Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 06.02.2021, Blaðsíða 64
VeganDóttur liggur á hjarta að sýna að veganmatur er einkar gómsætur og einfaldur í gerð. MATARMYNDIR/RAFAEL ZAJAC Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Hann pabbi minn er veiði­maður. Ég fór eitt skipti með honum á andaveiðar, en það var áður en ég valdi græna lífsstílinn. Þess vegna fannst mér svolítið skondið að velja nafnið VeganDóttir á veitingastaðinn; á dönsku hljómar það eins og ég sé dóttir manns sem er vegan, en pabbi er það auðvitað ekki,“ segir Kolbrún Gunnarsdóttir, Vegan­ Dóttir, og bætir kát við: „Hæ, pabbi! Ég elska þig!“ Bjargvættur dýra Kolbrún er tónlistarkona og mat­ gæðingur, fædd í Reykjavík árið 1990 en fluttist með móður sinni til Danmerkur á fimmta árinu. „Mamma vildi mennta sig sem Waldorf­kennari, sem þá var ekki hægt heima á Íslandi. Síðan höfum við flutt margoft fram og til baka á milli Íslands og Danmerkur, en ég hef lengst af búið hér úti og tala bæði og skrifa dönsku betur en íslensku,“ segir Kolbrún sem lokið hefur meistaragráðu í tónlist og hljóðframleiðslu. „Ég bý í litlu húsi í danskri sveit, umkringd fagurri náttúru. Ég elska dýr og í húsinu mínu eru frekar mörg dýr sem ég hef bjargað frá slæmum örlögum. Draumur­ inn er að eignast stóra jörð, byggja mér leirhús, stunda þar síyrkju og bæta við enn f leiri dýrum til að tryggja þeim gott og langt líf.“ Maturinn seldist strax upp Í fyrrasumar opnaði Kolbrún veit­ ingastaðinn VeganDóttir nálægt gömlu lestarstöðinni í Álaborg. „Ég hafði lengi gengið með þann draum í maganum að opna matsölu fyrir grænkera. Hug­ myndin kviknaði þegar ég var enn í tónlistarnámi við háskólann í Álaborg, en eftir að hafa öðlast reynslu við að reka gistiheimilið Kirkjuból í Önundarfirði í hálft ár heima á Íslandi fannst mér ég til­ búin til að reka eigin veitingastað. Ég fór því á viðskiptanámskeið þar sem ég lærði allt um að stofna og reka fyrirtæki, og fann með mér tvo eistneska viðskiptafé­ laga, þau Rasmus Raspel og Paulu Uspenski, og saman höfum við látið drauminn um vegan­staðinn rætast,“ segir Kolbrún, en þríeykið er allt grænkerar og Kolbrún síðan 2014. VeganDóttir matreiðir góm­ sætan grænkeramat sem hitt hefur Dani í hjartastað. „Strax fyrsta daginn myndaðist löng röð við VeganDóttur og maturinn seldist upp. Við erum staðsett í Kærbyen sem er vinsælt fjölskylduhverfi og upplifum mikinn áhuga íbúanna og annarra sem drífur alls staðar að, ekki bara grænkera heldur alls konar fólk sem elskar matinn okkar og hugsjónir.“ Vinsælast á matseðlinum eru fjórir djúsí hamborgarar; osta­ borgari, sveppaborgari, pestó­ borgari og chili­bbq­borgari. „Bráðum bætast við gómsæt salöt og samlokur úr heima­ bökuðu súrdeigsbrauði,“ upp­ lýsir Kolbrún sem gerir allan mat VeganDóttur frá grunni. „Allur okkar matur er glútenlaus og hægt að velja mismunandi brauð fyrir hamborgarann, glútenlaust, brioche og súrdeigsbrauð. Við notum aðallega lífrænt grænmeti sem er ræktað í nærumhverfinu og ekki sprautað með neinu. Við fáum líka grænmeti sem er ræktað í síyrkjugörðum (e. premaculture gardens), það er enn betra og ferskara en lífrænt ræktað. Við hugsum líka mikið um að nota frekar baunir, sólþurrkaða tómata og f leira úr ál­ eða glerumbúðum sem hægt er að endurnota oftar en plast.