög þarft þ.e. að finna út í sameiningu hvaða úrræði henta skjólstæðingum okkar best hverju sinni. Jónína Aðalsteinsdóttir Eftir útskrift hóf ég störf á Þroska- og hegðunarstöð heilsugæslunnar. Þar kom ég að þverfaglegu mati og greiningu barna með þroska- og hegðunarfrávik og sinnti ráðgjöf til foreldra og skóla/leikskóla. Eftir ÚTSKRIFTARÁRGANGUR ÚR HA 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.