Fréttablaðið - 13.03.2021, Qupperneq 82
Listaverkið
„Þetta er nú meira vegg-
skriflið,“ sagði Kata, þar
sem þau komu að hlaðinni
steingirðingu. „Hér vantar
nánast annan hvern stein,“
bætti hún við með fyrir-
litningu. „En hann er nú
bara orðinn gamall,“ sagði
Konráð. „Það gerir hann
ekki endilega að vondum
vegg, bara laslegum,“ bætti
Konráð
á ferð og flugi
og félagar 445
Getur þú
hjálpað þeim
að
telja hvað v
antar
marga stein
a í
gatið?
?
?
?
hann við. „Það vantar til
dæmis ansi marga steina í
þetta gat hérna fyrir
framan okkur,“ sagði Kata
og hélt áfram að úthúða
veggnum. Konráð varð að
viðurkenna að það vantaði
jú ansi marga steina í þetta
gat. „En við verðum að
troða okkur í gegnum það
ef við ætlum að komast
eitthvað áfram,“ sagði Kata.
„Spurning hvort það vanti
það marga steina að við
komumst í gegnum gatið,“
bætti hún við glottandi.
Enda augljóst að auðvelt
væri að komast í gegnum
svona stórt gat án þess að
þurfa að troða sér.
Lausn á gátunni
Það vantar áttatíu og átta steina?
Margir þekkja bækurnar Nær-
bu xnaverksmiðjan, Blokkin á
heimsenda og Nærbu xnavél-
mennið. Höfundur þeirra er Arn-
dís Þórarinsdóttir. Hún er 38 ára en
finnst samt enn að hún sé eiginlega
bara krakki sem þarf að keyra bíl og
elda kvöldmat!
Átt þú börn? Já, krakkarnir mínir
eru Freydís, ellefu ára, og Þórarinn,
níu ára.
Hvar hefur þú átt heima? Reykja-
vík er eini staðurinn á Íslandi sem
ég hef búið á, en ég bjó í London á
meðan ég var í háskólanámi. Þar
voru refir úti á götunum og mýs inni
í íbúðinni minni, sem var fjölbreytt-
ara dýralíf en ég átti von á!
Hvernig lékst þú þér þegar þú
varst krakki? Ég lék mér mikið við
litlu systur mína – við lékum mest
með barbí-dúkkur og póný-hesta.
Við vorum alltaf að búa til ævintýri.
Hvernig bækur lastu þegar þú
varst lítil? Ég las eiginlega allar
bækur! Fræðibækur og ævintýra-
bækur, vináttusögur og fyndnar
bækur. Laumaðist meira að segja í
fullorðinsbækur.
Hvað varstu gömul þegar þú byrj-
aðir að skrifa? Ég byrjaði að skrifa
sögur í skólanum þegar ég var sjö
eða átta ára. En ég vissi ekki að ég
ætlaði að verða rithöfundur fyrr en
ég varð stór – ég vissi eiginlega ekki
að það mætti! Svo nú reyni ég að
segja krökkum að allir mega skrifa
og allir geta orðið rithöfundar ef
þeir leggja sig fram.
Hvernig er best fyrir krakka að
byrja? Það er hægt að skrifa mynda-
sögur, langar framhaldssögur eða
bara brandara! Það má allt. Ég er
líka með leyni-ábendingu: Full-
orðnum finnst mjög gaman að fá
sögur að gjöf. Mæli með því í afmæl-
is- og jólagjafir.
Hvaðan færð þú helst hugmyndir
að nýjum sögum? Hugmyndir
eru alls staðar! Ef maður er alltaf
með hugmyndagleraugun á sér fer
maður að taka eftir þeim.
Ertu alltaf með sögu í smíðum?
Já, margar! Ein er kannski næstum
tilbúin, önnur er rétt að byrja og
þriðja er bara hugmynd. En maður
verður samt að passa að klára ein-
hverjar – maður má ekki bara alltaf
byrja á nýrri. Þá á maður ekkert
nema byrjanir. Bráðum kemur ný
bók eftir mig, hún heitir Bál tímans.
Krakki sem þarf
að keyra og elda
Arndís segir að allir eigi að skrifa. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
ÞAÐ ER HÆGT AÐ
SKRIFA MYNDASÖGUR,
LANGAR FRAMHALDSSÖGUR
EÐA BARA BRANDARA! ÞAÐ MÁ
ALLT.
Þessa mynd teiknaði og litaði Ugne Skyriute af fjölskyldu sinni
og gleymdi að sjálfsögðu ekki heimiliskettinum.
1 3 . M A R S 2 0 2 1 L A U G A R D A G U R42 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR