Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 20

Iðjuþjálfinn - 2020, Blaðsíða 20
20Iðjuþjálfinn 1/2020 með skerta starfsgetu væri minna en annars starfsfólks. Þeir töldu einnig að það þyrfti meiri stuðning og því það væri aukinn kostnaður eða fyrirhöfn að ráða það í vinnu. Með þátttöku TR í launakostnaði gátu þeir réttlætt og rökstutt ráðningu fólks með skerta starfsgetu gagnvart stjórn fyrirtækis eða eigendum. Að reka fyrirtæki á Íslandi í dag er ekkert auðvelt. Þú þarft að horfa í hvern hundrað kall og ég myndi segja að fyrir þennan hóp þú veist, auðvitað vilja allir að þessi einstaklingar komist inn á vinnumarkaðinn, ég held að lykillinn að því séu meðlög, alla vega í ákveðinn tíma. Vegna þess að fyrirtæki eru í bullandi samkeppni […] og hafa bara ekkert efni á að ráða nema hæfasta fólkið. (Einar) Þegar vel tókst til og ávinningurinn var gagnkvæmur voru starfsmenn á vinnusamningi ráðnir áfram, með eða án áfram- haldandi endurgreiðslu. Bent var á að starfsöryggi fólks á vinnusamningi gat verið ógnað með stigminnkandi endurgreiðslu því vinnuveitendur litu svo á að með vinnusamningi öryrkja væri eðlilegt að reikna með minni framleiðni. Þeir gerðu þá minni kröfur um vinnuframlag sem tryggði að starfsfólkið hélt starfinu. Áskoranir Áskoranir lýsa viðfangsefnum sem gátu reynst erfið en stjórnendur vildu engu að síður ná tökum á. Dæmi um slíkt var að velja verkefni við hæfi, aðlaga störf og starfsumhverfi, veita stuðning og átta sig á skipulagi og hlutverkum mismunandi þjónustuúrræða. Val verkefna, þannig að þau hæfðu starfsgetu, var mismikil áskorun. Fjölbreytt störf á vinnustað auðvelduðu stjórnendunum að velja verkefni við hæfi. Þeir stjórnendur sem höfðu jákvæð viðhorf og reynslu af starfsfólki með skerta starfsgetu horfðu frekar til styrkleika þess en skerðinga. Margir hugsuðu lausnamiðað og sáu ýmsa möguleika á verkefnum sem hæfðu mismunandi starfs- getu og áhuga. Örn sagði til að mynda: „Þetta er bara spurning um að velja þessum einstaklingum verkefni við hæfi.“ Aðrir nefndu dæmi um starfsmenn sem erfitt var að finna verkefni fyrir: „Ég veit ekki hvað þessi störf verða lengi virk [sökum tæknivæðingar] og þegar þau eru búin sé ég ekkert sem ég get látið hann gera“ (Ari). Flestir stjórnendurnir aðlöguðu störfin og starfsumhverfið að einhverju leyti til að koma til móts við þarfir starfsfólksins en oftast var um lægra starfshlutfall og sveigjanlegan vinnutíma að ræða. Misjafnt var hversu mikla möguleika stjórnendurnir töldu sig hafa til aðlögunar en þeir voru sammála um að takmarkað var hversu langt væri hægt að ganga. Þó það væri til dæmis tækifæri til að færa starfsmann tímabundið úr líkamlegri vinnu í skrifstofustarf var það hugsanlega einungis hægt fyrir einn í einu. Sömuleiðis gat möguleikinn á minna starfshlutfalli aðeins átt við vinnu eftir hádegi ef hlutastörf fyrir hádegi voru öll fullmönnuð. Þannig þurfti að púsla hlutunum saman og ekki alltaf víst að það gengi upp. Það er alltaf einhver sveigjanleiki til staðar […] og þú getur verið með ákveðinn fjölda af fólki en þú getur ekki verið með endalaust. Ég meina það eru mörk fyrir þessu. Maður reynir það sem maður getur en svo náttúrulega getur maður lent í því að maður bara hreinlega getur það ekki. En í flestum tilfellum hefur tekist að færa fólk til eða hjálpa fólki. (Ari) Aðlögun gat verið torveldari þegar mikið álag var á vinnustaðnum. Þá var hætt við að umburðarlyndi samstarfsfólksins og skilningur þess á lakari afköstum eða þörf fyrir sérstaka aðlögun væri minni, samanber orð Oddnýjar: „Það er alveg mjög mismunandi toler- ansinn fyrir því og ef það er ekki góð mönnun og eitthvað svona pínu, þá er toleransinn oft minni.“ Stjórnendurnir veittu starfsmönnum með skerta starfsgetu stuðning með leiðbeiningum eða kennslu, hvatningu, aðhaldi við mætingar og aðstoð við persónulegar athafnir. Þeir litu á stuðning sem sameiginlegt verkefni á vinnustaðnum og reyndu að virkja samstarfsfólkið til að taka þátt í því. Þeir töldu stuðninginn skila sér í betra vinnuframlagi og vera til hagsbóta fyrir bæði starfsmanninn og fyrirtækið. Til að geta veitt viðeigandi stuðning leituðust þeir við að auka þekkingu sína á getu og þörfum einstaklingsins með upplýsingum frá honum eða fagfólki í þjónustukerfinu. Nokkrir töldu mikilvægt að samstarfsfólkið hefði einnig slíkar upplýsingar þannig að það gæti verið styðjandi og gert raunhæfar kröfur. Stjórnendurnir voru misöruggir í að veita stuðning en það var mismunandi hvort þeir fengu sjálfir stuðning frá fagfólki. Þekking stjórnendanna á skipulagi og hlutverkum kerfisins og stofnana var mismikil. Sumir höfðu orð á að þetta væri óskýrt og að það vantaði aðgengi að upplýsingum. Dæmi voru um að samkeppni væri á milli fagaðila um að koma sínum skjólstæðingum í tiltekin störf eins og Einar komst að orði: Þetta er rosalegur frumskógur og ég er að gleyma fullt af úrræðum sem að hafa haft samband. Það er svo mikil vinna fyrir mig að kynna mér hvað er á bak við… VIRK […] hvað er á bak við þetta allt saman, skilurðu? Stundum finnst mér þeir pínu vera í samkeppni, þú veist getur þú tekið þennan í… Þá segi ég kannski, já ég er reyndar með hérna strák sem kom í gegnum þetta úrræði sko og þá svona liggur við að það sé svona samkeppni. (Einar) Stjórnendurnir höfðu mörg verkefni á sínum snærum og settu ekki endilega í forgang að kynna sér mismunandi þjónustuúrræði. Þeir höfðu almennt ekki reynslu af samstarfi við fagfólk vegna endurkomu starfsfólks á vinnustaðinn í kjölfar starfsendurhæfingar. Slíkt samstarf var helst vegna starfsfólks sem var með atvinnu með stuðningi eða vinnusamning öryrkja. Á sama tíma og þess háttar samvinna var hvetjandi til að ráða fólk með skerta starfsgetu, var hún áskorun þar sem hún gat leitt til utanaðkomandi þrýstings eins og orð Inga gefa til kynna: „Þegar ég er að auglýsa störf, er með fjóra starfsmenn í gegnum… [Vinnumálastofnun]… svo auglýsi ég starf… þá sendir hann [ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun] mér tölvupóst alveg með það sama.“ Þrátt fyrir jákvæð viðhorf til að hafa fólk með skerta starfsgetu í vinnu og ávinning vinnustaðarins treystu stjórnendurnir sér ekki til að hafa marga slíka starfsmenn í einu því þá gætu þeir ekki veitt þeim nauðsynlegan stuðning og þeir yrðu síður hluti af starfsmannahópnum. Hindranir Með hindrunum er átt við þætti sem hamla eða eru fyrirstaða fyrir að stjórnendur veiti fólki með skerta starfsgetu vinnu. Þær helstu voru krafa um arðsemi eða lágan rekstrarkostnað, álag á sam- starfsfólk og sértækar reglur. Krafa um arðsemi eða lágan rekstrarkostnað fyrirtækja hindraði stjórnendur í að ráða fólk með skerta starfsgetu í vinnu. Í fyrirtækjum á almenna vinnumarkaðnum var áhersla á mikla framleiðni sem stjórnendurnir töldu fólk með skerta starfsgetu ekki standa undir. Að sama skapi var rekstrarfé vinnustaða sem tilheyra opinbera kerf inu oft takmarkað eins og Oddný lýsti: „… ég þarf að fá talsvert mikið út úr hverju stöðugildi […]. Stundum eru stjórnendur settir í að velja hæfasta fólkið sem getur sinnt mörgum störfum og afkastað vel.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.