Fréttablaðið - 06.03.2021, Síða 2

Fréttablaðið - 06.03.2021, Síða 2
Ég var búinn að taka nánast allt húsið í gegn, smíða svefn- loft, klifurveggi og ég veit ekki hvað og hvað. Jóhann Ingi Helgason Eldgos talið ólíklegt Keilir séður vestan megin frá á dulúðugu Reykjanesinu. Þótt kvikuhreyfingum sé ekki lokið telja vísindamenn ekki miklar líkur á eldgosi þegar þetta er skrifað. Ef til goss kemur benda öll fyrir liggjandi gögn til þess að það verði á svæðinu milli Fagra dals fjalls og Keilis. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR STRÆTÓ Bæjarráð Mosfellsbæjar hefur samþykkt beiðni Strætó bs. um að sækja um 300 milljóna króna yfirdrátt, í öryggisskyni, til að tryggja fjárstreymi fyrirtækisins út árið. Á fundi samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í byrjun febrúar var fjárhagsleg staða og rekstraráætlun kynnt, þar sem var samþykkt að fyrirtækið fengi leyfi til að sækja um yfirdráttinn. Á fundinum kom fram í máli Jóhannesar Rúnarssonar, fram- kvæmdastjóra Strætó, að gert væri ráð fyrir að tekjur ársins yrðu 80 prósent af tekjum ársins 2019. Tekjur fyrir COVID-árið 2020 hefðu verið 800 milljónum lægri en áætl- anir gerðu ráð fyrir. Taka þurfi lán til að mæta þessu tekjufalli. – bb Strætó bs. fær stóran yfirdrátt vegna faraldurs COVID-19 lék Strætó afar grátt á síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK SAMFÉLAG Jóhann Ingi Helgason starfaði á sínum tíma sem yfirf lug- stjóri hjá WOW air og nú er hann f lugmaður hjá Play. Vegna heims- faraldursins hefur síðarnefnda f lugfélagið ekki náð að komast á f lug, ef svo má að orði komast. Jóhann Ingi situr þó ekki auðum höndum og smíðar nú útistóla undir nafninu jHandmade. „Ég var ráðinn sem f lugstjóri hjá Play árið 2019 og út af COVID-19 er náttúrulega ekkert búið að gerast. Við sitjum því bara og bíðum eftir því að hlutirnir lagist. Í millitíðinni hefur maður verið á fullu að finna sér eitthvað að gera. Ég var búinn að taka nánast allt húsið í gegn, smíða svefnloft, klifurveggi og ég veit ekki hvað og hvað. Svo núna um áramótin eru öll þessi verkefni búin. Þá fór maður að spyrja sig hvað maður ætti að taka sér næst fyrir hendur,“ segir Jóhann Ingi. Hann segir það hafa hjálpað mikið að hafa nóg fyrir stafni til að halda sönsum. „Ég veit ekkert hvernig þessi hug- mynd kom til mín en ég ákvað að smíða útistól fyrir pallinn. Ég fór aðeins að líta í kringum mig og skoða ýmsar tegundir stóla. Síðan fann ég þessa tegund sem kallast Adirondack og er mjög vinsæl í Bandaríkjunum og Kanada. Þetta er svo svokölluð „Cape Cod“-útgáfa af stólum sem ég er að smíða. Ég fékk nokkurs konar uppskrift á netinu og byrjaði á fullu að smíða í bílskúrnum,“ segir hann. Jóhanni Inga langaði til að gera veglegan en jafnframt þægilegan stól. „Svo þegar ég er búinn að smíða stólinn þá hafa margir orð á því við mig að þeim langi í svona stól. Þá fer ég af stað með nokkurs konar fikt og þróun, til að þeir henti fyrir íslenskt veðurfar. Hugsunin hjá mér var sú að stóllinn geti staðið úti allan ársins hring, öðruvísi en með baststólana með pullunum sem enda úti um allt í veðrum og vindum.“ Stólarnir koma í nokkrum teg- undum og hefur Jóhann Ingi gefið þeim virðuleg nöfn á borð við Jarl og Hertogi. „Þetta eru náttúrulega frekar massífir stólar úr þungum við. Ég smíða stólinn og unnustan mín sér um kynningarmálin, þú hefðir kannski átt að tala frekar við hana,“ segir hann og hlær. Jóhann Ingi hefur alltaf verið handlaginn, í það minnsta að sögn móður hans. „Mamma segir það allavega. Mér hefur alltaf þótt sérstaklega gaman að vinna úr timbri. Það er stundum eins og það hafi sprungið poki af sagi hérna og allt undirlagt af sagi, ryki og drullu. En þetta er eins mikil heima- framleiðsla og hugsast getur. Ég smíða þá og mála úti í bílskúr, svo eru þeir teknir hérna inn í stofu til að þorna. Þetta er eins heimilislegt og hugsast getur,“ segir hann léttur í bragði. steingerdur@frettabladid.is Stólar á handverkið Flugstjórinn Jóhann Ingi var ráðinn til Play, sem hefur ekki enn hafið flug- starfsemi vegna COVID. Hann hugsar í lausnum og handsmíðar nú útistóla. Flugstjórinn Jóhann Ingi situr ekki auðum höndum heldur smíðar nú Adiron dack-stóla sem henta vel íslensku veðurfari. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SAMGÖNGUMÁL Kef lavíkurf lug- völlur hlaut viðurkenningu fyrir þjónustu við farþega hjá Alþjóða- samtökum flugvalla, ACI. Er hann meðal átta f lugvalla í Evrópu sem taka við 5 til 15 milljónum farþega árlega sem hlutu viðurkenninguna. Hinir eru í Lundúnum, Belgrad, Portó, Möltu, Kraká, Faro og Sotsji. Viðurkenningin hefur verið veitt síðan árið 2004 og Keflavíkurflug- völlur hefur áður verið með þeim efstu. Að þessu sinni var bætt við sér- stökum hreinlætisf lokki í ljósi heimsfaraldursins. Hlaut Kef la- víkurflugvöllur viðurkenningu þar einnig ásamt 14 öðrum flugvöllum í Evrópu. – khg Hreinlæti gott á flugvellinum Keflavíkurflugvöllur hlaut einnig viðurkenningu fyrir hreinlæti á COVID- tímum. DÓMSMÁL Héraðsdómur Reykja- víkur hafnaði í gær kröfu Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menn- ingarmálaráðherra, um að ógilda úrskurð kærunefndar jafnréttis- mála um að ráðherrann hefði brot- ið lög með því að vanmeta konu í samanburði við karl. Málið var höfðað gegn Hafdísi Helgu Ólafsdóttur sem kærði ráðn- ingu Páls Magnússonar í embætti ráðuneytisstjóra. Íslenska ríkið mun bera 4,5 milljónir króna í málskostnað en ráðherra hefur þegar tilkynnt að dómnum verði áfrýjað til Lands- réttar. Mun hún ekki tjá sig um málið meðan það er til afgreiðslu hjá dómstólum. – ilk, ókp Dómur hafnar kröfu ráðherra Málinu verður áfrýjað til Landsréttar. 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM 6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.