Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 50

Skólavarðan - 2017, Blaðsíða 50
50 HAUST 2017 Ragnheiður Bóasdóttir, sérfræðingur á skrifstofu mennta- og vísindamála í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, fer fyrir stýrihópi sem ætlað er að fylgja eftir niðurstöðum úttektar Evrópumiðstöðvar og styðja við ákvarðanatöku um innleiðingu og framkvæmd stefnunnar menntun án aðgreiningar. Mikið verk er fyrir höndum í skólasamfélaginu en það hefur líka margt þegar áunnist. Stýrihópurinn vinnur með niðurstöður úttektar Evrópumiðstöðvar um menntun án aðgreiningar og sérþarfir sem gefin var út fyrr á þessu ári. Evrópumiðstöðin gerði úttektina í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið, velferðarráðu- neytið, Samband íslenskra sveitarfélaga, Kennarasamband Íslands, Heimili og skóla, Skólameistarafélag Íslands og fleiri. „Skýrslan segir okkur margt. Eitt af því er að við sjáum berlega að ólíkir hópar innan skólasamfélagsins leggja svolítið mismunandi merkingu í hvað menntun án aðgreiningar feli í sér. Við höfum reyndar kosið að nota vinnuheitið Menntun fyrir alla um stefnuna – okkur finnst það eiga betur við,“ segir Ragnheiður. Í ljósi mismunandi skilnings var ákveðið að opna umræðuna um mennta- stefnuna með því að efna til málþings. Sérfræðingar sem höfðu unnið að úttekt- inni voru meðal fyrirlesara á málþinginu Menntun fyrir alla sem fram fór í ágúst síðastliðnum. „Þetta var góð leið til að ýta umræðunni af stað og við fengum mikið af góðu efni, hugmyndum og gagnlegri um- ræðu. Almenn ánægja var með málþingið en við gerum okkur grein fyrir að það eru hópar sem hefðu þurft að vera þarna; til dæmis var enginn sem skráði sig sem formlegur nemandi eða foreldri og tímasetningin var á viðkvæmum tíma, við upphaf skólaársins.“ Ragnheiður segir stýrihópinn munu nýta margar leiðir til að koma umræðu um menntun fyrir alla af stað. „Við erum að vinna að kynningu með ýmsum hætti og höfum komið okkur á dagskrá á ýmsum viðburðum sem eru í gangi nú í haust; til dæmis hjá Grunni, Skólameistarafélagi Íslands, Félagi framhaldsskólakennara, Skólamálaráði KÍ og á Skólaþingi sveitarfélaganna. Við erum líka í óðaönn að smíða kynningarefni af ýmsum toga og erum byrjuð að safna saman helstu niðurstöðum og tillögum í tengslum við úttektina. Skipaður hefur verið vinnuhópur með samstarfsráði um starfsþróun kennara og stjórnenda. Öll gögn verða vistuð á vef- svæði ráðuneytisins sem er í smíðum og auk þess ætlum við að búa til slæðukynningar sem verða sniðnar að mismunandi hópum. Við sjáum fyrir okkur kveikjur sem ætlað er að búa til samtal og einnig kynningarmyndbönd þar sem stefnan er kynnt frá ýmsum hliðum,“ segir Ragnheiður. Tökum bara næstu lest Stýrihópurinn er skipaður út árið 2019 en að sögn Ragnheiðar verður verkefninu ekki lokið þá. „Við erum kappsöm og nú er markmiðið að ýta lestinni af stað. Ég segi stundum að þetta séu margar lestir og ef við missum af einni þá tökum við bara næstu. Við megum ekki missa okkur í hvatvísi og óþolinmæði. Við verðum að vera skipulögð og forgangsraða verkefnum með tilliti til þeirrar tímalínu sem ráðherra hefur falið okkur að vinna eftir.“ LYKILATRIÐI AÐ BYGGJA UPP LÆRDÓMSSAMFÉLÖG Ragnheiður Bóasdóttir fer fyrir stýrihópi um framkvæmd menntastefnunnar Menntun fyrir alla. MYND: ANTON BRINK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Skólavarðan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.