Iðjuþjálfinn - 2020, Page 39
Iðjuþjálfinn 1/202039
tvö lærdómsrík ár þar færði ég mig um set yfir á Æfingastöðina þar
sem ég starfaði til ársins 2018. Starfið þar var afar gefandi og
fjölbreytt en miðaði fyrst og fremst að því að auka þátttöku og færni
barna og ungmenna í leik og starfi með fjölþættum leiðum, s.s
þjálfun, námskeiðum, hjálpartækjum og ýmis konar ráðgjöf. Í dag
starfa ég í fyrirtæki tengdafjölskyldu minnar sem rekur m.a.
verslunina Margt og mikið sem selur til að mynda þroskaleikföng,
spil og föndurvörur fyrir börn, svo þekking mín nýtist sannarlega í
því starfi.
Kristín G. Sigursteinsdóttir
Ég byrjaði að vinna á geðsviði Reykjalundar í afleysingum fyrstu 6
mánuði eftir útskrift. Ég hóf svo störf í Hlutverkasetri árið 2009,
starfaði þar í tæp 10 ár við endurhæfingu og ýmsan stuðning við
notendur staðarins sem er virknimiðstöð fyrir fólk með geðraskanir.
Mitt aðal áhugasvið tengist geðheilsu og næringu og útskrifaðist ég
því sem heilsumarkþjálfi árið 2013 og hélt utan um heilsuhópa í
Hlutverkasetri í kjölfarið. Ég er sem stendur heimavinnandi
húsmóðir á Selfossi og nýt þess að ala upp 2ja ára sólargeislann
minn.
Kristjana Erlingsdóttir
Við útskrift hafði ég þegar hafið störf hjá Hjálpartækjamiðstöð sem
þá tilheyrði Tryggingastofnun ríkisins og var staðsett í Kópavogi. Ég
byrjaði sem sumarstarfsmaður tvö sumur með náminu og var svo í
afleysingum í um tvö ár eftir útskrift. Ég var fastráðin árið 2010 en
þá tilheyrði Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratryggingum Íslands (SÍ) og
flutti sig um set upp í Grafarholt. Aðaláhugasviðið mitt hefur verið
að sinna afgreiðslu umsókna um tæknileg hjálpartæki fyrir börn.
Hjálpartækin eru af ýmsum toga og gerir það starfið afar fjölbreytt.
Tækin eru einnig í sífellu að þróast og breytast til að mæta þörfum
barnanna. Á þeim árum sem ég hef starfað sem iðjuþjálfi hjá SÍ hafa
miklar breytingar orðið t.d. að í dag berast umsóknir rafrænt til SÍ
sem var stór áfangi í sögu stofnunarinnar. SÍ tók upp vinnumiðað
vinnuumhverfi (free-seating). Tekið hefur verið upp rafrænt
lagerkerfi þar sem tæki eru strikamerkt sem auðveldar að fylgjast
með stöðu lagers. Tekin hefur verið upp umboðsveiting hjálpartækja
sem veitir fagaðilum umboð um að sækja um hjálpartæki án
viðkomu starfsmanna SÍ. Þá sækja fagaðilar sérstakt námskeið hjá
SÍ til að fá umboð. Í starfi mínu hef ég sótt mikið af ráðstefnum bæði
heima og erlendis og nú síðast sótti ég AAATE ráðstefnu í Bologna í
Ítalíu í ágúst 2019. AAATE stendur fyrir Association for the
Advancement of Assistive Technology in Europe og er alþjóðleg
ráðstefna um hjálpartæki þar sem fjöldi sérfræðinga kynna helstu
niðurstöður rannsókna, nýjungar og tækniframfarir. Ráðstefnan í ár
hafði titilinn: Global Challenges in Assistive Technology: Research,
Policy & Practice og þar var áberandi hvað tæknin er öflug og hröð
á sviði hjálpartækja t.d. notkun róbota við ADL og þjálfun bæði hjá
börnum og fullorðnum. Sá hluti fannst mér mjög áhugaverður og
það verður fróðlegt að sjá hvert það leiðir á komandi árum. Að
lokum er gaman að segja frá því að áætlað er að halda Norrænu
setstöðuráðstefnuna á Íslandi 4.-6. Maí 2022 og er starfshópur
innan SÍ að skipuleggja hana í norrænu samstarfi. Ég hvet alla til að
fylgjast með á heimasíðunni https://nss2021.is/
Sigrún Kristín Jónasdóttir (Kittý)
