Skólavarðan - 2017, Qupperneq 27

Skólavarðan - 2017, Qupperneq 27
HAUST 2017 27 afar fjölbreytt en markmið áætlunarinnar er almennt að auka gæði í menntun á öllum skólastigum, efla sköpunargáfu, innleiða upplýsingatækni og efla starfsmenntun. Þjónustan þykir góð Umsóknir eru afgreiddar á Landskrif- stofunni við Borgartún og ekki fást allar umsóknir samþykktar. Árangurshlutfallið er mismunandi á milli flokka og á milli ára. Ágúst segir að í mati sem gert var á fram- kvæmd áætlunarinnar í öllum löndunum þá hafi komið fram að fólk væri almennt sátt við þjónustuna hér á landi. „Við vorum mjög ánægð að heyra að fólk væri sátt við þjónustuna, líka þeir sem höfðu fengið neikvætt svar við umsókn. Fólk fær endurgjöf, það er hægt að leita ráðgjafar hér á á skrifstofunni um hvað megi bæta en við höfum ekki tök á að setja fram mikið af skriflegum athugasemdum um hverja umsókn. Kennarar hafa alltaf verið duglegir að hafa samband og svo er auðvitað til stór hópur kennara sem hefur tekið þátt í verkefnum og kennarar leita auðvitað mikið hver til annars.“ Grunn- og framhaldsskólar eiga eftir að verða alþjóðlegri Erasmus+ er ekki bara stærsta mennta- áætlun veraldar heldur er hún einnig talin best heppnaða áætlunin í sögu Evrópusambandsins. „Þessi áætlun hefur verið velheppnuð frá upphafi og áhrifin á þátttakendur meira og minna mjög jákvæð. Það er erfitt að mæla nákvæmlega áhrifin á stofnanir og á skólastigin í heild. Við sjáum hins vegar hvað samstarf af þessu tagi getur haft jákvæð áhrif á þróun einstakra skóla og stofnana. Ég ætla að halda því fram að Háskóli Íslands og þær miklu breytingar sem hafa orðið síðustu 25 árin tengist virkri þátttöku í Erasmus. Til þess að verða fullgildur þátttakandi í áætluninni varð Há- skólinn að auka kennslumagn á ensku. Við það jókst áhuginn jafnt og þétt og nú tekur HÍ við helmingi fleiri nemendum en þeir senda út – það skapar forsendur fyrir enn frekara alþjóðlegu samstarfi sem aftur eykur burði skólans á alþjóðavísu. Þannig vindur þetta upp á sig,“ segir Ágúst og bætir við að sams konar dæmi megi sjá í leik-, grunn- og framhaldsskólum, og einnig á ákveðnum landssvæðum. „Mögulega er alþjóðasamstarf af þessu tagi enn mikilvægara í smærri skólasam- félögum úti á landi. Þar má til dæmis nefna Menntaskólann á Tröllaskaga sem er sérdeilis virkur og til margra ára hafa grunnskólarnir á Akureyri verið mjög virkir svo dæmi séu tekin,“ segir Ágúst. Til framtíðar litið þá telur Ágúst víst að grunnskólinn og framhaldsskólinn muni feta sömu leið og háskólarnir hafa gert á undanförnum árum. „Þetta helst í hendur við samfélagslegar og tæknilegar breytingar. Við lifum í svo alþjóðlegu umhverfi, bilið á milli landa er orðið svo lítið, hugmyndirnar flæða hratt og nemendur eru fjölþjóðlegir í öllum skilningi. Það má alltaf finna einhvern í skólanum sem er fæddur í öðru landi eða hefur búið í öðru landi. Heimurinn færist sífellt nær og þess vegna held ég að bæði grunn- og framhaldsskólarnir eigi eftir að verða enn alþjóðlegri í framtíðinni,“ segir Ágúst Hjörtur Ingþórsson að lokum. Segir árið á Ítalíu hafa breytt lífi sínu Þóra Arnórsdóttir fjöl- miðlakona var í hópi þeirra fyrstu sem fóru utan á vegum Erasmus. Hún hélt til náms á Ítalíu og segir árið sitt þar hafa breytt lífi sínu til frambúðar. ,,Ég tel afar mikilvægt að áætlunin nái til stærri hóps – ekki bara þeirra sem fara í háskóla. Eins og við þekkjum á Íslandi eru viðkvæmir hópar sem hætta námi í menntaskóla, sem gæti skipt miklu að fengju svona tækifæri. Eins er stefnan sú að gera það auðveldara að sækja nám í fleiri en einum evrópskum háskóla, án þess að þurfa að semja um mat á einingum o.s.frv,” sagði Þóra um upplifun sína á vefnum www.erasmus. plus.is.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.