Börn og menning - 01.02.1997, Blaðsíða 6
BÖRN OG /v\ENN|N6
nýjum bókum. Og síðast en ekki síst hefur tíma-
ritið Börn og bækur, sem nú birtist í breyttri mynd
undir nafninu Börn og menning, komið út tvisvar
til þrisvar á ári.
Fjárhagur er oft á tíðum þröngur, enda eru
áskriftargjöldin eina fasta tekjulindin. Menntamála-
ráðuneytið hefur þó í tímans rás styrkt starfsemina
með ýmsum fjárveitingum. Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar veitti einnig styrk nú í ár en það
mun vera í fyrsta sinn sem sótt var um styrk til
hennar. Þessir styrkir hafa afgerandi áhrif á það
hvað mikið er hægt að gera og ekki hefði verið
gerlegt að ráðast í breytingar á tímaritinu ef þeir
hefðu ekki komið til. Kunnum við Menntamála-
ráðuneytinu og Reykjavrkurborg bestu þakkir fyrir.
Stjórn samtakanna og ritnefnd hafa í tímans rás
lagt á sig ómælda vinnu við félagsstörfin sem seint
verður fullmetin. Á síðasta aðalfundi urðu þær
breytingar á að Helga K. Einarsdóttir og Ragn-
heiður Jónsdóttir létu af störfum í ritnefnd og
Gunnhildur Hrólfsdóttir og Þóra S. Guðmunds-
dóttir hurfu úr stjóm. Allar hafa þær unnið félaginu
ötullega í mörg ár og er þeim þakkað óeigingjamt
framlag og ánægjulegt samstarf. Reyndar nýtur
félagið enn starfa Helgu K. Einarsdóttur þar sem
hún tók sæti í stjóm og er nú varaformaður.
En félag er ekki bara stjómin. I Islandsdeildinni
eru nú rúmlega 220 félagar, bæði einstaklingar og
stofnanir. Það er ósk okkar og von að þessi tryggi
hópur láti meira í sér heyra og að sér kveða í
félagsstarfinu í framtíðinni. Hnippið í okkur, þegar
þið fáið góðar hugmyndir! Sendið okkur línu í
blaðið!
Með fyrirfram þökkum
Iðunn Steinsdóttir
formaður Islandsdeildar IBBY