Börn og menning - 01.02.1997, Blaðsíða 4
BÖRN OC /v\ENN|N6
höfum víð svo hérl
Kæri lesandi
Hér hefur þú í höndunum fyrsta tölublað af
breyttri útgáfu tímaritsins Börn og bœkur sem nú
heitir Börn og menning.
í tímans rás hafa fjölmargar áhugaverðar og
skemmtilegar greinar birst í Börnum og bókum en
fjárskortur og smæð ritsins gerðu það að verkum
að of fáir fengu notið þess. í haust barst okkur
myndarlegur styrkur frá Menntamálaráðuneytinu
og þá var það samdóma álit stjórnar Islandsdeildar
IBBY að ráðast í stækkun og eflingu blaðsins. Við
kunnum ráðuneytinu bestu þakkir fyrir styrkinn. í
kjölfarið þótti okkur nafnbreyting blaðsins tíma-
bær, enda er flestum ljóst að lestur góðra bóka
- sem er eitt af meginmarkmiðum IBBY samtak-
anna - hlýtur að vera börnum og ungu fólki
hvatning til að leiða hugann að öðru menningarefni
sem þeim er boðið upp á.
En hvert stefnir þetta blað annað en að skipta
um útlit og nafn? Það er ósk okkar að Börn og
menning verði einn af málsvörum menningar fyrir
böm og ungt fólk á íslandi, jafnframt því að halda
áfram í heiðri markmið IBBY samtakanna sem
beinast að framgangi góðra bókmennta fyrir börn
og ungt fólk og rétti þeirra til að njóta bókmennta á
sínu eigin tungumáli.
Vonandi vekur efni blaðsins gagnrýnar spurn-
ingar sem geta leitt til frekari skilgreininga á fyrir-
bærinu „bamamenning“ og hvemig hægt er að
hlúa að þessu sviði menningarinnar börnum í hag.
En em tengsl bama og menningar eitthvað sem
þarf að huga sérstaklega að? Er „bamamenning“ ef
til vill enn eitt hugtakið sem við fullorðna fólkið
höfum fundið upp til að túlka athafnir bama og
unglinga á okkar eigin hátt? Fyrir nokkmm ámm
var til dæmis veggjakrot í augum fullorðinna ekki
hluti af barnamenningu heldur eiturlyfjaheimi
barna og unglinga og fáir virtust tengja krotið við
sköpunarþörf þeirra. Treystum við bömum og ungu
fólki til að vera virk og endurspegla sín viðhorf í
heimi fullorðinna án þess að sölsa þau undir
okkur? Hlustum við nógu vel á böm? Ut frá hvaða
sjónarhorni er skrifað fyrir þau, samin tónlist,
leikrit? Er þessi hluti menningarinnar metinn á
sama hátt og menning fyrir fullorðna? Hvernig
stendur á því að helstu barnabókahöfundar heims
hafa ekki hlotið Bókmenntaverðlaun Nóbels?
í Börnum og menningu munu fastir liðir skipa
stóran sess en annað efni verður unnið í samræmi
við þá umræðu og viðburði sem eiga sér stað á
hverjum tíma. Þar sem Börn og menning er sérlegt
málgagn íslandsdeildar IBBY, verða fréttir reglu-
lega frá samtökunum hér heima og erlendis.
Bamabókahöfundar og myndlistarmenn munu eiga
sér vettvang í blaðinu og einnig umfjöllun sérfræð-
inga um barnabækur og/eða leikrit. Að minnsta
kosti eitt viðtal verður í blaðinu og í framtíðinni
verður væntanlega ein grein sem tekur fræðilega á
þessum þætti menningarinnar.
Forsíðu Barna og menningar prýðir Ijósmynd
eftir ungan og efnilegan ljósmyndara, Grétu S.
Guðjónsdóttur. Hún útbjó glæsilega ljósmyndasýn-
ingu í tengslum við alþjóðlega ráðstefnu bókavarða
(IFLA) í Kaupmannahöfn í september á þessu ári,
en þar var haldin sýning á bamastarfi í bókasöfnum
á Norðurlöndum. Ljósmyndirnar voru sendar
áfram til sýningar á Bókamessunni í Gautaborg.
Það er augljóst að hér á landi er stór hópur fólks
sem hefur áhuga á og vinnur ötullega að framgangi
menningar fyrir börn og ungt fólk. Stundum eru
orð til alls fyrst og því skulum við, og þar á meðal
þú, kæri lesandi, koma skoðunum okkar og
hugleiðingum á framfæri í Börnum og menningu
og gera þannig skapandi starf fyrir og eftir börn
sýnilegra og öflugra.
Kristín Birgisdóttir
1