Gisp! - 12.03.2005, Page 160

Gisp! - 12.03.2005, Page 160
Sá sem leitar að myndasögum í París þarf ekki að fara langt. Á svæðinu kringum gatnamót Rue St. Germain-de-Prés og Boulevard St. Michel í Latínuhverfinu eru fjölmargar búðirsem eingöngu bjóða upp á myndasögur og annað efni þeim tengt. Auk franskra myndasagna í öllum sínum fjölda og fjölbreytileika eru til sölu kynstrin öll af þýddum myndasögum, einkum japönskum, og óendanlegt magn innfluttra myndasagna af öllum gerðum, þó sér í lagi þeirra sem oft eru kallaðar hasarblöð. Hingað kemur Erró þegar hann vill veiða úr myndasögum. Hann fer búð úr búð og er fljótur að sjá hvað höfðartil sín. Augun hvarfla rannsakandi um allt, fingurnir leika um blað eftir blað, fletta hratt, þetta er nánast ómeðvituð athöfn þar sem myndirnar grípa hann eða fæla frá. Hann drekkur í sig myndir, maðurinn er eins og togari með botnvörpuna úti. Að segja fyrir um hvert fætur, fingur og augu Errós leiða hann næst í bóka- og blaðarekkum þessara búða er eins og að ætla sér að sjá fyrir breytingar í íslensku veðurfari. / J ^ 1 Myndasagan er eitt af fjölmörgum byggingarefnum Errós, en þótt hún sé mjög áberandi í verkum hans, jafnvel meginuppistaðan í heilum syrpum, eryfirleitt Iftið fjallað um þátt hennar í list Errós nema þá sem tákn. Nær væri að segja að hann noti myndefni hasarblaðanna og annarra myndasagna eins og orð og setningar. Hann er á mörkum frásagnarinnar. Margar mynda hans minna á myndasögurán ramma. Frásögnin er opin og þráðlaus, jafnháð rúmi og tíma. Sjálfur hefur hann líkt sér við blaðamann, einhvers konar skrásetjara sem horfir á myndir heimsins og raðar þeim saman. Þjálfað auga myndasögulesand- ans (og þá sérstaklega hasarblaðalesandans) tekur eftir persónunum, sagnaröðunum ogteiknurunum sem Erró vinnur með. Þessi lesandi hugsar kannski: „Hvað er hann að skreyta sig þessum stolnu fjöðrum? Gat nú verið að hin æðri list þurrmjólkaði þá lægri! Hvað er hann að stela kraftinum úr þessum sögum oggera að sínum?" Auga hins listmeðvitaða safngests tekur eftir ólgandi myndbyggingunni, snilldarlegum stefnumótum ólíks myndefnis og pólitískri tíðaranda- draumvitund málarans. Þessi áhorfandi hugsar kannski: „Hvaðan fær hann þessar persónur, þessa dramatík? Hvernig getur hann gert svona mikið með svona lítið, þessa ómerkilegu afþreyingu, þessi hasarblöð?" Erró kýs sjálfur að svara spurningum með því að mála. I vel skipulagðri vinnustofunni heldur hann áfram endalaust eins og ennþá sé alltof mikið eftir afverkumað mála. Hannfleygirsérniðurá legubekk í tíu mínútur og rís svo upp endurnærður. Eftirlaun? „Þessir vinir mínir sem hættir eru að vinna, banka- stjórarnir, lögfræðingarnir, læknarnir... Þeireru að drepast úr leiðindum og aðgerðarleysi, í orðsins fyllstu merkingu! Þessir menn hringja og vilja endilega hitta migyfir hádegisverði sem varir klukkustundir því þeir hafa ekkert að gera! 35 klukkustunda vinnuvika? Algjör della og kosningabrella sósíalista." HASARINN í NEW YORK Á milli þess sem við gröfum okkur í gegnum stafla af klippimyndum ræðum við saman. Mér leikur forvitni á að vita hvenær augu hans opnast fyrir myndasögunum. Það er augljóst að kynni Errós af Bandaríkjunum gegna þar lykilhlutverki en þangað fer hann fyrst í desember 1963. „Ég hafði ekki séð myndasögur í Frakklandi, það var erfitt að ná í myndasögur hér og mér fannst lítið til af þeim. [ Belgíu voru þær fleiri. [ New York fann ég fljótt 3-4 stórar myndasögubúðir með gríðarlegu magni blaða." Erró byrjaði að sækja efni í myndasöguna þegar þetta tjáningarform gekk (gegnum miklar breytingar vestan hafs og austan. [ Bandaríkjunum var handritshöfundur að nafni Stan Lee kominn fram á sjónarsviðið hjá Marvel Comics og í samvinnu við teiknara á borð við Jack Kirby og Steve Ditko endurnýjaði hann amerísku ofurhetjuhefðina eftir stöðnun eftirstríðsáranna. Nýjar hetjur birtust, til dæmis The Fantastic Fourárið 1961, ogfjölmargar eldri hetjur fengu nýtt líf, þar á meðal Captain America. Þegar leið á áratuginn kom neðanjarðar-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208

x

Gisp!

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gisp!
https://timarit.is/publication/1525

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.