Fréttablaðið - 13.03.2021, Page 77
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýju
vegna andláts og útfarar elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
Guðrúnar Lovísu
Magnúsdóttir
(Lúllu)
Lyngholti, Vogum.
Systkinin Lyngholti
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ástbjörg Stefanía
Gunnarsdóttir
íþróttakennari,
sem lést 3. mars sl. verður jarðsungin frá
Bústaðakirkju mánudaginn 15. mars
kl. 13.00. Aðstandendur og vinir eru velkomnir meðan
húsrúm leyfir (hámark 200 manns). Gestir eru beðnir um
að hafa með sér á blaði nafn, kennitölu og símanúmer.
Streymt verður frá athöfninni á slóðinni
promynd.is/astbjorg og á hlekk á mbl.is/andlat
Margrét Jóhannsdóttir Hálfdán Sigurður Helgason
Ingi Gunnar Jóhannsson Kristín G. Hákonardóttir
Sigurður Sveinn Jónsson Svanhvít Helga Rúnarsdóttir
Ástbjörg Rut Jónsdóttir Jóhanna Sveina Hálfdánardóttir
Helgi Elí Hálfdánarson Snædís Anna Þórhallsdóttir
Valdís B. Hálfdánardóttir Rúnar Þór Númason
Eyrún Ingadóttir Telma Kristín Bjarnadóttir
Tryggvi Ingólfsson Björg Rún Óskarsdóttir
Ísabella Ronja, Yngvi Steinn, Valgerður Rakel,
Þorvaldur Helgi, Vanda María og Óskar
Yndislegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi V. Jónsson
hæstaréttarlögmaður og lögg.
endurskoðandi,
Brautarlandi 4, Reykjavík,
lést þann 2. mars sl.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju
18. mars kl. 13.
Vegna aðstæðna verða aðeins ættingjar
og vinir viðstaddir athöfnina.
Ingibjörg Jóhannsdóttir
Hanna Lára Helgadóttir Jónas Reynisson
Anna Dóra Helgadóttir Halldór Jónsson
Jón Sigurður Helgason Erla Guðrún Emilsdóttir
Halla María Helgadóttir Ólafur Þór Guðbjörnsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur eiginmaður, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigurður Sigvaldason
verkfræðingur,
Hvassaleiti 103,
lést aðfaranótt 28. febrúar.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
16. mars kl. 15.
Streymt verður frá athöfninni á slóðinni:
youtu.be/DhF2jUeMEy8
Sigrún Magnúsdóttir
Sigurður Sigurðarson Hrönn Sævarsdóttir
Ragnheiður Sigurðardóttir Anders Josephsson
Solveig Sigurðardóttir Sigurður Jóhannesson
Magnús Sigurðarson Janda Wetherington
og barnabörn.
Hjartans þakkir til þeirra fjölmörgu
sem hafa sýnt okkur umhyggju
og kærleika við andlát og útför
okkar elskaða eiginmanns, föður,
tengdaföður, bróður, mágs og afa,
Stefáns Árnasonar
framhaldsskólakennara,
Markarflöt 41.
Sérstakar þakkir fær séra Sigfinnur sem hefur veitt okkur
aðstandendum hans mikla alúð og kvaddi Stefán okkar
af stakri siðprýði. Arnar Dór Hannesson og Alma Rut
Kristjánsdóttir færðu okkur dásamlegan söng og Helgi
Hannesson fagran tónlistarflutning. Þakklæti okkar fær
einnig Björgvin Rúnar Gunnarsson fyrir streymisþjónustu
sína. Þá rækti starfsfólk Útfararstofu kirkjugarðanna
hlutverk sitt með miklum sóma. Minning Stefáns mun lifa.
Marsibil Ólafsdóttir
Hrafnkell Tjörvi Stefánsson
Vésteinn Stefánsson Kolbrún Hanna Jónasdóttir
Bryndís Stefánsdóttir Jens Jónsson
Einfríður Árnadóttir Christer Magnússon
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Ævar Guðmundsson
lést á Droplaugarstöðum
þann 9. mars sl.
Laufey Barðadóttir
Þuríður Ævarsdóttir
Ragnheiður M. Ævarsdóttir Gísli Baldvinsson
Þórdís L. Ævarsdóttir Bjarki Stefánsson
Ævar Gunnar Ævarsson Helga G. Óskarsdóttir
og barnabörn.
Okkar yndislega og ástkæra móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Katla Þorkelsdóttir
áður til heimilis að Háabarði 5,
Hafnarfirði,
lést á Hrafnistu Laugarási sunnudaginn
7. mars í faðmi ástvina. Útför hennar fer
fram frá Hafnarfjarðarkirkju, miðvikudaginn 17. mars kl.13
að viðstaddri fjölskyldu og vinum. Hlekk á skráningu má
finna á andlátsvef Morgunblaðsins, eða mæta með miða
með nafni, kennitölu og símanúmeri. Athöfninni verður
streymt á slóðinni: https://youtu.be/MlqDgvbYYh0
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug.
