Fréttablaðið - 06.03.2021, Qupperneq 68
Símon Helgi Ívarsson var meðal fyrstu Íslendinga til að ljúka framhaldsnámi erlendis sem einleikari á gítar, ef ekki sá fyrsti. Hann vill ekkert full-yrða. „Ég lærði í Vínarborg, í
Hochschule für Musik und darstellende
Kunst. Flestir hugsuðu til Spánar en á
þeim tíma var aðferð skólanna þar svo
ströng að fólk þurfti að byrja alveg frá
byrjun. Það fannst mér ekki aðlaðandi.
Inntökuskilyrðin voru ekki jafn ströng
í Vín, þó þar sé gömul hefð fyrir gítar-
leik. Ítalir komu þangað mikið, það var
ekki hægt að lifa af tónlist á þessu sviði
á Ítalíu þannig að menningarborgir eins
og Vín og París löðuðu að sér gítarleik-
ara sunnan frá.“
Þó að gömlu meistararnir hafi verið
þekktari fyrir annað en gítarleik segir
Símon Schubert hafa átt gítar. „Það er
talið að Schubert hafi samið mörg laga
sinna með gítar í hönd. Hafi oft farið út í
Vínarskóga og samið þar og þá var hand-
hægt að taka gítarinn með. Sá er til sýnis
í Schubertsafninu í Vín.“
Símon kveðst hafa laðast að gítarnum
sem sínu hljóðfæri. „Gítarinn var til á
heimilinu, móðir mín hafði eitthvað
spilað sér til gamans. Síðan voru það
áhrif frá Bítlunum og því popp-tímabili
sem var þá í gangi sem fengu mig til að
byrja að spila hljóma eftir einhverjum
bókum og slá grip í Bítlalögum,“ lýsir
Símon. Hann kveðst aldrei hafa farið í
hljómsveitarbransa. „Hins vegar hafði
ég upp á gítarkennaranum Gunnari H.
Jónssyni sem kenndi við Tónskóla Sigur-
sveins. Það var mikill fengur að hitta
hann. Þó hann hafi ekki lært erlendis
þá hafði hann sterka sýn á hvað var
að gerast í heiminum og hafði lag á að
vekja áhuga minn fyrir að leita út fyrir
landsteinana. Ég fór strax að kaupa mér
plötur með stórum meisturum eins og
John Williams og Zegovia.“
Spurður hvort hann hafi ekki þurft
að fara varlega með puttana á sér sem
ungur maður hlær Símon. „Það var nú
ekki alltaf í boði því maður lenti í alls
konar störfum eins og fiskvinnu og
vera handlangari hjá múrara. En þann-
ig lærði maður að vinna svo það voru
kostir við það.“
Hvernig skyldi svo hafa gengið fyrir
klassískan gítarleikara að fá vinnu eftir
námið? „Eftir einleikaraprófið í Vín
1980 fór ég fyrst til Sviss og fékk ágæta
kennarastöðu í Luzern bæði við tón-
listarskóla og framhaldsskóla. En það
kallaði á mig að koma heim og ég fékk
strax stöðu í Tónskóla Sigursveins. Það
var mikið sótt í gítarnám og Tónskóli
Sigursveins var staðurinn sem f lestir
leituðu til. Þar var gróska og á þeim tíma
aðalvettvangur fyrir gítarnemendur.
Síðan hef ég kennt þar og er líka við
Listaskóla Mosfellsbæjar. Hef haft nóg
að gera í tónlistinni, stjórna Kammerkór
Mosfellsbæjar og er með hálfgerða fjöl-
skylduhljómsveit sem nefnist Fantasía
flamenca sem var með tónleika í Hörpu
nýlega. Hef samið svolítið í f lamenco-
stíl þegar andinn hefur komið yfir mig
og líka verið að útsetja þannig að mig
vantar ekki verkefni.“
gun@frettabladid.is
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Kristín Bjarnadóttir
Sléttuvegi 19,
lést 28. febrúar á Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 10. mars kl. 15. Allir eru velkomnir eins og
húsrúm leyfir en gestir eru beðnir að hafa með sér á blaði
nafn, kennitölu og símanúmer. Útförinni er streymt á
slóðinni: youtu.be/FkkHVxVRASo
Guðrún Guðmundsdóttir Grétar J. Unnsteinsson
Þorsteinn Guðmundsson Helga Gylfadóttir
Erna Guðmundsdóttir Kristján Viggósson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæra móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Þorbjörg Pálsdóttir
(Bobba)
Bakkastöðum 73, Reykjavík,
lést á Landspítalanum Hringbraut
fimmtudaginn 25. febrúar.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
10. mars klukkan 13. Þeim sem vildu minnast hennar er
bent á hjartadeild Landspítalans.
Kristjana Líndal Sigurður W. Egilsson
Páll Líndal
Ingdís Líndal Hallur Illugason
Unnsteinn Líndal Steinunn A. Guðmundsdóttir
Ævar Líndal
og ömmubörnin stór og smá.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar og tengdafaðir,
Óskar Karl Þórhallsson
(Óskar á Arney)
Garðatorgi 4c, Garðabæ,
lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold,
miðvikudaginn 3. mars. Útförin fer fram frá
Keflavíkurkirkju, föstudaginn 12. mars kl. 11.00.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
facebook.com/groups/oskarkarl
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim
sem vildu minnast hans er bent á Hollvinasamtök
Húsavíkurkirkju. Banki 0133-15-602, kt. 640169-5919.
Agnes Árnadóttir
Lárus Óskarsson Edda Þórðardóttir
Hrefna Björg Óskarsdóttir
Þórhallur Óskarsson Elín Þórhallsdóttir
Karl Einar Óskarsson Anna Pálína Árnadóttir
Kristinn Óskarsson Steinþóra Eir Hjaltadóttir
og fjölskyldur.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Elsku mamma okkar, tengdamamma,
amma og langamma,
Hulda Ágústsdóttir
Asparskógum 22, Akranesi,
lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands,
Akranesi, mánudaginn 1. mars sl.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju
fimmtudaginn 11. mars kl. 13. Vegna aðstæðna verða
aðeins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir athöfnina.
Streymt verður frá athöfninni á vef Akraneskirkju.
www.akraneskirkja.is
Sigurbjörg Jóhannsdóttir Ómar Traustason
Kristjana Jóna Jóhannsdóttir
Sigurður Jóhannsson
Árni Jóhannsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Keypti mér strax plötur
með stórum meisturum
Símon Helgi Ívarsson gítarleikari á merkisafmæli um þessar mundir og hyggst verða
að heiman þann dag. Hann lærði á gítar vegna áhrifa frá Bítlunum. Semur stundum
lög í flamencostíl enda er hann í fjölskyldubandi sem sérhæfir sig í slíkri tónlist.
Símon Helgi laðaðist ungur að gítarnum hennar móður sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Maður lenti í alls konar störfum
eins og fiskvinnu og vera hand-
langari hjá múrara. En þannig
lærði maður að vinna svo það
voru kostir við það.
6 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT