Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 29

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 29
Iðjuþjálfinn 1/202029 Hún segist hafa fundið það víða erlendis að það er enginn aðili þarna úti að tryggja að þú sért búinn að fara á námskeið. Fólk er meira meðvitað um þetta hér. Erlendis er oft meira framboð af námskeiðum en sjaldan aðgangur að þessum frábæru styrkjum eins og hjá BHM. Víða þarf fólk að borga úr eigin vasa og taka eigin orlofsdaga í námskeiðið. Valerie nefnir líka það sem er sameiginlegt milli landa; það er umhyggja og metnaður fyrir skjólstæðingum sínum. Víða um heim sé stéttin meiri karlastétt en hér á landi en það breyti því ekki hver kjarni iðjuþjálfunar sé. Hún talar um tengslin við þjálfarann. „Maður sá það bara. Ef tengslin eru góð og maður finnur fyrir þessari virðingu og samvinnu og þjálfari hefur trú á að þetta muni ganga (...) ég tel að það sé mjög mikilvægt og vanmetið.“ Þjálfun gengur betur ef þjálfarinn trúir á þá meðferð sem hann veitir og er ófeiminn við að prófa sig áfram. Hún telur að sjá megi fleiri breytingar á næstu árum, starfið verði iðjutengdara „því við erum alltaf að tengja betur hvað er orsök og hvað afleiðing, og að heilinn hefur meiri aðlögunarhæfni en áður var talið. Hægt er að efla þessar tengingar aftur og tengja við iðju, það sem fólk vill gera og hvað það langar að gera,“ lýsir hún. FRAMTÍÐARSÝN Þegar Valerie er spurð um framtíðarsýn segir hún: „Ég held það sé kannski meira á þessu persónulega sviði; hafa meiri tíma fyrir áhugamál og fjölskyldu.“ Hún segist vilja huga að eigin heilsu og gera eitthvað skemmtilegt, viðhalda eigin iðju og jafnvægi og nefnir að upplifunin af COVID-19 ýti henni, og jafnvel bara samfélaginu öllu, enn betur inn í þann hugsunarhátt. Aðspurð um áhugamál segist hún, feimnislega, vera nýbyrjuð að læra á fiðlu. Hún segist hafa gaman af þessu, eins konar iðjuþjálfun fyrir hana sjálfa. Þá langar hana að hafa meiri tíma til að elda og baka. Hún segir það hafa verið viðbrigði frá því í Ástralíu, „menningarmunur tengdur iðjunni “, hvað fólk bakaði miklu meira hér á landi. Í Ástralíu var meira farið í „cheesecake shop“ eða keypt annað bakkelsi. Hún segir með glettni að maðurinn hennar hafi aldrei fengið heimabakað bakkelsi heima hjá sér á jólunum. Hana langar að hafa tíma fyrir gönguferðir og hitta vinkonur. Hún vill reyna að vera nægjusöm og telur að COVID-19 hafi kennt okkur hvað skipti máli. Þegar spurt er um framtíðarsýn varðandi fagið segist hún vera spennt að taka þátt í þróun starfsins í Sjálfsbjörg, sem nú er í gangi. Þetta er endurhæfing þar sem margir fagaðilar koma að og sinna yngra fólki með heilaskaða, fólki sem er „slow to recover“, hefur lokið tíma sínum í annarri endurhæfingu, t.d. á Grensásdeild, og kemur svo í Sjálfsbjörg. Starfið snúist um meira langtímaeftirlit og þjálfun þar sem fólk getur komið inn og út úr þjónustunni. Hún segist vera sérstaklega spennt fyrir þessu verkefni því þarna sé verið að horfa til þess að endurhæfing eftir heilaskaða er ekki einfaldlega búin eftir fyrstu tvö árin eða þar um bil, það eru svo miklir möguleikar að ná meiru. Valerie segist vilja halda tengslum við Háskólann á Akureyri en nefnir sérstaklega metnað sinn fyrir unga fagfólkinu okkar og sér jafnvel fyrir sér að taka þátt í þema þar sem eldri iðjuþjálfar með meiri reynslu styðji við nýja iðjuþjálfa. „Hvað getum við gert til þess að tryggja að þetta góða fólk haldi áfram að eflast og mennta sig?“ Hún segist vilja tryggja að stéttin blómstri, í hana sæki fleira fólk og hún geti vel hugsað sér eitthvað slíkt starf. Eftir skemmtilegt viðtal við Valerie, þar sem hún sagði okkur frá fjölskyldu sinni og áhugamálum, námsferli og starfi og upplifun af iðjuþjálfun á þremur áratugum í fjölmörgum löndum ásamt framtíðarsýn hennar í einkalífi og starfi, kveðjum við. POWERFUL PRACTICE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.