Börn og menning - 01.04.2013, Qupperneq 12

Börn og menning - 01.04.2013, Qupperneq 12
12 Börn og menning með því að hirða tennurnar vel og að staðaldri" (Morgunblaðið 1954, 31. október). Þetta er alls ekki fyrsta og hvað þá síðasta skipti sem börn eru hrædd til hlýðni og vöruð við afleiðingum sætindaáts eða ofáts. Þetta sjáum við hvað eftir annað í alþýðuævintýrum þar sem börn springa, fá garnaflækju eða hreinlega deyja, til dæmis af því að drekka of mikið kalt vatn, borða of mikið svínakjöt eða hakka í sig of mikið af kökum. Sjálfur Gosi varð að asna vegna sælgætisáts og Hans og Gréta lentu aldeilis illa í því af sömu ástæðu. Nýjustu viðvörunarsögurnar eru Latabæjarbækurnar og sjónvarpsþættirnir þar sem börn eru hvött til að borða grænmeti og ávexti en forðast sykur og sætindi. Foreldrar, kennarar, uppeldisfrömuðir og heilbrigðisstéttin gripu tækifærið og hafa nýtt sér Karíus og Baktus við hvert tækifæri til að hvetja börn til að bursta tennurnar og huga að tannheilsunni. Egner var til að mynda verðlaunaður af samtökum danskra tannlækna fyrir bók sína. Hér á fslandi var í mörg ár að finna veggspjöld með bræðrunum á tannlæknastofum og Tannverndarráð (slands birti árum saman auglýsingu þar sem tilkynnt var að Karíus og Baktus færu ekki I jólafrí! Því væri nauðsynlegt að bursta tennurnar um jól sem aðra daga. Ótal vísanir í söguna er svo að finna í ræðu og riti, einkum hvað varðar tannheilsu en bræðrunum hefur líka verið beitt til áhersluauka, svo sem í umfjöllunum um pólitík og landsstjórnarmál. í útvarpi, sjónvarpi, bók og á sviði Karíus og Baktus hafa ekki aðeins notið vinsælda á íslandi heldur um allan heim og sagan hefur til dæmis verið gefin út á öllum Norðurlöndum, Englandi, Ítalíu, í Ungverjalandi, Japan og Bandaríkjunum svo að fáein dæmi séu nefnd. Leikritið hefur sömuleiðis verið flutt á sviði í ótal löndum sem og útvarpi. Árið 1954 var einnig framleidd 15 mínútna brúðumynd eftir sögunni og var sú framleiðsla í höndum Norðmannsins Ivos Caprinos. Kvikmyndin var sýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes og meðan á sýningunni stóð var brúðunum stolið. Þeim var sem betur fer skilað daginn eftir. Brúðumyndin var sýnd I Stjörnubíói í Reykjavík árið 1956 en auk myndar Caprinos hafa nokkrar myndir, bæði brúðumyndir og leiknar myndir, verið framleiddar eftir sögunni. Hér á fslandi hefur sagan verið margflutt í útvarpi, fyrst í barnatíma útvarpsins í febrúar árið 1956 í flutningi Árna Tryggvasonar leikara og síðan hvað eftir annað í útvarpi allra landsmanna, bæði í flutningi Árna og annarra leikara. Eftir því sem ég kemst næst var leikritið fyrst sett á svið hér á landi érið 1961 á barnaskemmtun sem haldin var af fjáröflunarnefnd húsbyggingasjóðs Leikfélags Reykjavíkur. f hlutverkum tannálfanna voru þær Sigríður Hagalín og Helga Valtýsdóttir. Árið 1970 var þetta sama leikrit sýnt í Stundinni okkar í leikstjórn Helga Skúlasonar en leikarar voru Sigríður Hagalín og Borgar Garðarsson. Karíus og Baktus hafa sprellað á sviði ýmissa félagasamtaka og leikfélaga vítt og breitt um landið. Árið 2001 var leikritið svo í fyrsta sinn á fjölum Þjóðleikhússins og árið 2007 tók Leikfélag Akureyrar bræðurna upp á sína arma. Vinsældir leikritsins hafa þó ef til vill verið hvað mestar á barnaplötum en árið 1965 kom út hjá SG-hjómplötum upptaka af leikgerð Helgu Valtýsdóttur, Sigríðar Hagalín og Helga Skúlasonar og naut fádæma vinsælda. Söngvar bræðranna og saga hefur svo fengið að hljóma á ótal barnaplötum síðan, síðast árið 2010. Karíus og Baktus sigla um og leita að nýrri tannholu Það liggur við að það sé náttúrulögmál að barnasögur endi vel. Geri saga það ekki er hreinlega ekki um barnaefni að ræða. Því er þó ekki að neita að örlög bræðranna eru svolítið tvíbent og litlar sálir finna oft óskaplega til með þeim - enda er sögusamúðin miklu frekar með þeim en drenghnokkanum Jens. Jens skyrpir bræðrunum út úr sér og í kjölfarið detta þeir ( þvottaskálina, renna í skólprörið og „langt út í stóra djúpa hafið, og þar sigla þeir nú og leita eftir nýrri tannholu til að skríða inn í" (14). Og líti lesandi á síðustu teikninguna í bókinni sjást bræðurnir á fleka úti á reginhafi, ekki mjög miður sín, en að minnsta kosti svolítið hugsi. Þeir þurfa kannski ekki að kvarta en varla fara þeir að syngja „Að vera glaður-lagið" fyrr en þeir finna sér nýja holu. Höfundur er doktorsnemi í íslenskum bókmenntum Bæjarpóstur Þjóðviljans skrifar um tannhirðÞ og tannpínu: Æjá, og svo gefur maður börnunum Karíus og Baktus í jólagjöf, reynir að kenna þeim að hirða tennurnar og fara reglulega til tannlæknis. „Tannlæknirinn er bezti maður í heimi," o.s.frv- en sjálfur er maður í hjarta sínu skítlogandi hræddnr við þennan bezta mann í heimi og hummar frarT1 af sér i lengstu lög að fara á hans fund. En eftK hverja tannpínu strengir maður þess heit að láía slíkt aldrei henda aftur, fara reglulega tvisvar á ári og vera fyrirmynd barnanna í þessum efnum- (Þjóðviljinn 1955, 10. febrúar)

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.