Fréttablaðið - 13.03.2021, Side 40
Stefnt er að því að
opna annað útibú
af Efnsimiðluninni á
endurvinnslustöðinni
við Breiðhellu í vor.
Karen H. Kristjánsdóttir
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@
frettabladid.is
Endurvinnslustöðvar SORPU
hafa rekið Efnismiðlunina,
lítinn markað sem býður upp
á byggingar- og framkvæmda-
efni, á endurvinnslustöðinni við
Sævarhöfða frá árinu 2018.
„Mikið af slíku efni kemur inn á
endurvinnslustöðvarnar og er
þetta tækifæri til þess að koma
efninu í endurnotkun og þannig
á fyrsta forgangi inn í hringrásar-
hagkerfið í stað þess að það fari til
endurvinnslu eða förgunar,“ segir
Karen H. Kristjánsdóttir, sérfræð-
ingur hjá endurvinnslustöðvum
SORPU, og bendir á að tilgangur
markaðarins sé að vera vettvangur
fyrir miðlun efna og hluta til
endurnotkunar sem er mikilvæg
aðgerð til að nýta auðlindir jarðar
sem best á hverjum tíma.
„Efnismiðlunin býður upp á
valkosti fyrir breiðan hóp við-
skiptavina, sérstaklega þá sem eru
í húsnæðisbreytingum, sumar-
bústaðabyggingu, garðvinnu,
leikmyndagerð eða einhvers konar
listsköpun,“ segir hún. „Vöruúr-
valið er fjölbreytt og má þar nefna
skrúfur, verkfæri, hurðir, glugga,
parket, f lísar, hellur, bárujárn,
timbur, sturtubotna, reiðhjól
og bílakerrur. Á markaðnum er
einnig framboð af efni og vörum
sem jafnvel er ekki í boði annars
staðar, svo sem gamlar hurðir og
veðrað timbur,“ upplýsir Karen og
bendir á að vinsældir markaðarins
hafi farið vaxandi á hverju ári frá
opnun og aukist til muna í COVID.
„Fólk virðist vera í miklum fram-
kvæmdahug og er gaman að sjá að
fólk er tilbúið að skoða notuð efni í
stað nýrra.“
Í COVID þurfti að grípa til
aðgerða vegna fjöldatakmarkana
inni á endurvinnslustöðinni og
loka þurfti markaðnum tímabund-
ið. „Þá var brugðið á það ráð að
selja vörurnar í gegnum Facebook-
síðu Efnismiðlunarinnar. Þar er
boðið upp á tvenns konar netsölu,
annars vegar beina sölu á vörum
og hins vegar uppboð. Þegar um er
að ræða beina sölu eru settar inn
myndir, lýsing og verð og þá gildir
að sá fyrsti sem setur athugasemd
undir myndina fær vöruna. Hins
vegar þegar um uppboð er að ræða
þá eru settar inn myndir fyrir
hádegi með lýsingu og upphafs-
verði, öllum er frjálst að bjóða í
vöruna í auglýstan tíma, sá hreppir
hnossið sem á hæsta boð við lokun
uppboðs.
Með þessari nýjung kom fram
nýr hópur viðskiptavina sem
áður hafði ekki tök á að mæta á
staðinn, svo sem fólk sem býr utan
höfuðborgarsvæðisins eða kemst
ekki frá á opnunartíma. Allur
framkvæmdaúrgangur er gjald-
skyldur á endurvinnslustöðvum
og þarf fólk því að greiða fyrir
byggingarefni sem það kemur
með, en getur svo valið að gefa
efnið til Efnismiðlunarinnar svo
efnið haldi áfram í hringrásarhag-
kerfinu. Tekið er við efni á öllum
endurvinnslustöðvum og eru
vörurnar fluttar yfir á Sævarhöfða
þar sem þær eru seldar.
Verðlagning er hófstillt og hægt
er að gera kostakaup. Markmiðið
er alltaf að skapa farveg fyrir skyn-
sama nýtingu nothæfrar vöru.
Allur hagnaður af markaðnum
rennur óskiptur til góðra málefna.
Síðastliðið haust var óskað eftir
styrkþegum fyrir fyrstu úthlutun.
Leitast var við að styrkja verkefni
sem tengdust á einhvern hátt
hringrásarhagkerfinu og voru tvö
verkefni sem fengu styrk upp á
samtals 1.000.000 króna. Lesa má
um það á Facebook-síðu mark-
aðarins. Stefnt er að því að opna
annað útibú af Efnsimiðluninni á
endurvinnslustöðinni við Breið-
hellu í vor.
Sem fyrr segir er núverandi
markaður staðsettur á endur-
vinnslustöðinni við Sævarhöfða og
er opnunartíminn miðvikudaga
til laugardaga kl. 14.00–17.30. Yfir
sumartímann er opið alla daga
nema sunnudaga.“
Á Facebook-síðu markaðarins er
hægt að sjá vöruúrval og fylgjast
með netsölunni: Efnismiðlun
Góða hirðisins.
