Börn og menning - 01.02.1997, Side 7
IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR
BÖRN oc /AENN1N6
IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTI
IBBY Fréttir
IRlBBYRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR
vettvangi
heiminum,
Sumardaginn fyrsta var að venju haldinn sumar-
fagnaður Bamabókaráðs Islands í Norræna húsinu.
Þá voru afhentar viðurkenningar fyrir framlag til
íslenskrar barnamenningar og voru þær veittar
Gunnhildi Hrólfsdóttur rithöfundi, Möguleikhúsinu
og Héraðsbókasafninu á
Selfossi.
H.C. Andersen verðlaunin
eru veitt á heimsþingi IBBY
samtakanna sem haldið er
annað hvert ár, hið næsta í
Delhi haustið 1998. Þau em ein
virtustu verðlaun sem veitt eru á
barna- og unglingabókmennta í
enda eru þau oft nefnd litlu Nóbels-
verðlaunin. Þau em veitt einum rithöfundi sem á
langan feril að baki og einum myndlistarmanni.
íslandsdeild IBBY tilnefnir Sigrúnu Eldjárn til
verðlaunanna í ár, bæði sem rithöfund og
myndlistamann.
Sömuleiðis hefur deildin tilnefnt þrjár
bækur á heiðurslista IBBY samtakanna.
Það eru bækurnar Peð á plánetunni jörð
eftir Olgu Guðrúnu Ámadóttur, Risinn þjófótti og
skyrfjallið sem er tilnefnd vegna myndskreytinga
Guðrúnar Hannesdóttur og íslensk þýðing Sigrúnar
Árnadóttur á bókinni Eg sakna þín eftir sænska
rithöfundinn Peter Pohl. Bækur höfunda sem hljóta
tilnefningu til H.C Andersen-verðlaunanna, svo og
heiðurslistabækur, verða til kynningar og sýnis á
vegum alþjóðlegu IBBY-samtakanna á bóka-
stefnunni í Bologna og víðar um heim árið 1998.
IBBY-deildirnar á Norðurlöndum gefa til skiptis
út veglegt sameiginlegt blað og í ár
sá íslandsdeildin um útgáfu þess.
Ritstjóri var Jónína Friðfinns-
dóttir.
Þau leiðu mistök urðu við
vinnslu blaðsins að niður féll
nafn höfundar greinarinnar „Billed-
bpker pá Island 1996: et utvalg“. Þessa ágætu
grein skrifaði Margrét Björnsdóttir forstöðumaður
Skólasafnamiðstöðvar Reykjavfkurborgar og er
hún hér með beðin velvirðingar á mistökunum.
IBBY - Asahi verðlaunin.
Tilnefningar hinna einstöku
deilda til IBB Y-Asahi verð-
launanna eru ekki bundnar
við framtak í landi þeirra.
Barnabókaráðið, Islands-
deild IBBY, tilnefndi að þessu
sinni útgáfuverkefni bókasafn-
amiðstöðvar í Malawi í Afríku, svokallaðan
„Verengani“-bókaflokk. í Malawi eru bamabækur
á tungu heimamanna fágætar og fátækt mikil í
landinu. Bókaútgefendur taka ógjarna á sig
fjárhagslega áhættu af að gefa slrkar bækur út, en
láta nægja að treysta á innfluttar barnabækur, sem
allar eru á ensku.
Bókasafnamiðstöðin hefur, með stuðningi frá
þróunaraðstoð Kanada, gefið út tíu bækur á
tungumálinu „verengani“ fyrir börn og unglinga á
aldrinum sex til átján ára. Þær eru á máli heima-
manna, og byggðar á þeirra eigin menningu og
hafa þær komið að góðum notum. Áætlað er að
reyna útgáfu á tíu bókum til viðbótar á næstu ámm
og tilnefndi Barnabókaráðið það framtak til
verðlaunanna.
I þetta skipti hlaut þó verðlaunin útgáfa á
les- og myndefni fyrir blinda í Japan,
sem á ensku nefnist: „Fureai Bunko
Collection of Braille Picture Books“
og er ekki að efa að styrk til þessa
verkefnis er vel varið.
Norræn IBBY-ráðstefna á Álandseyjum:
Dagana 26. - 28. september s.l. stóð finnska IBBY-
deildin fyrir norrænni ráðstefnu í Mariehamn.
Fyrirlesarar komu frá öllum Norðurlöndunum að
Færeyjum meðtöldum og sömuleiðis frá Hollandi
og Eistlandi. Flestir fyrirlestranna tengdust á
einhvern hátt hafinu og því hvernig návistar þess
gætir í barna- og unglingabókum viðkomandi
landa. Þarna voru sýnd myndbönd sem gerð höfðu
verið eftir bama- og unglingabókum og höfundar
lásu úr bókum sínum á sérstökum samkomum fyrir
börn. Af rithöfundum sem þarna voru má nefna
Mats Wahl, Irmelin Sandman-Fillius, Ulf Sindt og
Steinbjörn J. Jacobsen. Iðunn Steinsdóttir sótti
ráðstefnuna og flutti erindi fyrir hönd íslands-
deildar IBBY.
UIJ-L3ÍIJ xaai Aaai LiiJLLBLiJ Aaai au-L3aj Aaai LIIJUL3LIJ Aaai inj-L3iij Aaai Aaai liijjljlij Aaai uij-ljuj Aaai uijj.juj Aaai liijjlsuj Aaai
5
IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IBBY FRÉTTIR IR IBBY FRÉTTIR IBBY IBBY FRÉTTIR