Ég hef prófað að starfa á ýmsum sviðum, s.s. á endurhæfingardeildinni
á Kristnesi, hjá Akureyrarbæ í búsetuúrræði fyrir fatlað fólk og sem
ráðgjafi á sviði vinnuvistfræði. Árið 2010 fór ég af stað með eigin
rekstur sem ég kallaði Ergon – vinnuvistfræðiráðgjöf þar sem ég fór
í fyrirtæki gerði úttektir á vinnuaðstöðu, bauð upp á fyrirlestra um
líkamsbeitingu, aðlögun vinnuumhverfis og fleira. Ævintýraþráin
kom svo yfir okkur fjölskylduna árið 2011 og fluttumst við út til
Kanada þar sem maðurinn minn fór í meistaranám. Við komum þó
aftur til Íslands ári seinna og ég hélt áfram að starfa á sviði
vinnuvistfræði hjá Vinnuvernd ehf í Reykjavík. Fljótlega áttuðum
við okkur þó á að við höfðum meiri þörf fyrir að kanna nýjar slóðir
og ný tækifæri. Því ákvað ég að fara í meira nám og ég lauk
doktorsnámi í iðjuvísindum frá Western University í London,
Ontario, Kanada árið 2019. Ég starfa nú sem lektor við
iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri, en er búsett í Halifax
í Kanada. Starf mitt felst mest í kennslu og rannsóknum, ásamt
ýmsum nefndarstörfum og tilfallandi verkefnum innan
háskólaumhverfisins. Rannsóknir mínar beinast helst að hvernig
þjónusta, stjórnsýslukerfi og stefnumótun hefur áhrif á tækifæri
fatlaðs fólks til að taka þátt í samfélaginu.
Sigurrós Tryggvadóttir
Ég útskrifaðist „loksins“ sem iðjuþjálfi árið 2008 eftir að hafa eytt
aðeins meira en þessum fjórum hefðbundnu árum sem
iðjuþjálfanámið tók í Háskólanum á Akureyri í þá tíð. Ástæðan var
sú að ég bjó í Danmörku og tók hluta af náminu utanskóla. Það er
gaman að hugsa til þess í dag hvernig það fór fram, en það var
löngu fyrir tíma fjarnáms og varð ég að treysta á samnemendur
mína, kennara og starfsfólk að senda mér glærur og glósur í pósti
(er sérstaklega þakklát þér Petrea ☺). Allt hafðist þetta að lokum og
þegar ég útskrifaðist þá fékk ég vinnu á Plastiðjunni Bjargi –
Iðjulundi á Akureyri sem iðjuþjálfi og deildarstjóri í starfsþjálfun og
starfsendurhæfingu. Svo vel hefur mér líkað starfið að ég er þar
enn, tólf árum síðar. Einnig hef ég í nokkur ár verið leiðbeinandi í
Símey /Fjölmennt (fullorðinsfræðsla fatlaðra) þar sem ég hef verið
leiðbeinandi á námskeiði sem heitir „Hagnýtt heimilishald“, en það
er kennt í heimahúsum hjá fólki sem býr í sjálfstæðri búsetu. Mjög
gefandi og skemmtilegt námskeið þar sem eru kennd almenn
heimilisstörf til að auka sjálfstæði, virkni og ákvarðanatöku á eigin
heimili og lögð áhersla á þátttöku, virkni og frumkvæði.
Þórsteina Sigurbjörnsdóttir
Við útskrift hóf ég störf hjá Vestmannaeyjabæ og sá um atvinnu
með stuðningi auk félagslegra liðveislu fyrir einstaklinga með
fötlun. Um sumarrið sá ég um sumarúrræði fyrir börn með fötlun.
Fljótlega fór ég að vinna sem iðjuþjálfi á Hamri hæfingarstöð með
fullorðnum fötluðum. Þar bar ég ábyrgð á innra starfi stofnunarinnar.
Vann að mati, greiningu, áætlunargerð og eftirfylgd. Veittir ráðgjöf
og þjónustu til starfsmanna og aðstandenda þeirra. Var svo
forstöðumaður á Hamri hæfingarstöð. Í maí 2018 byrjaði ég í nýju
starfi sem ráðgjafi hjá Virk starfsendurhæfingarsjóði. Þar sem
tilgangur með þjónustunni er að aðstoða fólk við að komast til
vinnu. Um er að ræða markvissa einstaklingsmiðaða ráðgjöf og
þjónustu á sviði starfsendurhæfingar sem krefst fullrar þátttöku
viðkomandi einstaklings.