Fréttablaðið - 13.03.2021, Síða 76
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Óli Pétur
Útfararstjóri
s. 892 8947
Hinrik Valsson
Útfararstjóri
s. 760 2300
Dalsbyggð 15, Garðabæ
Sími 551 3485
osvaldutfor@gmail.com
Innilegar þakkir til ykkar sem sýnduð
okkur samúð og vinsemd við andlát
og útför elskulegs eiginmanns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Magnúsar Finns Hafberg
Sérstakar þakkir færum við starfsfólkinu
á Höfða, Akranesi, fyrir hlýhug og
einstaklega góða umönnun.
Eva Þórðardóttir
Margrét Magnúsdóttir Marinó Þór Tryggvason
Þórður Magnússon
Olga Magnúsdóttir Helgi Ómar Þorsteinsson
Þórdís Guðný Magnúsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð, vináttu og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Dýrleifar Andrésdóttur
Leirhöfn.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hvamms fyrir góða og hlýja
umönnun í gegnum árin.
Andrea Jóhannsdóttir
Margrét Jóhannsdóttir Steinar Matthíasson
Arnfríður Jóhannsdóttir
Hildur Jóhannsdóttir Jón Þór Guðmundsson
barnabörn og langömmubörn.
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson
síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi,
bróðir og mágur,
Davíð Aðalsteinn Sverrisson
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
fimmtudaginn 25. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Karl Kristján Davíðsson Kolbrún Guðmundsdóttir
Tristan Karlsson
Kolbeinn Friður Karlsson
Salka Snæbrá Hrannarsdóttir
Sigríður María Sverrisdóttir Hjalti Þorvarður Magnússon
Sverrir Þórarinn Sverrisson María Pálmadóttir
Torfi Ólafur Sverrisson Inga Björg Sverrisdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Sturla V. Högnason
Kópubraut 11, Reykjanesbæ,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja,
fimmtudaginn 4. mars.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju,
fimmtudaginn 18. mars kl. 11.00.
Í ljósi aðstæðna munu einungis nánustu aðstandendur
vera viðstaddir athöfnina. Athöfninni verður streymt á
facebook.com/groups/sturlav
Högni Sturluson Svanhvít Erla Gunnarsdóttir
Svanberg Ingi Sturluson Sigríður Rós Þórisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Mín yndislega og elskaða eiginkona,
móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
Sigríður Gísladóttir
Sléttuvegi 31, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grensáskirkju
föstudaginn 19. mars kl. 13.00.
Vilhjálmur Þór Ólafsson
Ólafur Vilhjálmsson Anna Erla Þorsteinsdóttir
Rúnar Þór Vilhjálmsson Jóna Rán Ingadóttir
Gísli Már Vilhjálmsson Þórdís Einarsdóttir
Eva Vilhjálmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Edda Erlendsdóttir píanóleik-ari f lögrar milli Frakklands og Íslands og gerir sig gild-andi beggja vegna hafs. Hún kveðst hafa dvalið hér síðan í febrúar og kennt svolítið við
Listaháskólann eftir að hún losnaði úr
sóttkví, en auk þess undirbúið stórtón-
leikana sem fram undan eru þann 17.
mars í Norðurljósum í Hörpu.
„Ég hefði þurft að vera í París í síðustu
viku því nýi diskurinn minn var að
koma þar út síðasta föstudag. Honum
var vel tekið og hann fór strax í spilun
á helstu klassísku rásinni, Radio Classi-
que,“ segir hún ánægjulega.
Umræddur diskur, með þremur són-
ötum Schuberts frá árinu 1817, kom út
hér á landi síðasta haust, en útgáfutón-
leikarnir frestuðust þar til nú vegna
COVID-19. Eðlilega leist Eddu illa á
þegar breska veiran skaut upp kollinum
hér nýlega, en nú eru horfur góðar.
Rúm 40 ár eru frá fyrstu einleikstón-
leikum Eddu, þeir voru í janúar 1981 á
Kjarvalsstöðum. Síðan hefur hún haldið
fjölda tónleika, bæði ein og í alls konar
hópum og gefið út geisladiska sem
hlotið hafa viðurkenningu, meðal ann-
ars Íslensku tónlistarverðlaunin. Hún
var líka sæmd fálkaorðu árið 2010 fyrir
framlag sitt til tónlistar.
Á efnisskrá tónleikanna nú verður
efni af nýjasta diskinum ásamt verkum
eftir Bach, Messiaen, Dutilleux og Grieg.
En hvernig finnst Eddu best að undirbúa
sig? „Fyrir utan að læra allt utan að sem
ég ætla að spila og kunna hvora hönd
fyrir sig, þá reyni ég að hvíla hugann,
borða hollt, fara í göngur og njóta ferska
loftsins og náttúrunnar.“
gun@frettabladid.is
Fagnar útgáfu og afmæli
Einleikstónleikar Eddu Erlendsdóttur píanóleikara í Hörpu næsta miðvikudag marka
tímamót; 40 ár eru frá þeim fyrstu og fimm ár frá síðustu. Auk þess er diski fagnað.
Edda býr sig undir útgáfutónleikana í næstu viku með ýmsum hætti. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
1 3 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT