Fréttablaðið - 13.03.2021, Page 45

Fréttablaðið - 13.03.2021, Page 45
Þverholti 2 | 270 Mosfellsbær | Sími 525 6700 | mos.is Skólastjóri Listaskóla Mosfellsbæjar Fjölbreyttur skóli — Skapandi umhverfi Mosfellsbær er í fararbroddi í nýbreytni í skólastarfi. Listaskóli Mosfellsbæjar skipar fastan sess í skóla- og menningarlífi bæjarins. Markmið hans er að bjóða börnum og ungmennum upp á tónlistarnám og þátttöku í öðrum listgreinum. Undir hatti skólans starfa tónlistardeild og skólahljómsveit, samstarfssamningar eru við Myndlistarskóla Mosfellsbæjar og Leikfélag Mosfellsbæjar. Listaskólinn starfar í eigin húsnæði og í öllum grunnskólum bæjarins. Við tónlistadeildina eru starfandi bæði klassísk og rytmísk deild og kennt er á öll helstu hljóðfæri auk söngs. Strengjasveit og rytmískar hljómsveitir eru starfandi við skólann auk fjölmargra annarra samspila. Skólastjóri Listaskólans ber ábyrgð á að starfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá tónlistarskóla og stefnumörkun Mosfellsbæjar. Hann ber ábyrgð á starfsemi skólans, veitir honum faglega forystu og er daglegur stjórnandi tónlistadeildar. Mosfellsbær leitar eftir metnaðarfullum einstaklingi sem hefur víðtæka þekkingu á skólastarfi, býr yfir skapandi hugsun og leiðtogafærni til að leiða starfsfólk og nemendur Listaskólans áfram inn í framtíðina. Menntunar- og hæfniskröfur • Menntun á sviði tónlistar skilyrði • Viðbótarmenntun á sviði stjórnunar og/eða uppeldis- og menntunarfræða skilyrði • Þekking á stjórnsýslu, fjármálastjórnun og stefnumótunarvinnu • Reynsla á sviði stjórnunar og faglegrar forystu í mennta- og menningarstofnunum • Reynsla af tónlistarflutningi og tónlistarkennslu • Þekking á sviði upplýsingatækni • Frumkvæði, sjálfstæði og góðir skipulagshæfileikar • Lipurð og færni í samskiptum • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti • Almenn tungumálakunnátta Umsóknarfrestur er til og með 7. apríl 2021. Sækja skal um starfið á ráðningarvef Mosfellsbæjar, www.mos.is/storf. Umsóknir skulu innihalda starfsferilsskrá og kynningarbréf sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Nánari upplýsingar veitir Linda Udengård framkvæmdastjóri fræðslu- og frístundasviðs í síma 525-6700 eða á linda@mos.is og Atli Guðlaugsson skólastjóri Listaskólans í síma 864-8019 eða á atli@mos.is. Um framtíðarstöðu er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Ráðið er í öll störf óháð kyni. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. BLAÐAMAÐUR Á FRÉTTABLAÐIÐ VILTU SLÁST Í HÓP ÖFLUGUSTU BLAÐAMANNA LANDSINS? Umsækjandi þarf: • að hafa reynslu af blaðamennsku og skrifum í fréttamiðla, hvort sem er í blað, á net, fyrir sjónvarp eða útvarp • að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi og brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar • að hafa gott vald á íslenskri tungu • að hafa þekkingu á samfélagsmiðlum og virkni þeirra • að vera fær í mannlegum samskiptum • að geta unnið undir álagi Umsóknir ásamt ferilskrá skal senda til Elísabetar Salvarsdóttur á netfangið elisabet@torg.is fyrir 19. mars 2021. Fréttablaðið er í eigu Torgs ehf. sem á og rekur fjölmarga frétta- og afþreyingarmiðla. Fréttablaðið leitar eftir umsóknum um starf blaðamanns. Um er að ræða áhugavert starf á skemmtilegum vinnustað í stöðugri sókn ATVINNUBLAÐIÐ 5LAUGARDAGUR 13. mars 2021
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.