Fréttablaðið - 13.03.2021, Síða 66
Hringrásarverslunin Hringekjan
selur notuð föt og fylgihluti fyrir
fullorðið fólk. Hægt er að leigja
bása í 1-4 vikur í senn og er lögð
mikil áherslu á að veita við-
skiptavinum góða þjónustu.
Hringrásarverslunin Hringekjan
var nýlega opnuð í Þórunnartúni í
Reykjavík en þar er hægt að leigja
bása og selja notuð föt og fylgi
hluti. Það eru hjónin Davíð Örn
Jóhannsson og Jana Maren Óskars
dóttir sem stofnuðu verslunina
en þau hafði lengi dreymt um
að vinna að einhverju skemmti
legu verkefni saman, segir Davíð.
„Heimsfaraldurinn gaf okkur
kjörið tækifæri til að láta draum
inn rætast og þróa þetta verkefni
saman. Við erum mikið áhuga
fólk um endurnýtingu af öllum
toga, hvort sem það er fatnaður,
húsgögn eða annað, og þannig
kviknaði sú hugmynd að opna
hringrásarverslun með fatnað og
fylgihluti.“
Jana hefur mikla reynslu af
rekstri tískuvöruverslana og Davíð
er menntaður tölvunarfræðingur.
Saman geta þau því nýtt þekkingu
sína og styrkleika til að leggja sitt
af mörkum í baráttunni við fata
sóun. „Við viljum nýta það sem er
til í landinu. Þannig er Hringekjan
vettvangur fyrir endurnýtingu á
fatnaði og fylgihlutum allra kynja,
þar sem viðskiptavinir okkar leigja
rými undir sölu á notuðum vörum
sínum,“ bæti Jana við.
Fjölbreytt vöruúrval
Þau segjast snemma hafa ákveðið
að einbeita sér að því að taka ein
göngu til sölu fatnað og fylgihluti
fyrir fullorðna, en það liggur mjög
vel að reynslu Jönu. „Vöruúr
valið er hins vegar mjög fjölbreytt
hjá okkur, allt frá buxum, kjólum,
kápum og skóm, yfir í íþróttafatn
að og merkjavöru fyrir alla aldurs
hópa og öll kyn. Hér má finna bæði
nýlegar og „vintage“ vörur svo það
ættu allir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi hjá okkur.“
Þau hafa líka tekið vel á móti
ungum hönnuðum sem hafa verið
að þróa vörur úr endurnýttum
efniviði. „Við ætlum okkur að vera
áfram með vettvang fyrir hönn
uði hvaðanæva af landinu til að
koma vörum sínum á framfæri og
bendum við áhugasömum ein
staklingum á að hafa samband við
okkur.“
Einfalt ferli
Bókunarferlið er afar einfalt að
þeirra sögn og fer fram í gegnum
hringekjan.is. „Þar er hægt að bóka
bás í 7, 14, 21 eða 28 daga. Básarnir
samanstanda af 80 cm slá og hillu
auk þess sem hverjum bás fylgir 56
lítra lagerkassi sem við nýtum til
áfyllingar á básinn eftir þörfum.
Við mælum með því að það fari um
25 til 30 flíkur á hverja slá en það
kemst annað eins fyrir í lagerkass
anum. Viðskiptavinir geta komið
með allt að 60 flíkur í einu og er
þeim að sjálfsögðu velkomið að
bæta á lagerinn í gegnum allt leigu
tímabilið.“
Þau segjast hafa lagt mikla
áherslu á góða þjónustu frá upp
hafi. „Við viljum líka að verslunin
okkar sé sem hlýlegust en þess má
geta að hillukerfið sem við hönn
uðum og smíðuðum inn í rýmið var
hannað með það að markmiði að
flíkurnar fengju að njóta sín sem
best í skemmtilegu umhverfi.“
Komin til að vera
Bæði segjast þau finna fyrir mikilli
hugarfarsbreytingu í samfélaginu
þegar kemur að endurvinnslu og
endurnýtingu á til dæmis fatnaði
og hlutum. „Miðað við þau gríðar
lega góðu viðbrögð sem við höfum
upplifað þá er það augljóst að það er
að eiga sér stað afar jákvæð þróun í
rétta átt í þjóðfélaginu, þar sem við
verðum vör við vitundarvakningu
á öllum stigum þjóðfélagsins. Við
skiptavinir okkar koma úr flestum
stigum þjóðfélagsins, þá bæði sem
seljendur og kaupendur og eru allt
frá unglingum til eldri borgara.
Þessi þróun er sannarlega komin til
að vera.“
Nánari upplýsingar á hringekjan. is
og á Instagram (@hringekjan-
verslun).
Fatnaður og fylgihlutir öðlast nýtt líf
Hjónin Davíð
Örn Jóhanns-
son og Jana
Maren Óskars-
dóttir sem
stofnuðu
verslunina,
en þau hafði
lengi dreymt
um að vinna
að einhverju
skemmtilegu
verkefni saman.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Hringekjan er
vettvangur fyrir
endurnýtingu
á fatnaði og
fylgihlutum
allra kynja, þar
sem viðskipta-
vinir leigja
rými undir sölu
á notuðum
vörum.
Afskráðu ónýta bílinn hjá okkur
og við komum honum í endurvinnslu
Sterkir í brotajárni
6 kynningarblað 13. mars 2021 LAUGARDAGURNYTJAHLUTIR OG ENDURVINNSLA