Fréttablaðið - 13.03.2021, Síða 18
1 3 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
Hilmar Snær á ferðinni niður brekkurnar í Liechtenstein. MYND/AÐSEND
SKÍÐI Hilmar Snær Örvarsson,
skíðamaður úr Víkingi, hafnaði
í þriðja sæti í svigi á móti sem var
liður í Evrópumótaröð IPC og fram
fór í Liechtenstein í gær. Þetta var
lokadagur mótaraðarinnar þetta
keppnistímabilið.
Hilmar Snær var annar eftir fyrri
ferðina en smávægileg mistök í upp-
hafi seinni ferðarinnar reyndust
honum dýrkeypt og lauk hann þar
af leiðandi keppni í þriðja sæti.
Aðstæður í Liechtenstein í gær
voru fremur erfiðar, gott veður var
á meðan keppninni stóð en mikið af
nýjum og blautum snjó í brautinni.
Sem fyrr var það Frakkinn Arthur
Bauchet sem hafði sigur, en hann fór
með sigur af hólmi í öllum fjórum
keppnunum í standandi f lokki á
mótunum í Malbun síðustu dagana.
Fyrr í vikunni keppti Hilmar
Snær í stórsvigi á landsmóti í Liech-
tenstein og svo á móti sem var hluti
af Evrópumótaröðinni. Þar endaði
hann annars vegar í fimmta sæti og
hins vegar í sjötta sæti í þeirri grein.
Hilmar Snær lýkur þar af leiðandi
keppni á Evrópumótaröðinni þetta
árið með silfur og brons í svigi í far-
teskinu, en líklegast má telja að
þetta hafi verið síðasta verkefni
hans þetta tímabilið.
Í d e s e mb e r s íð a s t l iðnu m
var Hilmar Snær valinn Íþrótta-
maður ársins hjá Íþróttasambandi
fatlaðra í fyrsta skipti en hann var á
síðasti ári fyrstur Íslendinga til þess
að sigra Evrópumótaröð IPC í alpa-
greinum. Það gerði Hilmar Snær á
lokamótum mótaraðarinnar í svigi
í Króatíu í upphafi síðasta árs.
Þessi tvítugi skíðamaður úr Foss-
voginum vann þrenn gullverðlaun
í svigi á mótum á Evrópumótaröð-
inni í Slóvakíu síðasta vetur.
Þá tryggði hann sér sigur í heild-
arstigakeppninni í svigi á Evrópu-
mótaröðinni, með því að vinna
þrenn gullverðlaun og næla í eitt
silfur á mótum sem haldin voru í
Króatíu í febrúar í fyrra. – hó
Hilmar Snær kláraði
tímabilið með bronsi
Hilmar Snær Örvarsson
nældi í silfuverðlaun og eitt
brons á mótum innan
Evrópumótaraðarinnar í
Liechtenstein í vikunni.
Leigufélagið Bríet óskar eftir
byggingaraðilum til að taka þátt
í uppbyggingu íbúða víðsvegar
um landið
briet. is
Leigufélagið Bríet
Leigufélagið Bríet stefnir á uppbyggingu á hagkvæmum
leiguíbúðum og auglýsir því eftir byggingaraðilum til
samstarfs. Byggingaraðili skal vera aðalverktaki og
annast framkvæmd verkefnis í samráði við sveitarfélagið
og Leigufélagið Bríeti.
Gögn fyrir samstarfsaðila er hægt að nálgast með því að
senda tölvupóst á soffia@briet.is og skal gögnum skilað
fyrir föstudaginn 9. apríl 2021.
Við val á byggingaraðilum til samstarfs verður tekið tillit
til reynslu aðila ásamt hagkvæmni og gæði lausna.
Upplýsingar veita Soffía Guðmundsdóttir
framkvæmdastjóri Bríetar (soffia@briet.is) og
Elmar Erlendsson, byggingafræðingur hjá HMS
(elmar.erlendsson@hms.is).
Nánari upplýsingar eru að finna á briet.is
FÓTBOLTI Spænsk stjórnvöld stigu
stórt skref í gær til að styðja við
bakið á kvennaknattspyrnu þar
í landi þegar tilkynnt var að efsta
deild á Spáni, La Liga Femenina,
yrði atvinnumannadeild frá og með
haustinu. Með því stígur Spánn
sama skref og Ítalir sem tilkynntu
fyrr í vetur sama skref, en spænsk
stjórnvöld stefndu að breytingunni
strax á sama ári á meðan Ítalir eru
með þetta á stefnulista fyrir árið
2022.
