Iðjuþjálfinn - 2020, Qupperneq 19
Iðjuþjálfinn 1/202019
Það sem hvatti stjórnendurna var gagnkvæmur ávinningur
fyrirtækis og starfsmanns, tækifæri til að sýna samfélagslega
ábyrgð, að hafa fastan tengilið í þjónustukerfinu og endurgreiðsla
launa.
Gagnkvæmur ávinningur vinnuveitanda og starfsmanns var
lykilatriði til að vinnusamband gengi upp til lengri tíma. Auk þess
að njóta starfskrafta starfsmanna með skerta starfsgetu, álitu
stjórnendurnir þá auðga vinnustaðinn og auka fjölbreytileika hans
þar sem ný sjónarmið og annars konar vangaveltur komu frekar
fram. Jafnframt var þátttaka þeirra talin draga úr fordómum,
einkum í garð fólks með geðrænar áskoranir. Að sjá starfsmann
með skerta starfsgetu vaxa í starfi var gefandi og hafði jákvæð áhrif
á stjórnendurna og samstarfsfólk sem fannst það eiga hlutdeild í
vextinum með því að veita stuðning. Stjórnendurnir voru stoltir og
ánægðir eins og orð Inga bera með sér: „Það er voða gleðilegt að
geta verið með einhvern svona starfsmann sem að […] fær að vaxa
og dafna hérna og gerir eitthvað úr sínu lífi, skilur þú? Það er voða
svona gefandi.“ Fjölbreytni í störfum á vinnustaðnum var kostur
fyrir báða aðila því það auðveldaði stjórnendunum að bjóða fólki
með skerta starfsgetu vinnu við hæfi og aðlaga verkefnin að getu
þess. Ef leggja þurfti í kostnað vegna starfsmanns með skerta
starfsgetu voru stjórnendurnir frekar reiðubúnir í slíkt vegna
starfsmanns sem hafði gildandi ráðningarsamning heldur en að
ráða nýjan starfsmann, einkum ef hann hafði reynst vel og sýnt
vinnustaðnum hollustu. Sama gilti um starfsfólk sem þeir töldu
líklegra til að skila fyrirtækinu einhvers konar ávinningi. Stjórnendur
sem höfðu meiri reynslu af starfsfólki með skerta starfsgetu voru
almennt opnari fyrir frekari ráðningum en þeir sem höfðu minni
reynslu.
Nokkrir viðmælendanna lögðu áherslu á samfélagslega ábyrgð
fyrirtækjanna. Þeim fannst mikilvægt að einstaklingar með skerta
starfsgetu væru þátttakendur í samfélaginu og litu á málið út frá
ávinningi þeirra ásamt tækifærum til að tilheyra starfsmannahópi
og skapa daglega rútínu. Í þeim tilvikum þar sem samfélagsleg
ábyrgð var hluti af menningu eða stefnu vinnustaðarins virtist
almennt vera jákvæðara viðhorf til þess að hafa fólk með skerta
starfsgetu í vinnu.
Hann var bara á sínum launum og var bara hérna í vinnu og ég
meina þó að ég hefði getað fengið annan mannskap sem hefði
getað skilað betra starfi en hann þá kom það aldrei til umræðu að
hann yrði látinn fara. Vegna þess að það er náttúrulega ákveðið
svona samfélagslegt verkefni eða skylda að fólk sem er þannig
statt að það hafi líka möguleika að vera þátttakendur í samfélaginu.
(Ari)
Flestir lögðu áherslu á að hafa fjölbreyttan hóp fólks í vinnu en
höfðu þó litla sem enga reynslu af starfsfólki með hreyfihömlun. Á
vinnustöðum með litla hefð fyrir atvinnuþátttöku fólks með skerta
starfsgetu var hvatinn til þess að sýna samfélagslega ábyrgð frekar
bundinn við gildi og viðhorf einstakra stjórnenda. Sumir höfðu
áhyggjur af starfsöryggi þessa hóps ef að þeir létu af störfum sem
stjórnendur. Á sama tíma og stjórnendurnir töldu fyrirtækið sýna
samfélagslega ábyrgð, voru þeir alla jafna ekki tilbúnir að taka á sig
fullan launakostnað starfsfólks með skerta starfsgetu eða sáu sér
það ekki fært. Undantekning frá þessu var viðmælandi sem taldi
það samfélagslega ábyrgt að greiða laun alls starfsfólks að fullu,
óháð starfsgetu þess.
Að hafa fastan tengilið í þjónustukerfinu var hvetjandi þáttur,
einkum hjá stjórnendum fyrirtækja sem vantaði starfsfólk í ákveðin
þjónustustörf. Aðgengi að stuðningi og ráðgjöf ákveðins fagmanns,
bæði fyrir stjórnendur og starfsfólk, skapaði öryggi og traust.
Fagfólk leitaði líka endurtekið til fyrirtækja þar sem slík tengsl
höfðu myndast og óskaði eftir störfum fyrir einstaklinga með skerta
starfsgetu. Í nokkrum tilfellum ríkti ákveðið jafnræði og stjórn-
endurnir leituðu einnig til þjónustukerfisins eftir starfs kröftum.
Endurgreiðsla launa var mikilvægur hvati við ákvörðun um
ráðningu. Stjórnendurnir virtust reikna með að vinnuframlag fólks
Mynd 1: Þættir sem höfðu áhrif á afstöðu stjórnendanna til þess að hafa fólk með skerta starfsgetu í vinnu.