Fréttablaðið - 13.03.2021, Page 34

Fréttablaðið - 13.03.2021, Page 34
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf. Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergs- dóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Þórdís segist alla tíð hafa verið með lata þarmastarfsemi. „Ég hef prófað ýmislegt í gegnum tíðina til að fá betri meltingu en ekkert virtist koma mér að gagni,“ segir hún. „Ég var eiginlega búin að gefast upp því ég fékk ekkert út úr þessum prófunum. Mér fannst það hlyti bara að vera að ég væri svona og lítið við því að gera. Þá var ég svo heppin að kynnast Happier GUTS eftir ábendingu um að þetta virkaði vel fyrir meltinguna. Ég var búin að vera í langri hvíld frá öðrum bætiefnum,“ segir Þórdís. „Ég ákvað að taka slaginn og prófa Happier GUTS og er ánægð með það. Eftir um það bil tveggja mánaða notkun finn ég gríðar­ legan mun á mér og allt annað líf en áður. Óþægindin frá meltingar­ vegi og þarmastarfseminni eru mun minni og þar fyrir utan er öll almenn líðan mín mjög góð, bæði andlega og líkamlega. Mér bara líður betur,“ útskýrir Þórdís. „Ég mun svo sannarlega halda áfram að taka inn þetta frábæra efni sem er unnið úr íslenskum gæðahráefnum og framleitt hér á landi. Ég mæli eindregið með Happ ier GUTS fyrir þá sem eru með meltingaróþægindi því það hefur hjálpað mér mjög mikið.“ Nýjasta varan frá Eylíf, Happier GUTS, inniheldur fjögur íslensk hráefni, það eru: n Kítósan, unnið úr rækjuskel, er náttúrulegar trefjar og reynist vel fyrir melt- inguna, það dregur í sig fituefni úr meltingar- veginum n Kalkþörungar sem eru mjög kalk- ríkir og innihalda 74 stein- og snefilefni úr náttúrunni n GeoSilica kísillinn sem hefur reynst vel og rannsóknir staðfesta virkni n Fjallagrös sem eru vel þekkt fyrir sín góðu áhrif á meltinguna n Við styrkjum blönduna með öflugri blöndu af meltingar- ensímum, C-vítamíni, krómi, joði og sinki Athugið að ekki má taka D-vítamín eða önnur fitu- leysanleg vítamín á sama tíma. Látið líða um það bil 2 klst. á milli. Vörulínan frá Eylíf Vörulínan Eylíf býður upp á fjórar vörur, Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair, og nýjasta varan er Happ­ ier GUTS, allt vörur sem hafa reynst fólki vel. Vörurnar eru unnar úr hreinum, íslenskum hráefnum, engum aukefnum er bætt við og framleiðslan er á Íslandi. Ólöf Rún Tryggvadóttir er stofnandi vöru­ línunnar Eylíf. Hugmyndin kom til vegna þess að hana langaði að setja saman þau frábæru hráefni sem eru framleidd á Íslandi á sjálf­ bæran hátt frá náttúrulegum auð­ lindum landsins og auka þannig aðgengi fólks að þeim hráefnum. Framleiðslan fer fram á Grenivík og þróun varanna er í samstarfi við sérfræðinga frá Matís. Eins og áður segir eru fjórar tegundir frá Eylíf komnar á markað, Active Joints, Stronger Bones, Smoother Skin & Hair og nú nýjasta varan Happier GUTS. „Vinsælasta varan er Active Joints sem inniheldur fjögur íslensk næringarefni og margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif þeirra,“ segir Ólöf Rún. „Við vöndum til verka og sækjum í sjálfbærar auðlindir úr sjó og af landi. Við notum hreina, íslenska náttúruafurð, hrein hráefni sem ekki eru erfðabreytt og stuðla að sveigjanlegri líkama, þá erum við færari til að takast á við verkefnin í dagsins önn. Við vitum að heilsan er dýr­ mætust, því er svo mikilvægt að gæta vel að henni og fyrirbyggja ýmis heilsuvandamál. Heilbrigð melting er grunnurinn að góðri heilsu, þess vegna vildum við hjá Eylíf bjóða upp á gæðavöru fyrir meltinguna,“ segir Ólöf Rún. Íslensku hráefnin sem notuð eru í Eylíf vörurnar eru: n Kalkþörungar frá Bíldudal n Smáþörungar (Astaxanthin) frá Reykjanesbæ n GeoSilica frá Hellisheiði n Kollagen frá Sauðárkróki n Kítósan frá Siglufirði n Íslenskar jurtir, handtíndar, frá fjölskyldufyrirtæki í Hafnarfirði Hrein hráefni og íslensk fram­ leiðsla. Fæst í öllum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum, Nettó og á eylif.is þar sem hægt er að fá fría heimsendingu. Þórdís segist hafa lengi glímt við lata þarma- starfsemi. FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFÁN Guðlaugur getur nú staðið upp án fyrirhafnar og gengið óstudd- ur upp og niður stiga eftir að hann byrjaði að taka Active JOINTS. Guðlaugur Sigurðsson lenti í vinnuslysi úti á sjó árið 2010 og slasaðist illa með þeim afleiðing­ um að hann varð óvinnufær. „Ég hef verið mjög slæmur í líkaman­ um frá slysinu, en var þó heppinn á sínum tíma að fá spelku frá Össuri þannig að ég gat sinnt daglegum athöfnum. Spelkan var eins konar lífsbjörg fyrir mig á þeim tíma. Síðustu árin eftir slysið hef ég átt erfitt heilsulega séð, alltaf verið með verki og átt erfitt með svefn því ég var stöðugt með verki,“ segir hann. „Það var konan mín sem sá aug­ lýsingu á íslensku fæðubótarefni, Active JOINTS frá Eylíf, og ákvað að kaupa það fyrir mig í haust. Eftir aðeins eina viku var ég farinn að finna góðan mun á líkamanum sem mér fannst alveg ótrúlegt. Það er gaman að segja frá því að ég er orðinn svo miklu betri í skrokkn­ um núna að stundum gleymi ég að setja á mig spelkuna þegar ég fer út í göngutúr. Eins get ég orðið gengið upp og niður stiga án þess að styðja mig við og þarf ekki lengur að styðja mig við þegar ég stend upp frá borði, ég bara stend upp umhugsunarlaust,“ segir Guð­ laugur. „Það er eiginlega kraftaverk frá því sem áður var. Ég tek þrjú hylki á dag og dreifi inntökunni yfir daginn með máltíðum. Þrátt fyrir að fötlunin mín eftir slysið hverfi ekki, þá er ég samt sem áður gangandi um glaður og mér líður svo miklu betur og mæli svo sannarlega með Active JOINTS frá Eylíf.“ Fæst í öllum apótekum, Hagkaup, Heilsuhúsinu, Fjarðarkaupum, Nettó og á eylif.is þar sem hægt er að fá fría heimsendingu. Fæðubótarefni koma ekki í staðinn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börnum eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráðlagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. Allt annað og betra líf Guðlaugur Sigurðsson fékk liðleika aftur með Active JOINTS frá Eylíf. Eftir aðeins eina viku var ég farinn að finna góðan mun á líkamanum sem mér fannst alveg ótrúlegt. Það er gaman að segja frá því að ég er orðinn svo miklu betri í skrokknum núna að stundum gleymi ég að setja á mig spelkuna þegar ég fer út í göngu- túr. Guðlaugur Sigurðsson 2 kynningarblað A L LT 13. mars 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.