Skólavarðan - 2017, Page 36
36 HAUST 2017
Ragnheiður Bjarnadóttir ólst upp á bæ í Skagafirði þar
sem var gamalt, fótstigið orgel.
„Ég hef sennilega byrjað að spila á það fimm eða sex
ára og rétt náði niður á fótstigið. Ég hafði alltaf ánægju
af þessu; mér fannst þetta vera spennandi og skemmti-
legt.
Ég fór í tónlistarnám á Hofsósi sjö ára og lærði þar á
píanó þar til ég kláraði 10. bekk, en ári eftir að ég byrjaði
í tónlistarskólanum fengum við píanó á heimilið. Svo fór
ég í Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki og var jafnframt í
tónlistarskólanum þar í þrjú ár. Veturinn 1994-95, þegar
ég hafði útskrifast sem stúdent, fór ég aftur í tónlistar-
skólann á Hofsósi og tók 8. stig um vorið.“
Ragnheiður flutti suður haustið 1996, þá 20 ára,
og hóf nám við píanókennaradeild Tónlistarskólans í
Reykjavík. Það nám tók þá þrjú ár.
„Ég held að ég hafi valið píanókennaradeildina af
því að ég er svo rosalega praktísk; ég taldi mig vita að ef
ég ætlaði að vinna við tónlist yrði ég örugglega að kenna,
a.m.k. líka, og þá væri málið að læra það.“
Ragnheiður segir að hún hafi verið ánægð með
námið í deildinni.
„Mér fannst þetta vera mjög flott nám. Ég sótti
meðal annars tíma í kennslufræði og sálfræði. Mér
Ragnheiður Bjarnadóttir hefur starfað
sem píanókennari í 20 ár. Hún kennir í
Tónskóla Eddu Borg sem er í samstarfi
við grunnskóla í hverfinu þannig að
Ragnheiður kennir sumum nemend-
um sínum þar á morgnana. Svava
Jónsdóttir fór á fund Ragnheiðar.
SKÓLARNIR
SPILI SAMAN