Börn og menning - 01.02.1997, Blaðsíða 30
BÖRN 06 /AENNiNG
„...tvterkílegSLSta fólkíð..."
Sigríður Matthíasdóttir barnabókavörður á Bæjar- og héraðs-
bókasafninu á Selfossi hefur byggt upp bamastarfið þar frá gmnni,
eða frá 1984. A þessu ári hlaut hún viðurkenningu frá Islandsdeild
IBBY fyrir gott og mikilsvert starf í þágu bamamenningar á
Islandi. Hún er kennari að mennt og eftir að hafa kennt í fimm ár
ákvað hún að láta ekki þar við sitja heldur hóf nám í bókasafnsfræði við H.I. og er nú að
leggja drög að BA-ritgerð.
Þegar undirrituð hóf störf á Bókasafninu í Mosfellsbæ var mér oftar en ekki vísað á Sirrý
ef ég var að velta einhverju fyrir mér varðandi nýjungar í bamastarfinu. Metnaður hennar og
atorka hefur verið okkur hinum góð fyrirmynd. Nýlega heimsótti ég Sirrý austur og ræddi við
hana um þær hugmyndir sem hún hefur um barnastarf á bókasöfnum.
Hverjir eru helstu stólparnir íharnastarfiþínu?
Þar sem ekkert bamastarf hafði verið áður í safninu
hafði ég nokkuð frjálsar hendur og sneri mér fyrst
að reglulegum sögustundum. Annað var oft
eitthvað sem til féll. Ef staðið er fyrir sérstökum
vikum og dögum sem tengjast bókmenntum nota
ég tækifærið og býð upp á getraunir fyrir krakkana
og fleira í þeim dúr. Fyrir nokkrum ámm byrjuðum
við að útbúa bókmenntagetraun mánaðarins sem er
miðuð við níu til tólf ára börn og stendur yfir
vetrarmánuðina. Safnkynning fyrir 5. bekk er orðin
fastur liður og einnig upplestur úr nýjum barna-
bókum í desember. Síðan hefur Sumarlesturinn
fest sig í sessi hjá okkur og var núna í fimmta
skipti.
Hvað er Sumarlestur?
Þessu verkefni er ætlað að hvetja börn til að halda
áfram að lesa í sumarleyfinu og koma í veg fyrir að
þau tapi niður þeirri fæmi í lestri sem þau öðluðust
um veturinn. I Bandaríkjunum er
algengt að bókasöfn hafi lestrar-
hvetjandi dagskrá á sumrin.
Sumarlesturinn hefur ákveðið þema
sem gengið er út frá þegar safnið er
skreytt og efni útbúið. I eitt skiptið
fjölluðum við til dæmis um hafið og
festum net upp í loftið og fiskur úr
pappa eða annað sjávardýr var tákn
fyrir hverja bók sem lesin var. Börnin kepptust við
að lesa og með því að horfa á netið fyllast áttuðu
þau sig betur á hvað þau höfðu lesið mikið.
Verðlaun em notuð til að auka áhugann og reynslan
af þessu verkefni hefur verið mjög góð og lífgað
heilmikið upp á safnið.
Það nýjasta hjá okkur í bamastarfinu er síðan
krakkakvöldið sem var haldið hér síðast liðinn
vetur í tengslum við bókavikuna „Bók er barna
gaman“. Við höfðum í fyrstu mjög háleitar
hugmyndir um að fá einhvern til að lesa fyrir
bömin og fleira í þeim dúr, en til allrar hamingju
skiptum við um skoðun og bjuggum í staðinn til
nokkrar stöðvar hér í safninu þar sem bömin gátu
spilað, búið til bækur eða lesið. Við auglýstum
kvöldið í skólanum fyrir aldurshópinn sjö til tólf
ára og fengum upp undir tvöhundruð börn í
heimsókn. Við urðum rosalega hissa á þessum
fjölda. En þetta tókst mjög vel, auk þess sem við
lánuðum út geipilegt magn af bókum. Úr því
börnin vom komin á safnið fannst þeim
upplagt að fá sér skírteini og bækur.
Mér fannst lfka gaman að sjá hvað
margir foreldrar komu og hjálpuðu til.
En allt þetta er auðvitað ekki hægt nema
í samvinnu við gott starfsfólk sem er
tilbúið að vera með.
Snúum okkur aðeins aftur að
sögustundinni: lestu hvað sem er fyrir
„Þarna er
konan sem er
alltaf að segja
mér svo jjótar
sögur..."