María Ólafsdóttir Eggert Kristinsson
Þorkatla Ólafsdóttir Kári Vigfússon
Hulda Ólafsdóttir Jóhannes Þór Sigurðsson
Sólrún Ólafsdóttir Olgeir Gestsson
Guðrún Ólafsdóttir Adolf Örn Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Sigurjón Ari Sigurjónsson
Prestastíg 11, Reykjavík,
er látinn. Útför hans fer fram frá
Digraneskirkju í Kópavogi,
föstudaginn 19. mars klukkan 13.
Skráning í kirkjuna og upplýsingar um streymi
er að finna á heimasíðu Digraneskirkju.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð líknardeildar
og HERU, Landspítala.
Þóra Gunnarsdóttir
Gunnar Sigurjónsson Þóra Margrét Þórarinsdóttir
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir Gunnar Stefánsson
Einar Þór Sigurjónsson Ragna Lilja Garðarsdóttir
og barnabörn.
Þökkum öllum þeim er sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát
og útför föður okkar,
tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
Elíasar Gunnlaugssonar
frá Gjábakka í Vestmannaeyjum,
síðast til heimilis á Hraunbúðum
í Vestmannaeyjum.
Hjördís Elíasdóttir Hannes G. Thorarensen
Björk Elíasdóttir Stefán Örn Jónsson
Viðar Elíasson Guðmunda Áslaug Bjarnadóttir
Barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Árni G. Árnason
varð bráðkvaddur 24. febrúar.
Jarðarförin fer fram frá
Ytri-Njarðavíkurkirkju þriðjudaginn
16. mars kl. 13.
Ásdís M. Sigurðardóttir
Brynja Árnadóttir Kolbeinn Steinþórsson
Aron Bachmann Árnason
Baldur Þór og Steinþór Árni Kolbeinssynir
Innilegustu þakkir til allra þeirra
sem sýndu okkur hlýhug, samúð
og vináttu við andlát og útför
heittelskaðrar eiginkonu, móður,
tengdamóður og ömmu,
Hafdísar Engilbertsdóttur
Hólmvaði 62, Reykjavík.
Einnig viljum við þakka öllum þeim sem sýndu minningu
hennar virðingu með því að styrkja góð málefni.
Sérstakar þakkir færum við líknarheimaþjónustu
Landspítalans HERU fyrir einstaka hlýju og alúð.
Baldvin H. Steindórsson
Tinna Björk Baldvinsdóttir Þórður Birgir Bogason
Ívar Baldvinsson Lísa Lind Björnsdóttir
Fannar Baldvinsson Snædís Sif Benediktsdóttir
og barnabörn.
F lestir eiga sinn uppáhalds-fugl og hverjum þykir sinn fugl fagur,“ segir Guðrún Lára Pálmadóttir hjá Fugla-vernd, sem ætlar að fá lands-menn til að kjósa fugl ársins
2021. Tilnefningar standa yfir og þeim
á að vera lokið 20. mars.
Kjörið er nýlunda á Íslandi. Guðrún
Lára segir tilhögun þess að nýsjálenskri
fyrirmynd. Fólk fari inn á vefslóðina
fuglavernd.is/fugl-arsins og tiltaki
tegundina, auk þess að rökstyðja valið.
Tilnefningar séu þegar farnar að berast
og það séu ekki endilega fegurstu fugl-
arnir, né þeir sem líklegastir eru til vin-
sælda, sem atkvæði hljóti, heldur f ljóti
sögur með sem rökstuðningur. „Allir
fuglar eru auðvitað stórkostlegir, hver
á sinn hátt og eru hluti af daglegu lífi
fólks,“ bætir hún við.
Hún hvetur þá sem halda sterkt
með sínum fugli að sækja um stöðu
kosningastjóra til að gefa honum byr
undir báða vængi á samfélagsmiðlum
og í heitum pottum. Tuttugu tegundir
munu keppa um titilinn Fugl ársins og
verða kynntar 1. apríl, að sögn Guðrún-
ar Láru. „Sigurvegari verður svo hylltur
með fjaðrafoki og látum á sumardaginn
fyrsta – árlega.“
gun@frettabladid.is
Fuglar ársins í framboð
Fuglavernd tekur upp þá nýbreytni að fá almenning til að velja fugl ársins, sem verð-
ur kynntur á sumardaginn fyrsta í ár. Tilnefningar þurfa að berast fyrir 20. mars.
Keppnin um fugl ársins verður árviss viðburður að sögn Guðrúnar Láru. MYND/AÐSEND
T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 37L A U G A R D A G U R 1 3 . M A R S 2 0 2 1