Studia Islandica - 01.06.1986, Síða 115
113
„Það er eins og vaninn sé búinn að gera flesta mennina að
handvélum, sem hann veifar og sveiflar með sama laginu ár
út og ár inn.“ (26) Slíkar mannverur eru í raun ekki annað
en brúður; þær ráða ekki sjálfum sér, gera ekkert af eigin
hvöt, líf þeirra vélræn endurtekning. Gestur lýsir ástand-
inu með myndmáli, sem minnir á absúrdbókmenntir
20ustu aldar. Á götunni mætir hann mönnum, sem eru svo
„óumræðilega líkir, eins og þeir væru steyptir í sama mót-
inu“, að hann getur ímyndað sér „að sá eða sá væri í raun
og veru steyptur blýmaður“. (26) Engrar hreyfingar gætir
fram á við, allt er lamað af ofurvaldi vanans, sem hvílir
eins og martraðarmara yfir hugsunarhættinum. Hvergi eld-
ar fyrir nýrri hugsun: „Allt innihald einstaklinganna eru
gamlar hugsanir og úreltar hugmyndir.“ (26) Mannfólkið
er líkast afturgöngum; líf þess svipað fúlu stöðuvatni, „allt
dofið og kalt og dautt“. (26) Gestur sækir myndmál sitt í
myrkur og tóm þegar hann lýsir þessu mannlífi: niðdimm
nótt, þoka, íshjúpur:
Og yfir öllum þessum hugsunarlausa mannhóp liggur svo andleg hafís-
þoka, köld eins og dauðinn og dimm eins og nóttin, svo enginn sér neitt til
nema bara að rata með matinn á munninn. (29)
Gestur fellir harðan dóm yfir íslensku þjóðlífi; það er
sjúkleg hrollvekja, klofið til róta af flokkadráttum og
stéttaríg. í því eru menn og sviptir frelsi til að lifa og njóta
eins og þeim er eiginlegast af náttúrunnar hendi.
í Lífinu í Reykjavík er að finna drög að andstæðu sam-
félags og náttúru, sem mikið kemur við sögu í skáldverkum
Gests. Hann lofar sjómennina, sem standa næst náttúrunni
að hans dómi. Þeir hafa meira af „óveikluðum náttúru-
kröftum“ og „eru eins og kjarngott og kostamikið land, lítt
yrkt, en líka lítt spillt af mannahöndum.“ (55) Tilvera
þeirra er, með orðum skáldsins, alveg samvaxin náttúr-
unni. f síðustu sögu sinni, Vordraumi, stefnir Gestur sam-
an persónum af heimum samfélags og náttúru, en mótsetn-
ing þeirra er þó ekki algild í líkingu við þversögn lífs og
s