Börn og menning - 01.04.2013, Page 32
32
Börn og menning
Eins og flestir félagsmenn vita er IBBY á íslandi
deild innan alþjóðlegu IBBY-samtakanna
ásamt um sjötíu öðrum landsdeildum, en
þeim hefur farið fjölgandi á undanförnum
árum. Höfuðstöðvar samtakanna eru í Basel
í Sviss en á skrifstofunni þar starfa Liz
Page, framkvæmdastjóri, og aðstoðarmaður
hennar, Luzmaria Stauffenegger. Árgjöldin
frá landsdeildunum standa undir rekstri
skrifstofunnar, en upphæð þeirra er metin
út frá efnahagslegu ástandi viðkomandi
lands, eða bókaútgáfu á hvert mannsbarn.
Upphæðin sem IBBY á íslandi greiðir á
ári er um 360 þúsund krónur - þar sem
bókaútgáfan hér á landi er svo lífleg. Eftir
hrunið 2008 reyndum við að fá hana
lækkaða vegna þess hve svissneski frankinn
rauk upp í verði gagnvart íslensku krónunni
en það reyndist ekki mögulegt.
Stjórn alþjóðlegu samtakanna
Formaður og stjórn samtakanna (Executive
Committee, EC) vinna hins vegar í
sjálfboðavinnu, og eru kosin til tveggja ára
í senn, síðast á IBBY-ráðstefnunni ( London
haustið2012. Núverandi formaðurer Ahmad
Redza Ahmad Khairuddin frá Malasíu en
( stjórninni sitja tólf manns frá ýmsum
löndum. IBBY-deildirnar keppast gjarnan við
að eiga fulltrúa ( stjórninni, eða ákveðið
landsvæði, t.d. Evrópa eða Norðurlöndin,
tekur sig saman um að mæla með fulltrúa
þess svæðis. Viðkomandi aðili þarf að standa
sjálfur undir sínum ferðakostnaði, þannig að
ekki er alltaf auðvelt að fá fólk í framboð, en
þeir sem eiga greiðan aðgang að styrkjum
bregðast yfirleitt vel við beiðni um að bjóða
sig fram.
Þegar stofna á landsdeild er umsókn
send inn til samtakanna og fjallað um hana
á fundi EC. Miklar deilur stóðu um það á
sínum tíma þegar stofna átti deild í Palestínu
þar sem ekki voru allir sammála um að hún
teldist til þjóðríkis. íslandsdeildin var ein af
þeim sem studdu umsóknina með ráðum
og dáð og sem betur fer var hún samþykkt
með meirihluta atkvæða, þannig að nú
starfar blómleg IBBY-deild í Palestínu. Auk
deildanna geta einstaklingar eða stofnanir í
löndum þar sem engin deild starfar sótt um
aðild að samtökunum.
Aðkoma IBBY á Islandi
IBBY á íslandi hefur frá upphafi tekið virkan
þátt í alþjóðlegri starfsemi samtakanna, sótt
heimsþing IBBY, tilnefnt bækur á heiðurslista
og til H.C. Andersen-verðlaunanna og átt
fulltrúa í EC.
Heimsþingið er haldið annað hvert ár
og flakkar milli landa sem bjóðast til að
halda það en stundum er att miklu kappi
um að hljóta þann heiður. Þingið hefur
ekki enn verið á íslandi en fulltrúar íslensku
deildarinnar hafa verið duglegir að sækja
þingið þótt þeir þurfi sem einstaklingar að
sjá um fjármögnun ferðarinnar. Við höfum
átt fulltrúa í Indlandi, Suður-Afriku, Kína,
Kólumbíu og víðar á jarðkringlunni, en
sennilega mættu flestir þegar heimsþingið
var haldið í Kaupmannahöfn árið 2008. Þá
tóku sex stjórnarkonur sig saman, leigðu
íbúð í miðborginni og sóttu áhugaverða
fyrirlestra þá þrjá daga sem þingið stóð.
Þema þingsins var „Stories in History -
History in Stories" og þangað hópuðust
um 500 rithöfundar, myndlistarmenn,
bókaverðir, kennararog fræðimenn. Margrét
Danadrottning var verndari heimsþingsins
og um leið H.C. Andersen-verðlaunanna.
Síðastliðið haust var heimsþingið haldið f
London en hið næsta verður í Mexíkóborg
í september 2014. Ef félagar hafa áhuga á
því að sækja heimsþingið er þeim velkomið
að hafa samband við stjórnarmenn til skrafs
og ráðagerða.
Á hverju ári tilnefnir hver IBBY-deild þrjár
bækur á heiðurslista IBBY en lesa má nánar
um heiðurslistann á vefsíðunni okkar, wvvw.
ibby.is. Þá tilnefndum við annað hvert ár
frá árinu 1988 bækur til H.C. Andersen
verðlaunanna en hættum því eftir árið
2000 vegna kostnaðar. Einnig tilnefnir
IBBY á íslandi rithöfund til Astrid Lindgren-
verðlaunanna og höfum við á sl. árum tekið
okkur saman við aðra tilnefningaraðila á
íslandi og valið hann í sameiningu.