Skólavarðan - 2017, Page 19

Skólavarðan - 2017, Page 19
HAUST 2017 19 Um áttatíu manns sóttu umræðufund KÍ sem var meðal viðburða á Fundi fólksins sem fram fór í Hofi á Akureyri í september. Lagt var upp með spurninguna hvort kennarinn yrði óþarfur í framtíðinni; hvort tæknin myndi leysa hann af hólmi. Þá var velt upp spurningunni hvort tölvu- og tæknivæðing nútímans væri til þess fallin að auka skilvirkni og gæði í skólastarfi. Fjörugar umræður voru á fundinum en í pallborði voru Anna R. Árnadóttir, leik- skólastjóri Krógabóls, Hans R. Snorrason, grunnskólakennari í Hrafnagilsskóla, Guð- jón H. Hauksson, framhaldsskólakennari í Menntaskólanum á Akureyri og Helena Sigurðardóttir, kennsluráðgjafi í Háskólan- um á Akureyri. Fundarstjóri var Aðalheiður Steingrímsdóttir, varaformaður KÍ. Fram kom að kennarar líta tækniþróun nútímans jákvæðum augum og telja að tölvu- og netvæðing geri það að verkum að hægt sé að búa til fjölbreyttara námsefni, ná betur til nemenda og gera námið meira einstaklingsmiðað en áður. Hlutverk kennarans var rætt og fram kom að eftir sem áður verði það mikilvægt. Hversu tækni- væddir sem nemendur eru þá verður alltaf þörf fyrir mannlega handleiðslu; kennara sem hefur yfirsýn, hvetur og veitir aðhald. Hvenær verður nemandinn í forgrunni en ekki kennarinn? spurði Helena Sigurðar- dóttir kennsluráðgjafi. Hún sagði nem- endamiðað nám hafa átt erfitt uppdráttar hérlendis og þar þyrfti að bæta úr. Kennsluhættir hafa tekið breytingum og svo mun verða áfram. Fram kom að þörfin fyrir einhæfa kennsluhætti, svo sem að lesa upphátt af glærum, væri hverfandi en þess í stað ættu menntayfirvöld að hvetja til útgáfu námsefnis í tölvutæku formi, myndböndum og öðru slíku sem hentaði betur í kennslu. „Tilgangur skóla er að vera samfélag utan um nemendur þar sem þeir vinna í hópum og afsala sér ákveðnu einstaklings- frelsi til hópsins og læra að búa í samfélagi. Það er skóli og þess vegna getur kennari ekki verið app,“ sagði Guðjón H. Hauksson. NÁMSEFNI VERÐI ÓKEYPIS OG FRAMBOÐ AUKIÐ Löngu er tímabært að ráðast í aðgerðir til að auka framboð á vönduðum og fjölbreyttum náms- og kennslugögnum. Náms- og kennslugögn eiga að vera nemendum að kostnað- arlausu frá upphafi leikskóla til loka framhaldsskóla og í tónlistarskólum til að tryggja jafnrétti til náms óháð efnahag og aðstæðum. Svo hljóðar inntak ályktunar sem var samþykkt á málþingi Skólamálaráðs KÍ, sem fram fór 5. september síðastliðinn. Ríflega 60 manns sóttu málþingið. Erindi fluttu Anna María Gunnarsdóttir framhaldsskólakennari, Daníel Arason, fyrrverandi skólastjóri, Fjóla Þorvaldsdóttir leikskólakennari, Kristjana Hrafnsdóttir grunnskólakennari, Ómar Örn Magnússon aðstoðarskólastjóri, Margrét Júlía Rafnsdóttir verkefnastjóri, Hrefna Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri og Aðalheiður Steingrímsdóttir, varafor- maður KÍ. Meðal aðgerða sem fundurinn lagði til voru bætt aðgengi nemenda að tölvum og tæknibúnaði, afnám skatts á bækur og úttekt á þörfum nemenda og kennara fyrir vönduð náms- og kennslugögn. Hægt er að horfa á málþingið á vef Netsamfélagsins, www.netsamfelag.is. Yfirskriftin er: Skóli framtíðar – námsgögn fortíðar. KENNARAR ERU JÁKVÆÐIR Í GARÐ TÆKNINÝJUNGA Góð þátttaka var á umræðufundi KÍ sem bar yfirskriftina „Verður framtíðarkennarinn app?“ Anna R. Árnadóttir, Guðjón H. Hauksson, Helena Sigurðardóttir og Hans Rúnar Snorrason voru í pall- borði á viðburði Kennarasambandsins á Fundi fólksins 2017 á Akureyri.

x

Skólavarðan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.