“ Kemur vonandi líka heim Hvort Kolbrún komi með Vegan­ Dóttur til Íslands verður tíminn að leiða í ljós, en hún segist meira en til í það. „Vonandi. Okkur langar að sýna hversu girnilegur veganmatur er og hversu auðvelt er að matreiða hann. Það er líka ástæða þess að við ákváðum að bjóða upp á veislu­ mat fyrir grænkera og matbúum vegankrásir fyrir ýmsa menningar­ viðburði, stundum með lifandi tónlist og alls konar fræðandi vinnustofum.“ Kolbrún gefur lesendum einfalda en einkar ljúffenga uppskrift að kartöfluklöttum. „Ég valdi þessa uppskrift því að kartöflur eru grænmeti sem auð­ velt er að rækta á norðurslóðum og er því bæði umhverfisvæn fæða og ódýr, en líka dásamlega góð.“ Fyrir ferðalanga og mataráhuga­ fólk sem vill gæða sér á grænkera­ réttum VeganDóttur er staðurinn í Álaborg, nálægt lestarstöðinni á Hjulmagervej 58, 9000 Aalborg, beint fyrir utan gamla, stóra bygg­ ingu sem var í gamla daga lestar­ geymsla en hýsir nú fullt af litlum fyrirtækjum og kallast Råt&Godt (Hrátt & Gott). Kartöflufríkadellur 8 stykki Upplagt er að nota kartöflur frá deginum áður og það sem til er í grænmetisskúffunni þar sem inni­ haldslýsingin er ekki heilög. Það sama gildir um „umami“­bragðið... þetta sem fær marga til að segja „Vá! Er þetta í alvöru vegan?“. Því næ ég með því að nota dijonsinnep, soja­ sósu, sólþurrkaða tómata og nær­ ingarger. Það má alveg eins nota sveppi, þang, ólífur, balsamik­edik, tómatpuré, ferska tómata, grillað eða steikt grænmeti, kryddað með reyktri papriku, ristuðum fræjum, hnetum og grænmetiskrafti. Nýtum endilega það sem til er, til að koma í veg fyrir matarsóun! 5 soðnar kartöflur* 1 soðin gulrót 3 hakkaðir sólþurrkaðir tómatar 1 msk. dijonsinnep 2 msk. sojasósa 4 msk. næringarger** 1 dl haframjöl 2 msk. olía Blandið öllu saman með töfra­ sprota eða með því að stappa hrá­ efnin saman. Bætið þá við einum söxuðum lauk, 1 dl hveiti, salti, pipar, tabasco­sósu eða öðrum kryddum. *Ekki þarf að taka hýðið af kart­ öflunum. **Næringarger er óvirkt ger, sem líkist gulum hafraflögum og er skylt sveppum. Það sem er sérstakt við næringarger, fyrir utan öll B­ vítamínin sem það inniheldur, er að það bragðast eins og hnetur eða ostur. VeganDóttir er dóttir veiðimanns Tónlistarkonan Kolbrún Gunnarsdóttir býr í danskri sveit með dýrum sem hún hefur bjargað frá slæmum örlögum. Hún er matgæðingur mikill og rekur nú vinsælan grænkerastað í Danmörku. Þríeykið Rasmus Raspel, Kolbrún og Paula Uspenski. MYND/ROCCO PEDITTO VeganDóttir notar eingöngu lífræn og glútenlaus hráefni í réttina sína. Hamborgarar VeganDóttur eru æði. BYGGINGARIÐNAÐURINN Nánari upplýsingar veitir: Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is • Sími 694 4103 Þriðjudaginn 23. febrúar gefur Fréttablaðið út sérblað um allt sem viðkemur byggingariðnaðinum á Íslandi, hvort það eru bæjarfélög, verktakafyrirtæki, trésmiðjur og söluaðilar byggingarvöru. Tryggðu þér gott auglýsingapláss í langmest lesna dagblaði landsins. FERMINGARGJAFIR Fimmtudaginn 15. mars gefur Fréttablaðið út bráðsniðugt aukablað sem innheldur ótal hugmyndir að fjölbreyttum fermingargjöfum. Allir sem hafa fermst vita að dagurinn og ekki síst gjarnar lifa í minningunni um aldur og ævi. Tryggðu þér got glýsingaplá s í langmest lesna dagblaði landsins. Upplýsingar hjá auglýsingadeild Fréttablaðsins í síma 512 5402 eða sendu okkur póst á netfangið serblod@frettabladid.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . F E B R ÚA R 2 0 2 1 L AU G A R DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.