Iðjuþjálfinn - 2020, Qupperneq 35

Iðjuþjálfinn - 2020, Qupperneq 35
Iðjuþjálfinn 1/202035 þetta fyrir starfsmönnum og hvort eða hvernig þeir hafi unnið eftir henni,“ segir hún. „Þegar við erum á stöðunum og erum að athuga með félagslegan aðbúnað þá spyr ég eins og áður: Hvað gerið þið til að ykkur líði vel í vinnunni? Þá fékk ég alls konar viðbrögð um hvað þau eru að gera,“ lýsir Hafdís. Sömuleiðis spyr hún nú um hvernig tekið sé á misskilningi, vandamáli eða öðru sem komi upp og biður starfsfólkið að lýsa því. „Þá heyrir maður hvernig hefur verið tekið á málinu, hvort það hafi verið leyst, að manneskjan var látin fara eða hvort þau virkilega hafi gert eitthvað,“ segir hún. VINNUSTAÐAATHUGANIR OG RANNSÓKNIR, SÉÐAR FRÁ SJÓNARHÓLI IÐJUÞJÁLFA Menntun iðjuþjálfa nýtist sannarlega til að fá ákveðið sjónarhorn í heimsóknum á vinnustaði. „Þú ert í öll þessi ár búin að vera að nota menntunina þína og þú ert að horfa allt öðru vísi á þetta – þú ert með þessi iðjuþjálfagleraugu. Það er allt öðruvísi að heyra frá Hafdísi um heimsóknir heldur en frá einhverjum sem er ekki iðjuþjálfi. Ég finn muninn, þannig að menntunin hefur nýst mjög vel í þetta starf,“ lýsir Gunnhildur. Hafdís tekur heils hugar undir þetta. „Ég sé það þegar ég lít til baka og eins þegar kíkt er yfir kröfurnar eða athugasemdirnar sem maður gerir á stöðunum. Þá hef ég verið að nota menntunina og líka þegar maður er að leiðbeina. Maður þekkir staðina og veit hvað maður á að skoða.“ Gunnhildur segir mikilvægt að beita þessu áhorfi sem iðjuþjálfar eru svo ótrúlega góðir í. „Að fara inn og geta einhvern veginn strax séð hlutina. Það er mikill kostur sem Hafdís er mjög góð í.“ Gunnhildur réð sig á rannsókna- og heilbrigðisdeild. „Ég ætlaði að vinna í rannsóknum í sambandi við líkamsbeitingu, en 12 dögum áður en ég byrjaði var deildin lögð niður og yfirmaðurinn fór með. Þá var þessi deild bara allt í einu ekki til og ég var búin að segja upp starfinu á Reykjalundi. Ég kom hérna á nýjan stað og enginn vissi hvað ég átti að gera,“ rifjar Gunnhildur upp. Málin hafa reyndar þróast mjög skemmtilega að hennar sögn. „Við Hafdís erum til dæmis í miklu samstarfi og erum í hreyfi- og stoðkerfisdeild, köllum við það. Við erum eiginlega þrjár að vinna þar. Mitt svið er í rauninni allt sem viðkemur hreyfi- og stoðkerfi, ég er til ráðgjafar við eftirlitsmenn ef það þarf. Hef líka verið að kenna á námskeiðum, skoða rannsóknir og slíkt. Svo held ég utan um stórt Evrópuverkefni sem er núna frá 2020 til 2022 sem er tileinkað stoðkerfinu. Þannig að nú erum við Hafdís í hóp sem er að finna út hvernig hægt sé að koma þessu áfram inn í þjóðfélagið,“ lýsir hún. MARGT SPENNANDI Á DAGSKRÁ Það er ýmislegt skemmtilegt í pípunum sem þær Hafdís og Gunnhildur eru búnar að vera að undirbúa. „Til dæmis núna í október byrjuðu fræðslumolar á heimasíðu Vinnueftirlitsins, einn á dag í 35 daga alveg þangað til að kemur að fyrirhugaðri ráðstefnu. Þetta eru litlir fróðleiksbútar sem fólk les og í leiðinni réttir það vonandi betur úr sér, lagar stólinn, ljósið, borðið og allt þetta sem er í umhverfinu,“ segir Gunnhildur. Síðan er ráðstefnan 19. nóvember þar sem verður fjallað um samfélagslega ábyrgð. „Svo ótrúlega mikið er vitað um hreyfi- og stoðkerfið og hvernig hægt er að koma í veg fyrir skaða þar. Samt sem áður eru meira en 60% veikinda eða fjarvista í Evrópu vegna stoðkerfis eða -verkja. Við vitum þetta en erum ekki að gera nóg í því – þetta er áherslan næstu tvö árin hjá mér,“ bætir Gunnhildur við. Iðjuþjálfar eiga sannarlega vel heima í starfi