Skólavarðan - 2017, Side 18
18 HAUST 2017
dæmi um það sem ekki var þegar hún byrjaði
að kenna.
„Við erum að taka við börnum sem áður
voru í sérskólunum en skóli án aðgreiningar
er umdeilanlegur, aðallega fyrir þær sakir
að undirbúningur fyrir þær breytingar hefur
verið af mjög skornum skammti. Það hefði
þurft að undirbúa skólastarfið svo mikið
betur fyrir þessa breytingu. Á hinn bóginn
er það tvímælalaust hollt fyrir börn að sjá að
við erum ekki öll eins og það þarf að taka til-
lit til þeirra sem skera sig úr á einhvern hátt.
Við þurfum öll að koma til móts við þessi
börn og finna okkur í hinni nýju stöðu. Það
er tvennt sem mér finnst sérstaklega að þurfi
að bæta en það strandar ævinlega á fjár-
magni til skólanna. Menntaðir sérkennarar
þurfa að vera við hlið hins almenna kennara
og hinn almenni kennari verður að fá aukna
menntun í sérkennslu með hliðsjón af
þessum breyttu skólaháttum. Við þurfum
að fá meiri stuðning og fræðslu um hvernig
við eigum að kenna þessum nemendum. Allt
þetta kallar á aukið fjármagn sem ráðamenn
virðast ekki hafa skilning á.“
Nemendum af erlendum uppruna hefur
fjölgað undanfarin ár og segir Hildur að það
einnig kalli á breytingu skólastarfsins.
Breytingar á stjórnunarháttum hafa
orðið á þessum tíma.
„Þegar ég hóf störf í Breiðholtsskóla
var hér skólastjóri og yfirkennari. Nú eru í
skólanum skólastjóri og aðstoðarskólastjóri
og þrír deildarstjórar í 50% stöðum.“
Hildur nefnir að skólaárið sé mun
lengra nú en þegar hún byrjaði að kenna
en þá fengu nemendur um þriggja mánaða
sumarfrí.
Góðir kennarar
Hildur er spurð hvað einkenni góðan
kennara.
„Hann þarf að mínu mati að búa yfir
mikilli þolinmæði, festu, áhuga á náms-
efninu, hlýju og mannkærleika auk þess
sem ekki sakar að hann sé hugmyndaríkur
og spaugsamur. Fyrir lifandi löngu var einn
sona minna með íslenskukennara í fram-
haldsskóla sem hann var mjög hrifinn af. Ég
spurði hvað væri svona gott og merkilegt við
þennan tiltekna kennara. Svarið var einfalt:
„Hann er svo rosalega heimilis legur.“ Þetta
svar sagði mér margt um hvernig ungmenni
upplifa góðan kennara og hve nauðsynlegt
það er að vera hlýr og afslappaður auk þess
að vera fær í að miðla sínu námsefni.
Það þarf náttúrlega að miðla náms-
efninu á áhugaverðan hátt þannig að börn
finni tilgang með að læra; ef maður er
að kenna eitthvað sem börnin finna ekki
tilgang í er það dálítið borin von í raun og
veru því tilgangurinn skiptir svo miklu máli.
Þess vegna finnst mér svo gaman að kenna
heimilisfræði því afraksturinn er kominn til
þeirra í lok tímans. En heimilisfræðin snýst
ekki bara um að baka og elda því í þessum
tímum fer fram margvísleg almenn umræða,
meðal annars um matarmenningu og siði
í öðrum löndum og borðhald. Við ræðum
einnig mikið um hreinlæti, matarsóun,
plastmengun og náttúruvernd í beinu
framhaldi.“
Læsi
Hildur segir að það þurfi að efla læsi. „Það
er mjög brýnt mál því það að vera vel læs er
lykillinn að öllu námi. Það þarf að viðhalda
móðurmálinu – og gott betur en það – og
efla læsi. Byrjendalæsi og Pals var innleitt
hér í skólanum fyrir nokkrum árum með
mjög góðum árangi. Það lýsir sér í betri
námsárangri sem nýlegar kannanir hafa
leitt í ljós. Það má aldrei sofna á verðinum
gagnvart móðurmálinu okkar. Þar erum við
skóla fólkið í lykilstöðu ásamt fjölmiðlunum.
Þessi vísa er aldrei of oft kveðin.“
Sjálfstraust
Hildur segir að sér finnist það vera sér mikið
lán að hafa valið kennarastarfið.
„Ég hef kynnst dásamlegu fólki í
skólanum mínum. Fyrir utan nemendurna
hef ég eignast marga af mínum bestu vinum
hér innan veggja skólans, bæði kennara og
annað starfsfólk. Það gleður mig þegar ég
sé að fyrrverandi nemendum okkar gengur
vel; en ég get auðvitað ekki fylgst með
öllum. Við erum að undirbúa nem endur
undir lífið og það er náttúrlega stærsta
áskorunin að undirbúa þá undir fram-
haldsnám. Breiðholtsskóli er mjög góður
skóli og það er okkar stærsta markmið í
raun og veru að skila nemendum héðan
sem öflugum einstaklingum; ekki bara
öflugum námsmönnum heldur líka fólki
með sjálfstraust og sjálfsvirðingu. Það eflir
sjálfs vitund krakka, eins og allra annarra, að
ná árangri. Ef við getum hjálpað þeim að ná
settu marki er til einhvers unnið.“
Hildur við kennslu í Flatey á Breiðfirði. Olíulampi stendur á borðinu.