Fréttablaðið - 13.03.2021, Síða 8
NEYTENDAMÁL Könnun Gallup fyrir
samtökin Icelandic Wildlife Fund
(IWF), NASF og Laxinn lifi leiðir í
ljós að 69 prósent Íslendinga telja að
koma eigi fram á umbúðum eldislax
hvort hann komi úr sjó kvía eldi eða
landeldi.
Umhverfissinnar og þeir sem
vilja vernda villta laxastofna á
Íslandi telja sjókvíaeldi óæskilegt.
Þetta á við um þá sem kosta könnun
Gallup sem eru umhverfissjóður-
inn Icelandic Wildlife Fund, NASF
(Verndarsjóður villtra laxastofna)
og félagið Laxinn lifi.
Úrtak könnunar Gallup var 1.587
manns, átján ára og eldri, af öllu
landinu. Af þeim svöruðu 867, eða
54,6 prósent, spurningunni: Ertu
sammála eða ósammála því að
komi skuli fram á umbúðum eldis-
lax hvort hann komi úr sjókvíaeldi
eða laxeldi?
Ef litið er til svarenda í heild þá
lýstu 42 prósent sig mjög sam-
mála ofangreindri spurningu og 27
prósent sögðust frekar sammála.
Þannig telja samtals 69 prósent að
merkja skuli eldislax eftir eldisað-
ferð. Þá sögðust 28 prósent hvorki
vera sammála né ósammála. Aðeins
2 prósent sögðust frekar ósammála
og 1 prósent sagðist mjög ósam-
mála.
Gallup greinir svörin meðal
annars eftir búsetu, kyni, aldri og
stjórnmálaskoðunum. Þar kemur
til dæmis fram að stuðningur við
upprunamerkingar er minnstur
meðal kjósenda Miðf lokksins. Af
þessum hópi segjast þó 50 prósent
annað hvort sammála eða mjög
sammála því að merkja eigi umbúð-
irnar. Það eru síðan kjósendur
Pírata sem lýsa mestum stuðningi
við merkingarnar. Af þeim eru 84
prósent sammála eða mjög sam-
mála.
„Það er mjög ánægjulegt að yfir-
gnæfandi meirihluti íslenskra
neytenda vill fá þessa uppruna-
merkingu á umbúðir utan um
eldislax. Rekjanleiki og upplýsingar
um hvaða aðferðir eru notaðar við
matvælaframleiðslu skiptir fólk
greinilega máli,“ segir Jón Kal-
dal, talsmaður umhverfissjóðsins
Icelandic Wildlife Fund, um niður-
stöður könnunarinnar.
Aðspurður hvort merkingar-
málin séu í ólestri hvað snerti eldis-
lax í verslunum segir Jón svo vera
hjá framleiðendum og pökkunar-
fyrirtækjum sem dreifi til stór-
verslana. „Hinu ber að hrósa að
margir veitingastaðir, ýmsar fisk-
búðir og stöku kjörbúðir hafa sett
upp merkimiða þar sem sést hvort
eldislaxinn kemur úr sjókvíaeldi
eða landeldi,“ tekur hann þó fram.
„Hvort eldislaxinn komi úr
sjókvíaeldi eða landeldi er stórmál
fyrir þau okkar sem er umhugað
um náttúruna og mannúðlega
búskaparhætti,“ svarar Jón því
hvaða máli þessar merkingar skipti.
Jón segir sjókvíaeldi vera meng-
andi iðnað sem skaði villta laxa-
stofna og hann eigi við meiri háttar
dýravelferðarvanda að glíma.
„Eldislaxinn á að stóru leyti
ömurlega tíð í sjókvíunum. Um og
yfir 20 prósent eldisdýranna þola
ekki þá vist sem þeim er búin og
drepast ýmist vegna lúsasmits eða
vetrarsára. Þetta er óásættanleg
aðferð við matvælaframleiðslu.
Það er mikilvægt fyrir neytendur
að geta sniðgengið þessa vöru og
sent framleiðendum hennar þann-
ig skýr skilaboð,“ segir Jón Kaldal.
Einar K. Guðfinnsson, talsmaður
Samtaka fyrirtækja í sjávarút-
vegi, segist ekki vita nákvæmlega
hvernig þessum merkingarmálum
sé háttað. Þau séu ekki samræmd.
„Enda er það þannig að landeldi
í heiminum er svo mikið brotabrot
af heildarframleiðslunni,“ bendir
Einar á. „Vel má vera að einhver
landeldisfyrirtæki kjósi að merkja
sig sérstaklega en almennt er það
þannig að sá lax sem menn borða,
hvort sem þeir kaupa hann á veit-
ingastöðum eða í verslunum, er í 99
prósentum tilvika úr sjókvía eldi.“
gar@frettabladid.is
Flestir vilja upprunamerkja eldislax
Aðeins 3 prósent svarenda í könnun Gallup eru ósammála því að merkja eigi eldislax eftir því hvort hann er úr sjókvíaeldi eða
landeldi. Talsmaður IWF segir merkingar í ólestri. Talsmaður eldisfyrirtækja bendir á að 99 prósent eldislax séu úr sjókvíaeldi.
Hvort eldislaxinn
komi úr sjókvíaeldi
eða landeldi er stórmál fyrir
þau okkar sem er umhugað
um náttúruna og mannúð
lega búskaparhætti.
Jón Kaldal,
talsmaður um
hverfissjóðsins
Icelandic Wildlife
Fund
Sá lax sem menn
borða, hvort sem
þeir kaupa hann á veitinga
stöðum eða í verslunum, er í
99 prósent tilvika úr sjó
kvía eldi.
Einar K. Guðfinns
son, talsmaður
Samtaka fyrir
tækja í sjávar
útvegi
n Mjög sammála n Frekar sammála n Hvorki né
n Frekar ósammála n Mjög ósammála
Heild Karlar Konur Fram
sókn
arfl.
Sjálf
stæð
isfl.
Sam
fylk
ingin
Vinstri
græn
Pír
atar
Við
reisn
Miðfl. Annar
flokk
ur/
listi
Skila
auðu/
ekki
kjósa
Vil
ekki
svara
Óá
kveð
in/n
20%
40%
60%
80%
100%
0%
✿ Ertu sammála eða ósammála því að koma skuli fram
á umbúðum eldislax hvort hann komi úr sjókvíaeldi
eða landeldi? Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk eða lista
myndirðu kjósa/líklegast kjósa?
42%
27%
28%
40%
26%
30%
44%
27%
26%
39%
27%
24%
8%
29%
31%
35%
41%
29%
27%
52%
27%
21%
62%
22%
15%
38%
29%
20%
13% 5% 6%
34%
16%
43%
53%
21%
19%
48%
21%
29%
34%
33%
33%
38%
32%
29%
Heimild: Gallup
LANDSBANKINN. IS
Nú greiðir þú ekkert lán töku gjald
þegar þú fjármagnar rafbíl og færð
50% afslátt við kaup á tvinn bíl.
Lægra gjald
þegar þú kaupir
vistvænan bíl
Velkomin í Landsbankann
1 3 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R8 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð