Skólavarðan - 2017, Qupperneq 9

Skólavarðan - 2017, Qupperneq 9
HAUST 2017 9 þátt í verkefninu áttað sig á að ekki yrði aftur snúið. „Við finnum að það hafa orðið töluverðar breytingar á skólastarfinu frá því verkefnið hófst. Nemendur segjast vera ánægðari og áhugasamari um námið því þeir hafa aukið val um hvernig þeir nálgast viðfangsefni og hvernig þeir vinna verkefni. Vægi beinnar töflukennslu og eyðufyllinga- verkefna hefur minnkað hjá kennurum og þeir eru í auknum mæli að leggja fyrir samvinnuverkefni þar sem nemendur vinna á skapandi hátt sem er einmitt í samræmi við þau markmið sem lagt var upp með.“ „Við getum útskýrt muninn með því að taka sem dæmi verkefni um hvali,“ segir Sigurður. „Hér áður fyrr þurftu allir að skrifa 100 orða samantekt en nú geta nemendur valið að gera t.d. stutt myndband í iMovie, gera glærukynningu eða eitthvað allt annað. Til viðbótar þá geta þeir auðvitað valið að skrifa þennan 100 orða pistil ef það hentar þeim best. Það að nemendur hafi val um framsetningu á verkefnum skiptir máli, því verkefnið sem slíkt er ekki markmiðið heldur að nemendur fræðist um hvali. Enda snýst innleiðingin á spjaldtölvum í raun ekki um spjaldtölvur heldur að innleiða breytta kennsluhætti og breyta þeim í kennsluhætti 21. aldarinnar.“ Með snjallsíma í fyrsta bekk „Við þetta má bæta að spjaldtölvan eykur möguleika á einstaklingsmiðuðu námi til muna,“ segir Björn. „Tökum sem dæmi þá sem eru sterkir námslega. Þeir hafa þarna möguleika á að kafa dýpra í náms- efnið þegar við erum ekki með samræmd verkefni. Þessir nemendur geta þá unnið mun flóknari og margslungnari verkefni. Þetta er eitthvað sem kennarar hljóta að taka fagnandi því það hefur lengi vafist fyrir skólakerfinu hvernig á að koma til móts við þessa sterku nemendur.“ Snjalltækin gagnist þannig öllum enda sé verið að færa skólastarfið í átt að daglegum veruleika nemenda. „Nemendur alveg niður í fyrsta bekk eru komnir með snjallsíma í hendur og eru vanir að geta nýtt sér þessi tæki til bæði gagns og gamans. Það er þeim fagnaðarefni að geta beitt sömu aðferðum við fróðleiksöflun í skólanum og í lífinu utan skóla,“ segir Björn. Þið talið um breytt vinnubrögð nem- enda. En hvað með kennarann, hvernig þarf hann að breyta sinni vinnu? „Hann þarf að kunna að sleppa,“ segir Sigurður ákveðinn. „Það er það fyrsta. Hjá mörgum þá er það spurning um tíma en ef þú ert að bæta við þig verkefnum þá verður þú að taka eitthvað út. Og ég held að flestir kennarar geri það og flestir hafa tileinkað sér þessa nýju tækni. En við höfum auðvitað alltaf dæmi um kennara sem ætla sér að nota tæknina en samt ekki fyrr en á morgun. Í dag ætla þeir aftur að ljósrita kennsluefnið eins og þeir hafa alltaf gert.“ Vantar tíma til að nýta stuðning Mikil áhersla er lögð á stuðning við kennara í Kópavogi og þar með talið að aðstoða þá við að tileinka sér tæknina og breytta kennsluhætti. „Við tryggjum stöðugan aðgang að símenntunartækifærum fyrir kennara hvort sem það er í formi nám- skeiða, kynninga eða einstaklingsráðgjafar. Í öllum skólum í sveitarfélaginu eru svokölluð leiðtogateymi sem í eru fimm til sex kennarar sem eiga það sameiginlegt að vera áhugasamir, viljugir og jákvæðir í garð verkefnisins og það má segja að þessi teymi dragi vagninn í hverjum skóla fyrir sig. Mér finnst að þetta fyrirkomulag hafi reynst ágætlega. Algengt umkvörtunarefni kennara er að þeir hafa ekki alltaf tíma til að nýta sér þann stuðning sem er í boði.“ Það hefur oft verið talað um að skóla- kerfi séu í eðli sínu íhaldssöm og það er þá ekki síst í augum almennings. Engu að síður hefur gengið vel að innleiða nýja kennslu- hætti á þeim stutta tíma sem liðinn er frá því að verkefnið hófst. „Almenningur hefur ákveðnar skoðanir á því hvernig skólastarf á að vera og þær skoðanir mótast yfirleitt af því hvernig skólastarf var á þeim tíma sem viðkomandi var í skóla. Og svo sjáum við þetta líka að mjög mörgu leyti endur- speglast í nemendunum sem hafa oftar en ekki gríðarlega gamaldags hugmyndir um hvað nám er, og finnst að ef þeir eru ekki með blað og blýant að fylla út í eyður að þá séu þeir ekki í alvöru námi. Ákveðin viðhorfsbreyting þarf því að eiga sér stað og auðveldasti hópurinn hvað það varðar eru kennararnir því að fagfólkið veit hvað þarf til að nám fari fram,“ segir Björn. „Skólakerfið á ekki að hlaupa á eftir öllum nýjustu bólum heldur á það að vera íhaldssamt, ef við horfum t.d. á 20. öldina þá voru tækniframfarir fremur hægar og skólakerfið breyttist í rólegheitum og fylgdi jörn Gunnlaugsson stýrir innleiðingu spjaldtölvu- kennslu í Kópavogi og Sigurður Haukur Gíslason starfar sem einn af þremur kennsluráðgjöfum í tengslum við verkefnið. Útsendari Skólavörðunnar settist niður með þeim félögum á haustdögum og byrjaði á að spyrja einfaldlega hvernig gengi. „Ætli við getum ekki allavega sagt að það hafi komið í ljós að verkefnið er ekki misheppnað,“ segir Björn og hlær. Hann bætir við að líklega hafi allir sem hafi tekið

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.