„Íþróttasamband Spánar mun sjá
til þess að efsta deild kvenna verður
að atvinnumannadeild frá 2021.
Það gengur ekki að karladeildin sé
atvinnumannadeild og að kvenna-
deildin sé ekki talin í sama f lokki.
Það heldur ekki rökum og við
munum binda enda á þetta órétt-
læti með því að bæta aðstöðu og
skipulag kvennaknattspyrnunnar,“
sagði Irene Lozano, forseti spænska
íþróttasambandsins, þegar ákvörð-
unin var tilkynnt í vikunni. „Mark-
miðið er að vera með bestu deild
Evrópu á Spáni og þetta er rökrétt
skref í átt að því markmiði.“
Deildarkeppnin á Spáni fagnar 33
ára afmæli á þessu ári, en árið 2015
voru hagsmunasamtök kvenna-
liða stofnuð og í fyrsta sinn skrif-
uðu leikmenn deildarinnar undir
kjarasamning á síðasta ári. Með
því var allt til reiðu sem þarf til að
gera deildina að atvinnumanna-
deild en Spánn átti tvö lið í sextán
liða úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu í vetur. Barcelona sem er með
eitt af bestu liðum Evrópu stefnir
hraðbyri að meistaratitlinum en
í fyrsta sinn er lið sem leikur fyrir
hönd Real Madrid þennan veturinn
eftir að Madrídingar keyptu félagið
Tacón.
„Ég veit að spænsku stelpurnar og
deildarkeppnin hafa verið að berj-
ast fyrir þessu undanfarin ár. Það
er ekki langt síðan þær fóru í verk-
fall í baráttunni fyrir betri kjörum
og þetta er svakalega stórt skref og
sýnir hvað kvennaknattspyrnan er
að sækja í sig veðrið," segir lands-
liðsmiðvörðurinn Sif Atladóttir,
sem leikur með Kristianstad í
sænsku deildinni, þegar Frétta-
blaðið spurði hana hvaða þýðingu
ákvörðun eins og þessi hefði.
„Þetta ýtir undir atvinnuöryggi
deildarinnar og leikmannanna.
Þær þurfa ekki jafn mikið að berjast
fyrir tilverurétti sínum ef þær eru
með atvinnumannasamning sem
ver réttindi þeirra."
Dregið var í Meistaradeild Evr-
ópu í gær þar sem f lest af stærstu
liðum Evrópu í karlaflokki undan-
farna áratugi voru með fulltrúa.
Þau eru f lest búin að taka þetta
skref eða eru að setja á laggirnar
kvennalið.
„Næstu 5-10 árin á ég von á því að
þetta sé þróunin í stærri deildunum
þar sem karlaliðin eru mjög stór
og sterk. Á Englandi hafa stærstu
liðin eins og Manchester-liðin tvö
og Chelsea verið að stækka við
kvennaliðin sín, eins og Barcel-
ona. Real Madrid er enn að vinna
í uppbyggingu en það á eftir að
lokka til sín stóra leikmenn að fá
að spila fyrir Real Madrid. Það sýnir
þróunina sem hefur átt sér stað og
gefur þessum félög meiri kraft,"
segir Sif og minnist á að ákvarð-
anir sem þessar eigi stóran þátt í að
gera kvennaknattspyrnu sýnilegri.
Fyrir vikið sé auðveldara að sækja í
fyrirmyndir.
„Um leið eykur það styrkleika
íþróttarinnar. Þegar ég er að alast
upp er kvennaknattspyrnan ekk-
ert mjög sýnileg," segir Sif hrein-
skilin og heldur áfram. „Mínar
fyrirmyndir voru pabbi minn og
aðrir karlar. Það var ekki raun-
hæft markmið að spila í meistara-
f lokki karla en stúlkur í dag
hafa allar þessar kvenfyrirmyndir
sem er mjög jákvætt."
kristinnpall@frettabladid.is
Sýnir að kvennaboltinn er í sókn
Spænsk íþróttayfirvöld tilkynntu í vikunni að kvennadeildin þar í landi yrði að atvinnumannadeild næsta haust. Með því steig
Spánn sama skref og Ítalir fyrr í vetur. Ákvörðunin sýnir enn á ný að kvennaknattspyrna er í sókn, að sögn Sifjar Atladóttur.
Caroline Graham Hansen í leik Barcelona og Real í vetur. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY