Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 31

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 31
Iðjuþjálfinn 1/202031 áratugir áður en námsbraut yrði sett á laggirnar, hvað þá að hún skyldi rísa norðan heiða 1997. Hope starfaði á Kleppi frá 1974 til 1977. Hún var ekki bara framandi og öðruvísi í tali, útliti, hegðun og fatavali, hún var óvenjulega opin, jákvæð, og styðjandi. Það veitti mér styrk hvað hún hafði mikla trú á mér og áhuga á því sem ég fékkst við. Hope hefur ekkert breyst í gegnum árin, hún hefur enn brennandi áhuga á fólki, gefur því kraft og hefur enn sama smekk fyrir skrautlegum, fjólubláum fötum, stuttum pilsum, litríkum skartgripum og háum stígvélum. Í fyrstu vissi ég ekkert um „geð“, vissi ekki einu sinni að fólk hefði geðheilsu hvað þá geðheilsuvanda. Hope hafði ekki aðeins áhrif á mig heldur hefur öll iðjuþjálfastéttin notið góðs af henni og hennar samböndum vestanhafs. Hún var m.a. formaður Iðjuþjálfafélagsins í yfir tvo áratugi, 1976 til 1998 og formaður Geðhjálpar 1981 til 1986. Þar kom hún á sjálfshjálparhópum og stóð fyrir fræðslu fyrir almenning, aðstandendur og fagfólk. Henni tókst að fá eftirsótta fræðimenn til að stoppa á leið sinni yfir til Evrópu. Ég vil nefna tvo þeirra sem vógu þungt sem áhrifavaldar; Judy Chamberlin og Gary Kielhofner. Judy, sem var baráttukona geðsjúkra, kom 1985 og aftur 2006. Hún skrifaði bókina On our own 1979, sem hafði djúpstæð áhrif á mig. Í bókinni lýsir hún varnar- og valdaleysi geðsjúkra og baráttu þeirra til áhrifa. Hún var frumkvöðull í bata- og notendarannsóknum sem lögðu grunninn að bata hvetjandi þjónustu. Í fyrstu heimsókn hennar voru ekki margir sem trúðu að geðsjúkir gætu haft áhrif á eigin málaflokk. Í seinni heimsókninni var kominn jarðvegur fyrir hennar hugmyndir. Gary Kielhofner iðjuþjálfi hélt námskeið hér fyrir stéttina 1993. Ég hafði orðið fyrir áhrifum af The Model of Human Occupation – „MOHO-líkaninu“ um iðju mannsins, í vísindaferð minni til Bandaríkjanna 1984. Ég sótti fyrirlestur Garys og margir iðjuþjálfar sem ég hitti þar voru farnir að tileinka sér þessa nálgun. Þó að ég skildi ekki nema hluta af faglíkaninu þá hafði ferðin tilætluð áhrif. Grensás Árið 1976, sama ár og nokkrir iðjuþjálfar stofnuðu Iðjuþjálfafélag Íslands, komst ég inn í iðjuþjálfaskóla í Þrándheimi í Noregi. Fagið var ekki kennt hér á landi og erfitt að komast í nám en flestir fóru til Danmerkur. Ég var fyrsti íslenski iðjuþjálfinn sem útskrifaðist frá Noregi, 1979, sama ár og Iðjuþjálfafélag íslands gaf út sitt fyrsta fréttablað. Það var röð tilviljana sem olli því að mér var hleypt í gegn, en ég vil nefna einn mann, Magnús Kjartansson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Ég kynntist honum í gegnum hópastarfið sem systurnar á Grensás höfðu treyst mér fyrir. Ég setti af stað hópaverkefni sem hafði það að markmiði að fólk skemmti sér og hefði gaman. Mér fannst hafa heppnast vel ef mér tókst að fá fólk til að gleyma sér og hlæja svo tárin hrundu. Magnús kunni að meta þennan galsa sem eflaust fylgdi því að vera ungur og vita ekki betur. Með okkur tókst vinátta og hann vildi fá að fylgjast með mér. Hann var áhugasamur um hvernig gengi að komast í námið og tók það ekki í mál að ég gæfist upp. Ég naut því dýrmætrar leiðsagnar hans í ferlinu og loks játuðu Norðmenn sig sigraða og mér var hleypt inn sem aukanemanda með afar stuttum fyrirvara haustið 1976. Dagdeild Borgarspítalans Ég var alls ekki á leiðinni heim þegar mér barst símtal frá Íslandi. Páll Eiríksson geðlæknir hringdi um það leyti sem hann var að setja á stofn fyrstu dagdeild sinnar tegundar rekna af Borgarspítalanum staðsetta á Skólavörðustígnum, 1980. Dagdeild fyrir geðsjúka með þverfaglegri nálgun, þar sem geðlyf voru ekki í forgrunni. Á þessum árum höfðu margir orðið háðir svokölluðum bensódín-lyfjum. Í teymið vantaði iðjuþjálfa. Hann hafði góða reynslu af iðjuþjálfum í Danmörku. Hann komst að því að ég hefði fengið styrk til námsins og nú væri komið að skuldadögum. Ég kom af fjöllum, mundi ekki til þess að hafa sótt um neinn styrk. Það kom svo í ljós að móðir mín stóð á bak við þennan styrk, eflaust hrædd um að ég myndi aldrei skila mér til baka frá útlöndum. Ég var komin í góða vinnu í Þrándheimi; var að þróa iðjuþjálfun á Rotvoll geðsjúkrahúsinu þar, með áherslu á atvinnutengingu. Mér hafði verið boðin stundakennsla í skólanum og byrjuð að búa með núverandi eiginmanni mínum, Jon Kjell. Ég væri eflaust enn búsett í Noregi og íslenska geðheilbrigðiskerfið hefði verið laust við mig ef þessi styrkur hefði ekki komið til. Ég vann eitt ár á Dagdeild Borgarspítalans. Af frábæru starfsfólkinu lærði ég heil ósköp. Mestur var þó sá lærdómur sem fólginn var í eigin mistökum. Mér tókst t.d. að týna fagsjálfsímyndinni innan árs. Starfsemin byggði á hópastarfsemi þar sem tveir og tveir fagmenn unnu saman. Ég bara aðlagaði mig að þeirri stétt sem ég vann með hverju sinni og missti því sjónar af sérstöðu iðjuþjálfunar. Ég kunni hvorki að setja mörk né verja sjálfan mig. Mee too byltingin í órafjarlægð. Ég eins og kynsystur mínar tók á mig alla ábyrgð af kynferðislegu áreiti sem kom frá einstaklingi í valdastöðu. Aftur naut ég góðs af handleiðslu Hope. Til að bjarga eigin geðheilsu ákvað ég að hætta á dagdeildinni. Sjálfstraustið hrunið, trúin á sjálfa mig hvarf og ég vildi yfirgefa geðgeirann. Æskuvinkonu minni tókst að hrista af mér slenið og stakk upp á að við yrðum verkstjórar í unglingavinnu Kópavogs sumarið 1981. Þar náði ég áttum og komst a.m.k. að því að ég væri betri iðjuþjálfi en verkstjóri í hleðslu hraunveggja. Enn þann dag í dag þegar ég á leið um Kópavoginn tjékka ég á hvort hleðsluveggirnir sem minn flokkur hlóð haldi nú. Tómas Helgason Tómas Helgason geðlæknir var sonur Helga Tómassonar, sem lagði áherslu á virkni til bata og réð fyrsta iðjuþjálfann Jónu til starfa. Tómas tók við valdasprota föður síns og stýrði fyrst Kleppsspítala og síðar einnig geðdeildum Landspítalans. Tómas var ákveðinn, fylginn sér og valdamikill baráttumaður. Honum tókst að sannfæra stjórnvöld um að geðdeildir ættu heima á lóð Landspítalans. Geðsjúkdómar ættu að njóta sömu virðingar og aðrir sjúkdómar og þá ætti að meðhöndla innan veggja almenns spítala. Það þótti ekki við hæfi að senda geðsjúka úr augsýn; fjarri mannabyggðum eins og staðsetning Klepps var í upphafi. Glæsileg fjögurra hæða bygging reis við Eiríksgötuna 1980 og heil hæð frátekin fyrir iðju- og sjúkraþjálfun. Auglýst hafði verið eftir iðjuþjálfum. Sylviane Lecoultre, svissneskur iðjuþjálfi búsett á Íslandi, sótti um. Hún þurfti fyrst að sanna að hún kynni til verka og gæti tjáð sig á íslensku, var því ráðin sem gangastúlka en ekki iðjuþjálfi á móttökudeild 33c. Það var ekkert öðruvísi þá en nú að erfitt var fyrir útlendinga að fá viðurkennda menntun sína, hvað þá að þeim yrði falin ábyrgð. Húsnæðið á fyrstu hæðinni stóð autt og stjórn Iðjuþjálfafélagsins óttaðist að það yrði nýtt í annað ef enginn yrði ráðinn. Iðjuþjálfaherbergi fylgdu einnig hverri deild. Kristjana Fenger sem vann á Reykjalundi og var virk í stjórn félagsins hafði samband við mig og útskýrði fyrir mér stöðuna. Ég lét til leiðast og fór á fund með Kristjönu til Tómasar. Áður en ég vissi hafði ég ráðið mig, 25 ára gömul, blaut á bak við eyrun í yfirmannsstöðu. Stuttu áður hafði ég hugleitt að yfirgefa starfið en nú hafði ég tekið á mig aukna ábyrgð. Eins og fyrri yfirmaður, Páll Eiríksson, lagði Tómas áherslu á þverfaglega nálgun og studdi ötullega við aðrar fagstéttir. Hann vildi að geðsjúkir hefðu sama aðgengi að þjónustu og aðrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.