Skólavarðan - 2017, Page 32
32 HAUST 2017
til dæmis Toyota á Íslandi hingað inn sem
gestakennara. Við kennum í dag nemendum
á allan þann búnað og alla þá tækni sem er í
þeim bílum sem seldir eru í dag.“
Námið í sífelldri endurskoðun
Sigurjón leggur áherslu á hversu mikilvægt
samstarf við atvinnulífið sé og undir það
taka Ingi Bogi og Marín. Þau segja að þar
liggi mikil þekking og geta sem nauðsynlegt
sé að tengja skólastarfinu. „Við þurfum að
spyrja hvernig nemendur atvinnulífið vill
fá út úr þessu námi og hvernig við getum
brugðist við breyttum kröfum fyrirtækjanna.
Atvinnulífið er raunar í mjög góðri stöðu til
að þróa námið enda er því ætlað að sinna
um helmingi af menntun þessara nemenda
með starfsnáminu. En okkar megin þurfum
við t.d. stöðugt að vinna í því að endurskoða
námskrána, breyta áföngum og/eða setja
inn nýja. Við erum líka að skoða hvort við
séum að kenna eitthvað sem er gamalt og
úrelt, það er verkefni sem mun aldrei ljúka.
Annað sem tengist þessu er símenntun
kennara, sem auðvitað þurfa að þekkja alla
þessa nýju tækni til að geta kennt hana.
Þar treystum við líka mikið á samstarf
við atvinnulífið. Þar erum við reyndar í
ákveðinni klemmu því það er mikið að
gera hjá þeim fyrirtækjum sem við erum í
samstarfi við og þau eru ekki alltaf tilbúin
að missa starfsmenn sína hingað inn til að
sinna endurmenntun. Það er líka mikið að
gera hjá kennurunum okkar, nema kannski
rétt yfir hásumarið þegar lítið sem ekkert
framboð er á námskeiðum og fræðslu fyrir
þá,“ segir Marín. „Sumir kennararnir okkar
hafa reyndar leyst þetta með því að vinna
einfaldlega tímabundið á einhverju verk-
stæðinu þar sem nýjasta tækni er í notkun,
sem er dýrmætt,“ bætir Sigurjón við.
Frá vinstri. Ingi Bogi Bogason aðstoðarskólameistari, Sigurjón Geirsson Arnarson, deildarstjóri bílgreina og Marín Björk Jónasdóttir, sviðsstjóri iðn- og
starfsnáms.
MÁLNINGARHERMIR
Borgarholtsskóli festi nýlega kaup á öflugum málningarhermi sem nýttur er til
kennslu í bílamálun. Nemandinn stendur þá fyrir framan sjónvarpsskjá með
málningarkönnu í hendinni. Hermirinn er mjög raunverulegur hvort sem um er að
ræða hljóðið sem heyrist þegar sprautukannan er í notkun eða hvernig verkið birtist
á stórum sjónvarpsskjánum fyrir framan nemandann. Tækið mælir hversu þykku
málningarlagi er sprautað, hversu mikið efni er notað, hvað það hefði kostað o.s.frv.
Hægt er að stjórna loftþrýstingi, spíssastærð og fleiru og upplifunin er nánast alveg
eins og ef nemandinn væri að mála í sprautuklefa. Slíkir hermar eru notaðir víða
um heiminn, meðal annars til að þjálfa menn sem mála orrustuþotur fyrir ameríska
herinn og þá sem mála fyrir Benz, BMW og fleiri stóra bílaframleiðendur.