Börn og menning - 01.04.2013, Qupperneq 24

Börn og menning - 01.04.2013, Qupperneq 24
24 Börn og menning sem ég kynntist - Moses Serwadda frá Úganda - gaf út bók sem ég er mjög stolt af að hafa stuðlað að, fyrst og fremst vegna þess að ég kom honum í kynni við bandarískan tónlistarfræðing og þeir urðu síðan samstarfsmenn. Þeir skrifuðu saman bók sem fékk stórkostlegar viðtökur og er enn álitin besta safn af sögum og söngvum fyrir börn frá Afríku sem gefið hefur verið út í Bandaríkjunum. Hún heitir Songs and stories from Uganda. Ég sagði börnunum í Alþjóðaskólanum á Islandi eina af þessum sögum og þau voru mjög hrifin af henni. Höfundurinn átti mjög erfitt. Hann sat í ríkisstjórninni en var hent út þegar Idi Amin komst til valda. Sem betur fer fékk hann síðan stöðu við háskólann í Ghana. Hann var mjög hæfileikaríkur og hafði numið þjóðfræði, en tónlistin var fjölskylduhefð og flesta söngvana og sögurnar lærði hann af ömmu sinni. Svo gerðist það að til mín í UNICEF kom tónlistarfræðingur sem starfaði við háskólann í New York og hafði fengið styrk til Afríkudvalar. Hann sagðist vera að leita að fólki sem kynni skil á tónlistarhefðinni þar og gæti orðið honum innan handar við að skrifa bók um hana. Og ég sagðist einmitt þekkja rétta manninn! Ég kynnti þá og þeir hófu samstarf og settu saman afskaplega fallega bók. Ég talaði við útgefanda sem ég þekkti og vann hjá forlaginu Thomas Y. Crowell og sagði henni að hún yrði að gefa bókina út. Hún gerði það og bókin fékk fjölda verðlauna og er enn talin besta bókin af þessu tagi." William Moses Serwadda var bónda- sonur frá héraðinu við strendur Viktoríuvatns í Úganda sem lagði stund á tónlist frá barnæsku og lauk síðar námi frá háskólanum í Ghana. Hann þykir helsta fyrirmynd þeirra sem leggja stund á hefðbundna tónlist í Úganda og stýrði um árabil sjónvarpsþætti fyrir börn með efni sem byggðist á hefðbundinni tónlist landsins. Hann kenndi síðar við Makerere-háskóla í Úganda. „Það eru hlutir eins og þessi - að hafa getað tengt fólk saman á þennan hátt, eiginlega á bak við tjöldin - sem ég er stoltust af. Það að færa fólkið með hæfileikana saman." „Svo get ég nefnt starfið sem ég vann með dásamlegum sagnaþul frá Mongólíu. Hann langaði afskaplega mikið til að birta eitthvað í Bandaríkjunum og ég bauðst til að vinna með honum. Hann talar ekki mikla ensku og þess vegna varð úr að þeir feðgarnir - sonur hans vinnur líka á þessu sviði - söfnuðu efninu saman og grófþýddu það á ensku. Ég lagfærði svo málfarið og loks leiðréttu þeir textann. Hann var mjög nákvæmur. Með þessu móti gat hann komið bókinni út og mér finnst mjög gaman að hugsa til þess að við skyldum geta gert þetta saman." Mongólski sagnamaðurinn heitir Jambyn Dashdondog og bókin, sem Anne Pellowski talar um, ber heitið Mongolian Folktales og kom út árið 2009. Dashdondog hefur skrifað tugi bóka fyrir börn og ungmenni og átti mikinn þátt í að setja á stofn IBBY-deild í Mongólíu. Hann hefur sömuleiðis stuðlað að þýðingum á erlendum barnabókum á mongólsku. Verðlaunin IBBY-Asahi Reading Promotion Award voru veitt árið 2006 fyrir vinnu sem Dashdondog átti frumkvæði að og snýst um að koma börnum í kynni við bækur með starfrækslu ferðabókasafna.

x

Börn og menning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Börn og menning
https://timarit.is/publication/1541

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.