Framkvæmdir fyrir lítinn pening
Núverandi
markaður
Efnismiðlunar
er staðsettur á
endurvinnslu-
stöðinni við
Sævarhöfða.
Margir hafa
getað nýtt
sér efnivið til
framkvæmda
sem kemur í
Efnismiðlunina.
Stefnt er að því
að opna annað
útibú af Efnis-
miðluninni á
endurvinnslu-
stöðinni við
Breiðhellu í vor.
Vísindamenn hafa þróað nýtt
„ofurensím“ sem getur brotið
niður plast til endurvinnslu á
nokkrum dögum. Vonast er til
að með frekari þróun geti slík
ensím nýst til öflugrar endur-
vinnslu og þannig dregið úr
plastmengun og plastfram-
leiðslu.
Vísindamönnum við háskólann í
Portsmouth á Englandi hefur tek-
ist að búa til nýtt „ofurensím“ sem
getur brotið niður plast allt að sex
sinnum hraðar en gamla ensímið
þeirra. Vísindamennirnir höfðu
áður þróað plastétandi ensím sem
kallast PETase og blönduðu því svo
saman við annað ensím sem flýtti
verulega fyrir ferlinu, samkvæmt
fréttatilkynningu háskólans sem
send var út síðasta haust.
Þetta nýja ensím gæti komið að
miklu gagni við að endurvinna
þá gerð af plasti sem er notuð í
einnota drykkjarflöskur, teppi og
föt. Þetta plast er mörg hundruð
ár að brotna niður í umhverfinu
en PETase brýtur það niður á
nokkrum dögum.
John McGeehan, einn af aðal-
höfundum rannsóknarinnar, sagði
í samtali við fréttastofu CNN að
þetta væri risastórt skref í átt að
því að nota ensím til að endur-
vinna plast og minnka plastmeng-
un. Hann sagði að það hefði raunar
komið vísindamönnunum töluvert
á óvart að þetta hefði virkað svona
vel, en lagði áherslu á að ferlið væri
enn alltof hægt að til að vera til-
búið til að fara á markað.
En vísindamennirnir hafa fengið
fjármagn til að sinna frekar rann-
sóknum og eru að reyna að finna
leiðir til að fá ensímin til að virka
Ensím gætu bylt plastendurvinnslu
Plastmengun
er risavaxið og
sístækkandi
vandamál en
vísindamenn
vonast til að
geta bylt endur-
vinnslu þess
með nýjum ens-
ímum. FRÉTTA-
BLAÐIÐ/GETTY
enn hraðar. Ef þeim tekst að þróa
nógu hratt ferli gæti það þýtt að
hægt verði að hætta að framleiða
nýtt plast með jarðefnaeldsneyti
og endurnýta þess í stað það plast
sem er til staðar. Það gæti sparað
gríðarlega orku.
„Ofurensímið“ er byggt á ensím-
unum PETase og MHETase. Þegar
þeim er blandað saman brjóta
þau plastið niður tvöfalt hraðar en
PETase gerir eitt síns liðs, en þegar
ensímin voru tengd saman varð
ferlið svo þrefalt hraðara. Ensímin
eru bæði fengin frá bakteríum sem
höfðu þróað getu til að melta plast
og voru uppgötvaðar á ruslahaug í
Japan árið 2016.
Fleiri lausnir í sjónmáli
Plastmengun er ein alvarlegasta
umhverfisváin og hún er sífellt að
aukast. Það er engin ein lausn sem
getur leyst vandann en metnaðar-
full endurvinnsla getur minnkað
hana verulega.
Í apríl á síðasta ári tilkynnti
franska fyrirtækið Carbios rann-
sókn á sínu eigin plastétandi ens-
ími, sem er verið að prófa í verk-
smiðju fyrir utan borgina Lyon.
Fyrirtækið segir að ensímið geti
endurunnið 90 prósent af plastúr-
gangi innan 10 klukkustunda og í
framhaldi af rannsókninni gerðust
stórfyrirtæki eins og PepsiCo og
Nestlé meðeigendur í fyrirtækinu.
Ensímið var uppgötvað í laufmoltu
en hita þarf það í yfir 70 gráður til
að það virki á meðan þetta nýja
„ofurensím“ virkar við stofuhita.
McGeehan segir að með því að
blanda saman ólíkum aðferðum
sé hægt að flýta fyrir þróuninni
á þessari tækni og þannig
væri mögulega hægt að hefja
endurvinnslu á þennan hátt innan
tveggja ára.
Aðrar mögulegar lausnir eru
smávaxnir vaxormar sem geta
borðað ýmsar gerðir af plasti
og mjölormar, en þrjú til fjögur
þúsund mjölormar geta brotið
niður einn frauðplastbolla á um
það bil viku.
Ens-
ímin eru
bæði
fengin frá
bakteríum
sem höfðu
þróað getu
til að melta
plast.
4 kynningarblað 13. mars 2021 LAUGARDAGURNYTJAHLUTIR OG ENDURVINNSLA