Fréttablaðið - 13.03.2021, Qupperneq 51
Skútustaðahreppur auglýsir starf skólastjóra Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit laust til umsóknar.
Mývatnssveit skartar fegurð stórbrotinnar náttúru og veðurfarið er margrómað á öllum árstímum. Margskonar möguleikar felast
í þessu fallega umhverfi þar sem samfélagið stendur á grunni hins gamla bændasamfélags. Umhverfið er spennandi til útivistar
og má m.a. nefna göngu- og hjólastíga, skíðalyftu, gönguskíðabrautir og friðlýst svæði.
Reykjahlíðarskóli er samfélag um 60 nemenda og starfsmanna, sem setur velferð og hagsmuni barna í forgang með áherslu á lýðheilsu, jafnrétti,
fjölmenningu, lýðræðislegt samstarf og virðingu fyrir manngildi og sjálfbærni. Öflug tengsl við umhverfi og grenndarsamfélag og sérstaða
nánasta umhverfis eru nýtt til kennslu.
Leitað er eftir metnaðarfullum, framsæknum einstaklingi sem hefur góða þekkingu á skólastarfi og er tilbúinn að leiða skapandi skólastarf og
virkja þátttöku skólans í samfélagslegum nýsköpunarverkefnum í anda sjálfbærrar þróunar.
Meginverkefni og ábyrgð
Umsóknarfrestur
er til og með 7. apríl.
Menntunar- og hæfniskröfur
óskast í sólríka sveit
Leiða starf í framsæknu skólasamfélagi sem nýtir
styrkleika sem felast í fjölbreyttri náttúru og sterku samfélagi.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands.
Næsti yfirmaður er sveitarstjóri Skútustaðahrepps. Sveitarfélagið Skútustaðahreppur aðstoðar við búslóðaflutning
og við að útvega húsnæði í sveitarfélaginu.
Umsóknum skal skila á netfangið umsokn@skutustadahreppur.is, merkt „Skólastjóri Reykjahlíðarskóla.“ Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá,
nöfn tveggja umsagnaraðila og stutt kynning á umsækjanda, ásamt sýn á það hvernig starfsemi Reykjahlíðarskóla mun þróast á næstu árum.
Nánari upplýsingar veitir Sveinn Margeirsson, sveitarstjóri í síma 680-6666, einnig er hægt að senda fyrirspurnir á sveinn@skutustadahreppur.is
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Réttur er áskilinn til að hætta við ráðningu og/eða auglýsa stöðuna að nýju.
Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs í samræmi
við skólastefnu Skútustaðahrepps, aðalnámskrá grunnskóla
og lög um grunnskóla.
Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
Leiða samstarf innan skólasamfélagsins.
Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum, hugmyndaauðgi,
skipulagshæfni og leiðtogahæfileikar.
Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi t.d. á sviði stjórnunar
og/eða uppeldis- eða menntunarfræða er kostur.
Hæfni og reynsla á sviði stjórnunar, stefnumótunar,
áætlanagerðar og þróunar skólastarfs æskileg.
Áhugi á skólaþróun og framsæknu skólastarfi er skilyrði.
Leyfisbréf kennara og kennslureynsla.
Færni í samskiptum.