Vinnueftirlitsins að mati Gunnhildar. „Þarna kemur þetta aftur, að vera iðjuþjálfi – það er rosa gaman að koma með þann vinkil þarna inn. Það var sjúkraþjálfari í mínu starfi áður og vann mjög flott starf.. Svo kem ég með aðeins aðra sýn. Við Hafdís vinnum vel saman, við tölum einhvern veginn sama tungumálið. Þetta er mjög áhugavert og ég vildi óska að það væru fleiri iðjuþjálfar í Vinnueftirlitinu af því þetta er starf fyrir iðjuþjálfa, bæði í eftirlitinu sjálfu og eins líka í þessum innri strúktúr í Vinnueftirlitinu, að fræða,“ lýsir hún. ÞJÓNUSTA IÐJUÞJÁLFA OG LAGALEG UMGJÖRÐ VINNUEFTIRLITSINS Talið berst að aðstoð vegna stoðkerfisverkja út frá vinnu. Væri hægt að hafa samband við Vinnueftirlitið og fá að ræða við iðjuþjálfa? Hafdís segir að hægt sé að fá þjónustu viðurkennds þjónustuaðila, eins og Valdísar Þorsteinsdóttur iðjuþjálfa og vinnuvistfræðings. „Það hefur verið einn og einn iðjuþjálfi sem hefur farið á vinnustaði en við segjum alltaf: Hafið samband við iðjuþjálfa eða sjúkraþjálfara ef þið hafið áhuga. Það er um að gera að nýta sér þá ef þeir eru nálægt,“ segir hún. Gunnhildur segir að þær sinni þessu ekki beint en hugsi eins og iðjuþjálfar. „Þá væri frábært ef til væri fyrirtæki þar sem iðjuþjálfar færu inn í fyrirtæki og leiðbeindu fólki með líkamsbeitingu og væru með fyrirlestra og aðstoð með fyrirbyggjandi aðferðum.“ Þarna kemur lagalegt hlutverk Vinnueftirlitsins við sögu. Hlutverk þess er að koma á staðinn, meta aðstæður og benda á hvað þarf að bæta, „en við komum ekki beint með lausnina. Hafdís fer á vinnustað og sér eitthvað athugavert en hún má ekki koma og segja: Nú farið þið að kaupa þennan stól og þetta borð. Það má ekki. Svo að hún þarf að koma inn og segja: Þetta er ekki nógu gott, þið þurfið að finna lausn á því, ég kem aftur eftir einhvern ákveðinn tíma og skoða hvort þið eruð búin að bæta þetta. Þannig ef það væri til iðjuþjálfafyrirtæki sem kæmi þarna inn í millitíðinni væri það flott. Kæmu flottir iðjuþjálfar sem vita hvað er að, hvað hentar. Spyrja hvað hentar þér, hvað ertu að vinna lengi og hvernig ertu í fótunum, koma svo með lausnina. Síðan kæmi Hafdís aftur og tæki út. Það væri mjög sniðug lausn,“ lýsir Gunnhildur. Lagalegur stuðningur mætti vera meiri hvað varðar alla líkams- beitingu og vinnuumhverfi að mati Gunnhildar og Hafdísar. „Það eru alveg til lög en þau mættu verða ítarlegri, betri og kannski yfirgripsmeiri. Þar erum við Hafdís einmitt í hóp sem er að beita sér fyrir því að lögin verði aðeins betri, nákvæmari og víðtækari,“ segir Gunnhildur. „Við ströndum oft á því að það stendur: Þetta þarf að vera svona,“ bætir Hafdís við. FRAMTÍÐARHUGMYNDIR Umræðan leitar næst til framtíðar. Hafdís hefur mikinn áhuga á að sinna þunguðum konum frekar. „Ég hef verið að taka auka námskeið tengt því, hugsa um vinnuumhverfi þeirra, halda þeim lengur í vinnu með stöðugildi sem passar þeim. Ég vona að það gangi upp, ég ætla að gera allt sem ég get til þess að hafa áhrif á þetta. Þetta er komið á Norðurlöndunum og ég reyni alltaf að koma þessu fyrir í heimsóknum. Að hafa sérstakt stöðugildi fyrir ófrískar konur sem síðar gæti nýst fyrir þá sem eru að koma úr langtímaveikindum. Ég vona að þetta verði einhvern tíma að veruleika hjá okkur,“ lýsir hún. Gunnhildur bætir við að það sé til reglugerð sem styðji þetta starf og fjalli sérstaklega um þungaðar konur inni á vinnumarkaðnum. „Það á að taka tillit til þeirra, stendur í lögum. Þar er einmitt góður stuðningur,“ bendir Gunnhildur á.

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.