Skólavarðan - 2017, Page 25
HAUST 2017 25
MIKILVÆGT AÐ KOMA ÁBENDINGUM Á RÉTTAN STAÐ
Tryggvi Hermannsson, tónlistarkennari í
Tónlistarskólanum á Egilsstöðum, hefur verið
trúnaðarmaður í þrjú ár. Hann segist hafa
sótt alla þá fræðslu sem er í boði. „Það hefur
verið áhugavert að sækja námskeið og ekki síst
gaman að hitta fólk. Það er gott að fræðast um
allt sem viðkemur starfi trúnaðarmanns, um
mannleg samskipti og vanda sem getur komið
upp á vinnustöðum.“
Tryggvi segist ekki hafa haft mikið að
gera undanfarið sem trúnaðarmaður. „Það
ríkir almennt mjög góður andi innan veggja
tónlistarskólans. Helstu málin sem upp hafa
komið snerta kjaramál – þó það hafi líka komið
upp erfið mál – en sem betur fer hefur tekist
að leysa vel úr þeim. Samskipti við stjórnendur
eru almennt mjög góð og samfélagið í skólanum
okkar er auðvitað lítið,“ segir Tryggvi.
Starf og nærvera trúnaðarmanns skiptir
máli að mati Tryggva. „Það er mikilvægt að
koma mikilvægum og góðum ábendingum um
það sem þarf að laga innan skólans á réttan
stað, starfseminni til heilla og stjórnendum til
eftirbreytni.“
Tryggvi segir samskiptin við KÍ hafa verið
ágæt og þangað sé gott að leita þegar upplýs-
ingar um ákveðin atriði vantar. Tryggvi Hermannsson, tónlistarkennari
og trúnaðarmaður.
TRÚNAÐARMAÐUR GENGUR STRAX Í VERKIN
„Verkefnin sem koma á mitt borð snúa einkum
að miðlun upplýsinga. Það gengur oftast vel að
leysa úr málum enda eru samskipti við stjórn-
endur skólans góð,“ segir Ólöf María Gunnars-
dóttir, grunnskólakennari í Landakotsskóla.
Ólöf María hefur verið trúnaðarmaður í
á þriðja ár og segist kunna starfinu vel. „Það
vafðist ekki fyrir mér að bjóða mig fram á
sínum tíma. Ég er með meistaragráðu í stjórnun
menntastofnana og hef alltaf haft mikinn áhuga
á réttindamálum, skipulagi skólastarfs og því að
röð og regla sé á öllum hlutum.“
Ólöf María kveðst ánægð með fræðsluna
á námskeiðinu. „Það er nauðsynlegt að halda
námskeið fyrir trúnaðarmenn varðandi starf
og skipulag KÍ og því sem snýr að skyldum og
störfum trúnaðarmanna. Það sem stóð upp úr
að mínu mati var fyrirlestur Önnu Rósar um
ráðningarmál og réttindi. Þetta eru mál sem
koma á borð trúnaðarmanna og því nauðsynlegt
að þekkja til þeirra,“ segir Ólöf María og bætir við
að hún leiti oft upplýsinga og ráðgjafar hjá KÍ.
„Trúnaðarmaður gegnir mikilvægu hlut verki
og ástæðan er auðvitað sú að starfsfólk þarf að
geta leitað til einhvers sem það treystir og sem
gengur í verkin strax og af öryggi þar til lausn er
fundin,“ segir Ólöf María og bætir við að heilt yfir
hafi tekist að leysa farsællega úr málum.
Ólafía María Gunnarsdóttir, grunnskóla-
kennari og trúnaðarmaður.
MEST SPURT UM VINNUMATIÐ
„Ég er nú frekar nýr í starfi trúnaðarmanns, var
kosinn í ágúst,“ segir Simon Cramer, dönsku-
kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
Simon segir að það hafi ekki verið erfið
ákvörðun að bjóða fram krafta sína í starf trún-
aðarmanns. „Mér hafa alltaf þótt réttindamálin
áhugaverð og nú fæ ég að vinna að þeim. Þetta
passar líka ágætlega við nám sem ég stunda í
mannauðsstjórnun.“
Simon hefur líka kynnst starfi trúnað-
armanns með öðrum hætti og má kannski
segja að hann hafi þetta í blóðinu. „Móðir mín
hefur verið trúnaðarmaður í Danmörku um
langt árabil og síðustu fimmtán árin hefur hún
gegnt formennsku í Trúnaðarmannasambandi
danskra grunnskólakennara. Ég hef auðvitað
alltaf fylgst með hennar störfum,“ segir
Simon.
Fyrstu vikurnar í starfi trúnaðarmanns
hafa ekki verið verkefnalausar og segir Simon
mestan tíma fara í vinnumat kennara. „Það er
mikið spurt út í vinnumatið og einkum eru það
nýir kennarar sem leita upplýsinga. Ég hef því
reynt að hjálpa fólki að skilja útreikninga og
þar hefur bókin um vinnumatið komið sér vel.
Að sama skapi hefur verið gott að leita til KÍ
með fyrirspurnir. Svör berast jafnan fljótt og
samstarfið við Kennarahúsið er gott.“
Simon segir starf trúnaðarmanns mikil-
vægt og í því sambandi kemur orðið traust fyrst
upp. „Það er nauðsynlegt fyrir starfsfólk að geta
leitað til trúnaðarmanns með álitaefni og vita
að trúnaðarmaðurinn mun vinna í málinu og
ekki hætta fyrr en það er til lykta leitt,“ segir
Simon og bætir við að hingað til hafi samskipti
við skólastjórnendur gengið vel.
Simon Cramer dönskukennari og trún-
aðarmaður.