Studia Islandica - 01.06.1937, Side 48
EFTIRMÁLI.
Saga Oddaverja er alkunn og víða skráð að meira
eða minna leyti. Það sem að framan er rakið af sögu
ættarinnar, er ekki sett hér í þeirri veru, að flytja nýj-
ungar; flest einstök atriði eru t. d. að finna í hinni
merku bók Halldórs Hermannssonar, Sæmund Sigfús-
son and the Oddaverjar. Fyrir mér vakti alveg ákveð-
inn hlutur: aðstaða, hugsunarháttur og menntun ætt-
arinnar var með því móti, að það hlaut nærri því að
leiða af sér rit af ákveðnu tagi, og þegar til eru í forn-
bókmenntunum slík rit, er í alla staði eðlilegt að hugsa
sér þessi rit einmitt skrifuð af Oddaverjum eða í
grennd við þá. Af þessu var nauðsynlegt að segja
nokkuð fyrst frá ættinni: það var grundvöllurinn.
Síðan var reynt að finna sem mest af sérstökum rök-
semdum, auk hinna almennu; en það liggur í hlutarins
eðli, að slíkt er oft erfitt, enda hér farnar brautir, sem
lítt voru troðnar áður. En þó að sérstöku tengslin væru
í veikara lagi stundum, þá áttu þó alltaf við orð Snorra:
„liggja svá víkr í Leginum sem nes í Selundi“. Og það
hef ég þá oft orðið að láta mér nægja, en vona, að ekki
sé einskis vert, að vakið sé máls á þessu. Þó að oft sé
ekki unnt að gefa öruggt svar, þá getur stundum verið
betur spurt en óspurt.