Iðjuþjálfinn - 2020, Side 52

Iðjuþjálfinn - 2020, Side 52
52Iðjuþjálfinn 1/2020 Góð leiðsögn sem og góð reynsla nemenda í vettvangsnámi er talin leiða af sér góða fagímynd og faglegt öryggi og eru nemendur þá betur í stakk búnir til þess að starfa sem iðjuþjálfar. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á viðhorf nemenda til leiðsagnar í vettvangsnámi í iðjuþjálfunarfræði í Háskólanum á Akureyri. Sú spurning sem leiðir verkefnið er: Hvað einkennir leiðsögn leiðbeinenda sem styður við nám á vettvangi að mati iðjuþjálfanema? Til þess að svara spurningunni var notast við eigindlega aðferðafræði og upplýsinga aflað með úrvinnslu á svörum 54 iðjuþjálfanema úr matsheftinu ,,Mat nemenda á reynslu úr vettvangsnámi” frá árunum 2014-2018 og stuðst við eigindlega innihaldsgreiningu við greiningu gagna. Niðurstöður voru settar fram í fjögur meginþemu: Tækifæri á vettvangi, vikulegir fundir, góð fyrirmynd og góð leiðsögn og þrjú undirþemu sem heyra undir góða leiðsögn: Gefa endurgjöf, örva faglega rökleiðslu og hvetja til sjálfstæðis. Samkvæmt niðurstöðunum þá virðast tíð og góð samskipti og tengsl milli nemanda og leiðbeinanda skipta höfuð máli um gæði leiðsagnar. Mikilvægt er að huga vel að jafnvægi milli nemanda, náms og umhverfis þ.e. að kröfur námsins séu í samræmi við getu og hæfni nemandans sem og að hann upplifi sig við stjórn á því sem hann fæst við og skiptir hann máli. Lykilhugtök: Vettvangsnám, leiðsögn, leiðbeinandi, iðjuþjálfanemi, fagímynd Höfundur: Ásta Margrét Jónsdóttir, Leiðbeinandi: Hólmdís Freyja Methúsalemsdóttir Ásta MargrétLEIÐSÖGN Í VETTVANGSNÁMI Rannsóknaráætlun þessi er lokaverkefni til BS gráðu í iðju- þjálfunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna viðhorf framkvæmdastjóra hjúkrunar- heimila á þeim möguleika að öldruð hjón geti búið saman á hjúkrunarheimili þegar aðeins annað þeirra er metið í þörf fyrir þjónustu vegna heilabilunar. Rannsóknir sýna að þegar aðili flyst inn á hjúkrunarheimili, frá maka sínum, vegna heilabilunar hefur það ýmis áhrif á velferð hjónanna og hlutdeild þeirra í mikilsmetinni iðju. Samkvæmt rannsóknum eru viðhorf heilbrigðisstarfsfólks oft önnur en viðhorf aldraðra hjóna í þessari stöðu og því er persónumiðuð nálgun mikilvæg. Á Íslandi geta hjón ekki búið saman í hjúkrunarrými á öldrunarstofnun nema bæði séu metin í þörf fyrir þjónustu samkvæmt færni- og heilsumati. Notast verður við eigindlega rannsóknaraðferð, nánar tiltekið vinnulag grundaðrar kenningar. Gagnaöflun fer fram í viðtalsformi og skilyrði fyrir þátttöku eru að vera starfandi framkvæmdastjóri á hjúkrunarheimili sem býður upp á og hefur reynslu af þjónustu fyrir aldraða einstaklinga með heilabilun á Íslandi. Rannsóknarspurningin sem höfð er að leiðarljósi er: “Hvaða möguleika telja framkvæmdastjórar hjúkrunarheimila á að þróa þjónustu til að öldruð hjón geti búið saman í hjúkrunarrými þegar aðeins annað þeirra er metið í þörf fyrir þjónustu vegna heilabilunar, út frá færni og heilsumati?” Lykilhugtök: heilabilun, öldruð hjón, sambúð, hjúkrunarrými á öldrunarstofnun. Höfundar: Þórhildur Sölvadóttir, Aldís Anna Þorsteinsdóttir og Eydís Helga Garðarsdóttir, Leiðbeinandi: Olga Ásrún Stefánsdóttir GETA ÖLDRUÐ HJÓN FLUTT OG BÚIÐ SAMAN Á HJÚKRUNARHEIMILI ÞEGAR ANNAÐ ÞEIRRA ER METIÐ Í ÞÖRF FYRIR ÞJÓNUSTU VEGNA HEILABILUNAR. VIÐHORF FRAMKVÆMDASTJÓRA HJÚKRUNARHEIMILA Eydís Helga, Þórhildur og Aldís Anna

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.